Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Blaðsíða 12
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 201412
Hver j ir fara í kennaranám og Hvers vegna?
áhugasvið, svo og um viðhorf til kennaranáms og kennarastarfsins. Notaðir voru fyrir-
fram ákveðnir kóðunarflokkar þar sem um var að ræða fyrirfram skilgreint rann-
sóknarverkefni. Viðhorf voru könnuð með fjögurra kvarða spurningum (t.d. mjög
sammála, frekar sammála, frekar ósammála, alveg ósammála) og tvær spurningar með átta
undirfullyrðingum voru með möguleikana aldrei og veit ekki til viðbótar). Spurninga-
listarnir fyrir hópana tvo voru mismunandi. Listinn sem lagður var fyrir grunnskóla-
kennaranema var ítarlegri, tíu bls., en listinn sem var lagður fyrir framhaldsskólanema
var átta bls. Bakgrunnsspurningar voru þær sömu í báðum listunum.
Rýnihópaviðtöl
Tekin voru rýnihópaviðtöl við hóp kennaranema á fyrsta ári og hóp nemenda sem var
að ljúka námi í framhaldsskóla, eitt við hvorn hóp. Rýnihópaviðtölunum var ætlað að
ná fram umræðu meðal þátttakenda og sem virkastri þátttöku allra (Sóley S. Bender,
2003). Rýnihópaviðmælendur voru valdir með tilviljunarúrtaki, tólf kennaranemar og
fimmtán framhaldsskólanemar tóku þátt í hvoru viðtali. Rýnihópaviðtölin fóru fram
á ensku þar sem norrænir fulltrúar rannsóknarinnar tóku þátt í viðtölunum. Nem-
endur vissu að viðtalið færi fram á ensku og virtist það ekki vera hindrun. Þeir nýttu
sér aðstoð við túlkun á einstökum orðum meðan sjálft viðtalið fór fram. Viðtölin voru
tekin eftir að unnið hafði verið úr niðurstöðum spurningalistanna og voru settar fram
opnar spurningar um áhugaverða þætti sem fram komu í niðurstöðum úr spurninga-
listakönnuninni.
Greining gagna
Við greiningu gagna var tekið tillit til þess að svarendahóparnir voru tveir í hverju
landi, samtals tíu hópar (kennaranemar og framhaldsskólanemar). Því var í mörg-
um tilvikum kosið að kynna meðaltal úr gögnunum. Mikilvægt er að hafa í huga að
gögnin greina aðeins frá viðhorfum hópanna sem tóku þátt í könnuninni, og ekki
skal alhæfa í ljósi þeirra. Ekki var framkvæmd greining á þeim sem voru fjarverandi
þegar könnunin var lögð fyrir og á Íslandi vantaði fjarnema í úrtakið. Mögulegt er að
fjarvera þeirra skekki niðurstöðurnar kerfisbundið.
Tölfræðileg vinna með gögnin var í höndum Bernhard Block Datenerfassung í
Þýskalandi eftir lyklun rannsakenda hjá EVA og DPU undir stjórn þeirra Agi Csonka
og Lars Qvortrup, en þeir ásamt rannsóknarhópi á þeirra vegum höfðu séð um gerð
spurningalistanna og báru ábyrgð á þeim. úrvinnsla tölfræðilegra gagna fór fram á
vormisseri 2010 (Norræna ráðherranefndin, 2010).
niÐUrstÖÐUr
Hér er fyrst gerð grein fyrir bakgrunni þeirra sem hófu grunnskólakennaranám á
Menntavísindasviði HÍ haustið 2009 en meginhluti kaflans er um viðhorf þeirra
sömu grunnskólakennaranema annars vegar og framhaldsskólanema hins vegar til