Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Blaðsíða 107
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 107
Starfsaðferðir og fagmennska í félags-
miðstöðvum
inngangUr
Í greininni er fjallað um starfsaðferðir og fagmennsku í starfsemi félagsmiðstöðva.
Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað síðan fyrsta félagsmiðstöðin á Íslandi hóf starf-
semi sína. Áherslur og starfsaðferðir hafa breyst í takt við samfélagið og aukna þekk-
ingu á þessu sviði. Markmiðið er að gefa innsýn í þróun starfseminnar, starfsaðferðir
og fagmennsku.
félagsMiÐstÖÐVar Í sÖgUlEgU ljósi
Saga félagsmiðstöðva á Íslandi er ekki löng. Fyrsta félagsmiðstöðin, Tómstundaheim-
ilið við Lindargötu í Reykjavík, var stofnuð árið 1957. Hugmyndir um félagsmiðstöð
fyrir æsku hins ört vaxandi íslenska borgarsamfélags lágu fyrir mun fyrr. Aðalsteinn
Sigmundsson, formaður Ungmennafélags Íslands, gaf út ritlinginn Borgarbörn árið
1939, sem fjallar um aðstöðuleysi æskunnar í höfuðborginni (Aðalsteinn Sigmunds-
son, 1939). Hann ritaði aðra grein 1942 og jafnframt hvatti hann sem forsvarsmaður
Ungmennafélags Reykjavíkur til þess að ríkið kæmi á fót æskulýðshöll (Aðalsteinn
Sigmundsson, 1942). Á Alþingi árið 1943 kom fram tillaga um að reisa slíka höll. Á
vettvangi bæjarráðs Reykjavíkur kom árið 1943 fram tillaga sama efnis, en í stað þess
að fela nefnd það hlutverk að fara yfir málið var Ágústi Á. Sigurðssyni magister falið
að vinna skýrslu um æskulýðshöll eða tómstundaheimili. Ágúst vann af miklum eld-
móði að málinu og skilaði ítarlegri skýrslu í lok júní 1943. Skýrslan er ítarlegt plagg
sem tekur til aðstöðu, stjórnunar, starfsþátta og markmiða starfseminnar. Af lestri
hennar er ljóst að Ágúst byggði skýrslu sína á bestu þekkingu þess tíma (Ágúst Á.
Sigurðsson, 1943).
Ágúst Á. Sigurðsson, sem er þekkastur fyrir kennslubækur sínar í dönsku, kvaðst
hafa sótt hugmyndir sínar til svokallaðra Boys Clubs og Community Centres í Bret-
landi. Merkilegt er að hann skuli ekki hafa sótt hugmyndir til Danmerkur. Á því eru
áRni GUðMUndsson
Menntavísindasviði Háskóla íslands
Uppeldi og menntun
23. árgangur 1. hefti 2014