Morgunblaðið - 16.03.2013, Síða 11

Morgunblaðið - 16.03.2013, Síða 11
Smástundarsafnið, The Pop Up Mus- eum, fer á flakk og kemur við á Ísa- firði í dag. Safnið byggist alfarið á þátttöku þeirra sem mæta og felst starfsemin í því að safngestir komi með hlut, stóran eða smáan, sem þeim er hjartfólginn og tengist þem- anu Skemmtun. Smástundarsafnið myndar samræðuvettvang þar sem gestir segja frá hlutnum sem komið er með og saga hans verður skráð. Tekin verður mynd af honum og hún birt ásamt frásögninni á heimasíðu safnsins: smastundarsafnid.word- press.com. Markmið safnsins er fyrst og fremst að skapa ánægjulega stund þar sem fólk getur komið og deilt minningum sínum með okkur og hvað með öðru. Við sjáum svo um að koma þessum frásögnum út í umheiminn og auka vægi sögu fólksins í landinu. Endilega komið með hluti eða njótið hluta og sagna annarra, í Edinborgar- húsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði, í dag kl. 14-16. Heitt á könnu og með því. Smástundarsafnið á flakki Komið með hjartfólgnu hlutina ykkar DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 Ljósmynd/Björn Árnason Star Wars Þau þrjú gefa tóninn fyrir forritunarkeppnina, Hjalti Magnússon og Bjarki sjá um að semja þrautirnar en á milli þeirra stendur Elísabet Jónsdóttir sem er dómari í keppninni. Verðlaun verða líka veitt fyrir búninga. verðlaunin í forritunarkeppninni sem ég vann í fyrra. Ég var bara einn í liði, þannig að ég sat einn að vinningnum,“ segir Bjarki sem hef- ur áhuga á að koma sinni eigin þekkingu áfram. „Ég væri til í að vera áfram í akademísku námi og starfa innan hennar, jafnvel verða kennari. Allt er tengt forritun í dag, nánast hvað sem fólk vinnur við.“ Hann fór í vetur út fyrir land- steinana til að keppa í forritun. „Eftir að ég kom í HR fékk ég að fara á vegum skólans út til Hollands til að keppa í alþjóðlegri forritunar- keppni þar sem þátttakendur voru lið úr háskólum í Norðvestur- Evrópu. Við vorum þrír sem fórum héðan úr HR og lentum í tuttugasta og öðru sæti af áttatíu og þremur liðum. Síðan tók ég þátt í forritunar- keppni á vegum Google, sem rúm- lega þrjátíu og þrjú þúsund manns tóku þátt í, og ég lenti í topp tvö þúsund. Nokkrum vikum síðar fékk ég póst frá Google þar sem mér var boðið í atvinnuviðtal. Ég ákvað að fara ekki í það, af því ég vil klára skólann fyrst. En vinur minn sem lenti líka í topp tvö þúsund í þessari keppni, hann skellti sér í atvinnu- viðtal á skæpinu og hugsanlega fær hann vinnu þar í sumar.“ Bjarki segir að þeir sem hafi áhuga á forritun séu ekki endilega það sem sumir kalli tölvunörða. „Vissulega eru sumir alveg á kafi í þessu, en það eru líka margir í þessu sem eru að gera margt annað. Ætli ég sé ekki sjálfur svona miðlungstölvunörður, ég hef líka áhuga á mörgu öðru, til dæmis hjólreiðum. Ég hef verið að keppa í fjallabruni og líka því að stökkva á BMX-hjólum. Ég hjóla daglega í skólann, fram og til baka úr Garðabænum, sem er góð- ur fimmtíu mínútna spölur hvora leið,“ segir Bjarki, sem er titlaður Jedi meistari í símaskránni og vísar það í áhuga hans á Star Wars. Forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin er í Háskólanum í Reykjavík í dag er opin öllum framhaldsskólanemum, einnig þeim sem hafa áhuga á forritun án þess þó að hafa lært hana. Keppnin var fyrst haldin árið 2001 og hefur ásóknin aukist ár frá ári. Nú hafa 45 lið skráð sig til keppni og er það metþátttaka. Keppendur komu í gær til að fá leiðbeiningar og boli en mættu svo aftur í morgun, fengu morgunmat og hófu keppni. Keppt er í þremur deildum; Kirk-deildinni, Spock-deildinni og Scotty- deildinni. Nemendur HR ætla að vera með kynningar sem eru opnar öllum sem áhuga hafa á forritun. FORRITUNARKEPPNI HR 2013 Metþátttaka í keppninni þetta árið ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2013 Silfurbergi, Hörpu Fimmtudagur 21. mars kl. 14-16 • Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra Ávarp • Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður Ávarp • Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Tækifærin í orku framtíðar • Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Áhersla á lækkun skulda - rekstrarniðurstöður 2012 Fundarstjóri: Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Orka til framtíðar Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn í Hörpu þann 21. mars kl. 14. Þar kynnum við fjárhag og framtíðaráætlanir fyrirtækisins og leggjum mat á hvernig til hefur tekist. Allir velkomnir Skráning á www.landsvirkjun.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.