Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 20

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 Hekla frumsýnir í dag, laugardag- inn 16. mars milli kl. 12-16, nýjan bíl, Skoda Rapid. Í frétt frá Heklu segir að Skoda Rapid sé fjölskyldubíll. „Hann er mitt á milli Fabia og Octavia hvað varðar stærð, en er í raun mun stærri, því ef hann er borinn saman við Volkswagen Golf sem dæmi, þá er Rapid 30 sentimetrum lengri en Golfinn,“ segir í tilkynningu. Rapid er í raun ekki nýtt nafn hjá Skoda, því einn bíla Skoda á ár- unum á milli 1930-1940 hét einmitt Rapid. Þá var sportlegur Skoda Ra- pid, með vélina að aftan, á markaði hér á landi upp úr 1980. Hekla frumsýnir nýj- an bíl frá Skoda BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Þegar par frá Króatíu sótti um hæli á þriðjudaginn höfðu alls 45 Króatar sótt um hæli hér á landi frá því í lok nóvember, samkvæmt upplýsingum félagsþjónustu Reykjanesbæjar. Það hefur aldrei áður gerst að svo stór hópur frá einu landi sæki um hæli hér á landi, hvað þá á svona stuttum tíma. Tveir Króatar sem voru meðal þeirra fyrstu sem komu segja að þeir hafi valið Ísland vegna þess að landið væri friðsælt. Eftir að þeir komu virð- ist sem sú saga hafi komist á kreik meðal serbneska minnihlutans í borg- inni Vukovar og nágrenni að Ísland væri „fyrirheitna landið“. Hér biði hælisleitenda frá Króatíu lyklar að bíl, íbúð og vel launuð vinna sama dag og þau koma. Króatarnir tveir komu hingað með eiginkonum sínum og börnum í lok nóvember. Það var síðan í janúar sem fleiri Króatar komu og sóttu um hæli og straumurinn hefur verið nokkuð stöðugur síðan. Í samtali við Morgunblaðið í gær lögðu mennirnir áherslu á að þeir hefðu ekkert með komu annarra Kró- ata að gera. Raunar telja þeir að hælisbeiðnir frá svo mörgum Króötum í einu geri það að verkum að mögu- leikar þeirra á að fá hæli hafi stórlega minnkað. Stjórnvöld muni einfaldlega setja alla Króata undir sama hatt og synja öllum um hæli. Hugsanlega hafi upplýsingar um að hér væri gott að sækja um hæli borist til Króatíu frá einhverjum þeirra sem komu í janúar. Um Búdapest og Ósló Mennirnir eru af serbneskum ætt- um. Þeir eru króatískir ríkisborgarar en eiginkonur þeirra eru serbneskir ríkisborgarar. Samtals eru börnin þrjú og eitt á leiðinni. Þeir vildu ekki koma fram undir nafni því þeir óttast að það hefði slæmar afleiðingar fyrir fjölskyldur þeirra ef það spyrðist að þeir hefðu sótt um hæli á grundvelli mismununar og ofsókna í Króatíu. Fólkið bjó í þorpi skammt frá Vukovar sem liggur að landamær- unum að Serbíu. Þaðan fóru þau Búdapest og síðan til Ósló og loks til Íslands. „Þetta er ódýrasta flugleiðin,“ sagði annar þeirra. Fólkið kom til Ís- lands 28. nóvember og gaf sig fram á lögreglustöðinni við Hverfisgötu dag- inn eftir og sóttu um hæli. Hann talar góða ensku en hinn talar enga ensku og því hafði hann orð fyrir þeim og túlkaði. Hann segir að þau hafi yfirgefið Króatíu því þar hafi þau orðið fyrir miklu aðkasti og áreiti vegna þjóð- ernis síns. Hann tekur sérstaklega fram að þau hafi verið í vinnu, þótt launin hafi verið léleg, og vill að það komi skýrt fram þau sæki ekki um hæli á efnahagslegum forsendum. Gegnsýrir samfélagið Aðspurður segir hann að til lítils hefði verið að sækja um hæli í Serbíu eða flytja þangað. Þar sé litið á þá sem Króata og staða þeirra yrði óbreytt, auk þess sem þau gætu lík- lega ekki fundið vinnu. Þau hafi einn- ig hugsað um að fara til Noregs eða Svíþjóðar en þau hafi haft upplýs- ingar um að stjórnvöld þar myndu senda hælisleitendur til baka á innan við 30 dögum. Á Íslandi fengju þeir lengri tíma til að kynna mál sitt, a.m.k. hafi staðan verið sú þar til fleiri Króatar hafi af einhverjum orsökum ákveðið að koma hingað einnig. Það er ekkert leyndarmál að spenna ríkir á milli þjóðarbrotanna í Króatíu. Mennirnir segja að Serbar og fólk af serbneskum ættum sé kall- að ýmsum illum nöfnum á götum úti, börnum þeirra sé mismunað í skóla- kerfinu og erfitt eða ómögulegt sé að fá góða vinnu. Þetta hafi þeir upplifað á eigin skinni. Annar þeirra hefur fengið hótanir símleiðis um að barni hans verði rænt. Þá hafi börnin orðið fyrir einelti og ofbeldi í leikskólanum vegna þess að þau eru serbneskrar ættar en leikskólastjórnendur hafi lít- ið viljað gera til að stöðva það. Sá sem hefur orð fyrir þeim sótti um hæli í öðru landi árið 1999 en flutti aftur til Króatíu árið 2008, eftir að hann kynntist núverandi eiginkonu sinni en sú hafði ekki dvalarleyfi í við- komandi landi. Hann segir að við komuna til Króatíu hafi honum verið tjáð að hann yrði kærður fyrir liðhlaup og síðan þá hafi hann búist við að vera settur í fangelsi. Mennirnir segja báðir að mismun- unin gegnsýri þjóðfélagið. Þegar þeir sæki um vinnu eða fari á sjúkrahús sé spurt um þjóðerni og þegar þeir seg- ist vera Króatar en af serbneskum ættum fái þeir verri viðtökur en ella, það sé jafnvel hlegið að því að þeir skuli reyna. Serbar bera öðruvísi nöfn en Króatar og annar þeirra segir frá því að hann hafi eitt sinn kallað á eftir syni sínum úti á götu, Króatar hafi heyrt að þarna væru Serbar á ferðinni, og í kjölfarið hafi fjölskyldan orðið fyrir aðkasti. Þeir benda á mót- mælin í Vukovar í byrjun þessa árs gegn því að Serbar í Króatíu fengju að nota kýrillískt letur. Einnig sýna þeir ljósrit af frétt í dagblaði um veggjakrot með áletruninni „Drepum Serbana“ og tákni Ustasa, króat- ískrar hreyfingar sem barðist með nasistum í seinni heimsstyrjöldinni. Vukovar skipar sérstakan sess í hugum Króata vegna þess hversu harkalega var barist um borgina og vegna fjöldamorða Serba á 260 Kró- ötum þar. Mennirnir segja að reglu- lega séu haldnir viðburðir í Vukovar til að minnast þessara atburða og þá sé eins gott fyrir Serba að halda sig innandyra. Dæmi séu um að fólk úr serbneska minnihlutanum hafi orðið fyrir árásum. Þeir segja að króatísk stjórnvöld þykist vernda serbneska minnihlut- ann til að spilla ekki möguleikum á inngöngu landsins í ESB. „En það er bara á pappírunum,“ segja þeir. Spornað við mismunun Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli fólksins liggur fyrir; hvorki er fallist á beiðni um hæli né dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Í ákvörðun fyrir einn þeirra, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir að það þekkist að fólk af serbn- eskum uppruna þurfi að þola mis- munun af hálfu samfélagsins. Á und- anförnum árum hafi hins vegar ýmis skref verið stigin til að sporna við þessu vandamáli, ekki síst vegna fyr- irhugaðrar aðildar Króatíu að ESB. Yfirvöld virði almennt mannréttindi og hafi gripið til ýmissa aðgerða gegn mismunun og hatursglæpum. Niður- staðan er sú að viðkomandi hafi hvorki orðið fyrir ofsóknum, í skiln- ingi útlendingalaga, né „ástæðuríkan ótta“ við að verða ofsóttur vegna kyn- þáttar, trúarbragða, þjóðernis eða annars og falli því ekki undir skil- greiningar á flóttamanni. Ákvarðanirnar hafa verið kærðar en kæra frestar ekki brottflutningi. Flökkusaga um fyrirheitna landið  Króatískur hælisleitandi segir að saga hafi farið á kreik um að hælisleitendur fengju bíl, íbúð og vinnu á Íslandi  Ráðuneytið úrskurðar loks í máli pars frá Króatíu sem verið hefur hér frá 2010 Morgunblaðið/Golli Öryggi Viðmælendur segjast sæta áreiti og mismunun í Króatíu. Þeir segj- ast hafa valið að koma til Íslands, m.a. vegna þess að hér sé friðsælt. Vukovar í Króatíu Ítalía KRÓATÍA Vukovar Bosn./ Hers. Ungverjal.Austurr. Rúmenía Serbía Búlgaría Grikkland Albanía Maked. Svartfj. Slóven. Það tók Útlendingastofnun þrjá mánuði að komast að niðurstöðu í máli fólksins sem fjallað er um hér að ofan. Ákvörðunin hefur verið kærð til innanríkisráðuneytisins og miðað við þá áherslu sem stjórn- völd leggja á hraða málsmeðferð má búast við úrskurði fljótlega. Annað hefur verið uppi á ten- ingnum í málum króatísks pars sem kom hingað í febrúar 2010 og er áhugavert að bera málshraðann í því máli saman við mál þeirra Króata sem hafa sótt um hæli á síðustu mánuðum. Fólkið sem kom í ársbyrjun 2010 tilheyrir einnig serbneska minnihlutanum og sótti um hæli hér á grundvelli mismun- unar og ofsókna í Króatíu. Það hafði óskað eftir hæli annars stað- ar, m.a. í Bretlandi en ekki fengið og var þá gert að snúa aftur til Króatíu. Þar taldi fólkið sig hins vegar ekki geta verið þar vegna ofsókna. Ákvörðun Útlendingastofnunar lá fyrir í október 2011. Síðan leið og beið og ekkert bólað á úrskurði innanríkisráðuneytisins fyrr en í febrúar 2013, en þá voru hæl- isumsóknir frá Króötum teknar að berast í miklum mæli, og var hæl- isumsókn fólksins synjað. Fólkið sem um ræðir fékk vinnu við fiskvinnslu nánast um leið og það kom til landsins og þykir standa sig afar vel, að sögn lög- manns þess. Það leigi sér íbúð og njóti engra styrkja frá stjórnvöld- um. Nú á fólkið yfir höfði sér að vera flutt úr landi en frá og með 1. júlí næstkomandi öðlast það á hinn bóginn sama rétt og aðrir ríkisborgarar EES-ríkja til atvinnu og búsetu en þá gengur Króatía í Evrópusambandið. Í vinnu frá fyrri hluta 2010 FÓRU AÐ FLÝTA SÉR EFTIR AÐ STRAUMUR SKALL Á Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.