Morgunblaðið - 16.03.2013, Page 39

Morgunblaðið - 16.03.2013, Page 39
verið á þeim buxunum að fara að taka því rólega passaði það ekki al- veg við lífsstíl Steina. Hann kom að ýmsum verkefnum, ekki síst hjá íþróttahreyfingunni. Hann sat í stjórn ÍBV árin 1962-1963 og aft- ur 1986-1988. Hann var gjaldkeri hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja um árabil en hann hóf einmitt að iðka golf af áhuga eftir að hann lauk störfum hjá bankanum og iðkaði þá íþrótt af alúð þar til veikindin tóku í taumana. Steini var framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags 1997-2000 eða ári eftir að það var stofnað. Hann lauk sínum starfsferli sem starfs- maður íþróttamiðstövarinnar þar sem hann var við störf er hann veiktist. Hann þótti hafa mjög gott lag á að umgangast gesti sem sóttu íþróttamiðtöðina og var um- talaður fyrir sitt góða viðmót og góða skap. Hann var sæmdur silf- urmerki KSÍ 1986 og gullmerki ÍBV fyrir störf sín fyrir íþrótta- hreyfinguna. Íþróttahreyfingin í Vestmanna- eyjum kveður góðan félaga og þakkar honum samfylgdina og sendir eiginkonu og sonum og öðr- um ættingjum sínar innilegustu samúðarkveðjur. Þór Í. Vilhjálmsson, formaður Íþróttabandalags Vestmannaeyja. Nú hefur Steini kvatt okkur í bili og eftir sitja aðstandendur og vinir með sorg í hjarta en góðar minningar um yndislegan mann. Það tók mig ekki langan tíma eftir að ég hóf störf í Íþróttamið- stöðinni, þar sem Steini var fyrir, að sjá hversu heilsteyptur einstak- lingur hann var. Lífssýn hans var einstök, umburðarlyndi, hjálp- semi, sjálfstæði, rólyndi, lítillæti og glettni einkenndu hann. Hann var barngóður og fljótur að ávinna sér virðingu barna enda tók hann á málum með mismunandi hætti allt eftir því hvað hæfði hverju og einu barni. Þegar vandamál, stór og smá, bar að garði brosti hann bara og sagði „ég klára þetta“ og ef hann hafði ekki tök á því sjálfur sagði hann einnig brosandi „það þýðir ekki að velta sér upp úr því sem maður getur ekki breytt“. Ábyrgur var hann með eindæm- um og þurfti maður aldrei að hafa áhyggjur þegar Steini tók að sér sérverkefni á vinnustaðnum, yfir- leitt að eigin frumkvæði. Hann var úrræðagóður og lagði sig fram við það að hafa hlutina í lagi þannig að gestir okkar væru sáttir. Ég á margar sögur af atvikum þar sem Steini reddaði gestum og sam- starfsmönnum án þess að krefjast nokkurs á móti. Hann átti það líka oft til að koma til mín og bjóðast til að leysa verkefni fyrir mig þegar hann sá að mér veitti ekki af að- stoð. Bankastjórinn sjálfur hafði auðvitað langa reynslu og mátaði hana stundum við það sem ég var að fást við þegar ég óskaði eftir því. Annars var hann lítið fyrir að troða skoðunum sínum upp á aðra. Það var svolítið einkennilegt fyrir ungan mann eins og mig að eiga að stjórna lífsreyndum manni eins og Steina og fleirum en hann var fljótur að láta mig finna virðingu sína fyrir mínum störfum og leið mér ávallt vel í návist hans. Það var gaman að spjalla við hann þar sem við áttum nokkur sameiginleg áhugamál. Golfið var eitt þeirra og það færði mér alltaf gleði að hitta Steina og Þóru á vellinum og taka stutt spjall. Þegar veikindi hans komu upp lagði hann sig fram við það að fólk hefði ekki áhyggjur af honum. Hann bar sig ávallt vel og var trúr lífsgildum sínum fram á síðustu stundu. Ég mun minnast Steina sem vinar og samstarfsfélaga sem gerði mig og fleiri að betri manni. Steini var kletturinn hennar Þóru og er missir hennar mikill en ég veit að hún er í góðum höndum Elliða og Sigurjóns. Ég bið góðan Guð að styrkja ykkur, aðra að- standendur og vini í sorginni og söknuðinum. Minningar um góð- an mann gera það örugglega. Arnsteinn Ingi Jóhannesson. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 ✝ Elín Jón-asdóttir fædd- ist í Efri-Kvíhólma í Vestur-Eyjafjalla- hreppi 16. maí 1908. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 14. febrúar 2013. Foreldrar Elínar voru Jónas Sveins- son bóndi frá Rauðafelli í Aust- ur-Eyjafjallahreppi, f. 4. nóv- ember 1875, d. 29. nóvember 1946, og kona hans Guðfinna Árnadóttir frá Mið-Mörk í Vestur-Eyjafjallahreppi, f. 12. september 1874, d. 23. nóv- ember 1972. Systkini Elínar eru Sveinn, f. 9. júlí 1902, d. 26. desember 1981, Marta Sigríður, f. 14. nóvember 1903, d. 7. júlí 2000, Engilbert Ármann, f. 28. febrúar 1906, d. 24. apríl 1987, Ásdís, f. 30. október 1909, d. 10. maí 2003, Guðrún, f. 30. októ- ber 1909, d. 25. október 1975, Guðný Bergrós, f. 21. nóvember 1912, d. 8. júní 2012, Sigurþór, f. 1. júlí 1915, d. 27. apríl 2008, Guðfinna, f. 30. október 1916, d. 18. febrúar 2002. Uppeld- issystir og bróðurdóttir Guð- finna Sveinsdóttir, f. 15. júní 1928. Elín giftist 28. nóvember 1941 Óskari Sveinssyni sjó- manni og áttu þau lengst af heima í Suðurgötu 68. á Siglufirði, en það hús byggðu þau. Elín og Óskar eignuðust saman þrjú börn. Börn þeirra eru Haukur Óskarsson, hús- gagnabólstrari, f. 12.1. 1941. Maki: Jóna Maggý Þórð- ardóttir, f. 24.2. 1947. Börn þeirra Óskar Hauksson, f 25.6. 1963. Maki: Ragnhild Holtskog, f. 22.7. 1962. Halldóra María Hauksdóttir, f. 7.11. 1965. Maki: Klemenz Júlínusson, f. 26.9. 1962. Viðar Þór Hauksson, f. 30.4. 1971. Maki: Guðrún Edda Haraldsdóttir, f. 15.8. 1977. Hilmar Hauksson, f. 28.4. 1974. Maki: Elísabet Ólafsdóttir, f. 5.11. 1977. Börn Óskars: Elín María, f. 18.11. 1981. Maki: Thomas Faye, f. 22.8. 1974, börn þeirra: Sander Elías Faye, f. 23.9. 2007. Síenna María Fa- ye, f. 18.8. 2009. Haukur Axel, f. 28.7. 1989. Unnusta: Michelle Bakstad, f. 22.11. 1989. Egill Arnar, f. 23.8. 1992. Róbert Andri, f. 31.3. 1994. Börn Hall- dóru Maríu: Hjörtur Rósant, f. 2.3. 1982. Maki: Hrafnhildur Sif Sigurðardóttir, f. 17. 3. 1983. Börn þeirra: Alexander Rósant, f. 7.3. 2006, Leon Rósant, Sig- urrós Carmen. Ragnar Ingi, f. 29.11. 1988. Unnusta: Móeiður Úna Ármannsdóttir, barn Jóna Maggý. Börn Viðars Þórs eru Fjóla Guðrún, f. 26.7. 2003, Benedikt Þór, f. 12.5. 2007. Börn Hilmars: Róshildur Agla, Hilmar Máni og Bjarki Þór. Guðlaug Óskarsdóttir, leik- skólakennari, f. 1. júní 1942 á Siglufirði. Maki II, Sumarliði Karlsson, f. 24. mars 1945. Maki I Jóhannes Wilhelmus (Willy ) Hanssen, f. 27. okt. 1928, í Geleen, Hollandi, d. 5. apríl 1987. Börn þeirra: Davíð Stefán Hanssen, f. 10. ágúst 1970. Ísrael Daníel Hanssen, f. 23. júlí 1977. Maki: Harpa Hanssen Júlíusdóttir, f. 29. okt. 1976. Fósturbörn Guðlaugar og Willys voru fimm. Börn Davíðs: Kara Rut, f. 12. des. 1990. Sam- býlismaður hennar er Birgir Snær Guðmundsson, f. 18. sept. 1984. Barn þeirra: Markús Leví Birgisson. Daníela Guðlaug, Jó- hannes Micah, f. 14. feb. 1997. Esther María, f. 11. ágúst 2000. Ezekiel Jakob, f. 17. feb. 2002. Börn Israels: Andrea Ösp, f. 17. sept. 2005. Júlíus Bjarki, f. 24. jan. 2009. Guðfinna Óskars- dóttir, sjúkraliði, f. 18. des. 1946 á Siglufirði, d. 20. maí 2009. Maki: Magnús Þór Jón- asson, f. 4. maí 1947. Börn þeirra: Þórarinn, f. 18. maí 1974. Elín Ósk, f. 23. sept. 1975. Sævar Þór, f .31. júlí 1984. Útför Elínar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 16. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Elskuleg móðir mín er komin í höfn þá er hún þráði. Hún kvaddi okkur með fulla meðvit- und og bros á vör. Nú þakkar og lofar hún Drottni miskunn hans og dásemdarverk. Já hún elskaði Jesú og vissi hvert hún var að fara. Hún þráði það alltaf heitt að ástvinir hennar myndu fá að upplifa þá reynslu, sem hún fékk fyrir mörgum árum. Að taka á móti Jesú sem frels- ara sínum í hjarta sitt. Mamma elskaði fallega fjörðinn sinn. Alltaf bað hún á hverjum degi fyrir öllum íbúum og allri starf- semi Siglufjarðar. Á Siglufirði vildi hún vera þótt enginn ætt- ingi hennar byggi þar. Hún vildi vera í góða húsinu sínu með fal- lega útsýninu. Já, mamma fann það svo sterkt innra með sér að á þessum stað ætti hún að vera. Mamma saumaði og prjónaði allt á okkur systkinin þegar við vorum lítil. Um sjötugt fór hún að sníða og sauma á litlu fátæku börnin úti í heimi. Margt ynd- islegt fólk gaf henni efni, tvinna, blúndur og fleira til að nota þegar fréttist af sauma- skap hennar. Þegar stefnan var tekin á Siglufjörð beið okkar oft heit kjötsúpa eftir langa ferð að sunnan en við eigum öll heima á Suðurlandinu. Alltaf var opið hús fyrir alla sem þurftu gist- ingu. Mamma elskaði að gera öllum gott og alltaf var nóg til með kaffinu ef einhver kom í heimsókn. Þegar kom að því að halda skyldi suður aftur og allir búnir að nærast vel fór mamma alltaf með okkur inn í stofu. Þar opnaði hún Biblíuna sína og las eitthvert gott orð, bað svo ferðabæn fyrir okkur. Þetta eru dásamlegar minningar sem ég mun aldrei gleyma. Þín einlæg dóttir, Guðlaug. Í dag kveð ég ástkæra tengdamóður mína, Elínu Jón- asdóttur, sem lést 14. febrúar á Heilbrigðisstofnun Fjalla- byggðar 104 ára að aldri. Elín var ótrúlega dugleg kona en hún bjó ein í húsinu sínu að Suðurgötu eftir að eig- inmaður hennar Óskar féll frá og fór ekki á sjúkrahúsið fyrr en hún var orðin 98 ára gömul. Oft höfðum við áhyggjur af henni aleinni á Suðurgötunni í vondum veðrum. En þegar við hringdum í hana fengum við ávallt sama svarið: Nei, það er allt í fína með mig en það sést ekki út um gluggana það er svo vont veð- ur. Henni bauðst að fara á elli- heimilið þegar hún var 95 ára, hún hélt nú ekki, hún væri ekki orðin nógu gömul fyrir það, þar væri bara gamalt fólk. En hún hafði sín áhugamál sem voru að sauma og prjóna og naut ég góðs af því. Með mín fjögur börn var gott að fá sokka og vettlinga svo ég tali nú ekki um ullarnærfötin sem hún prjónaði, barnabörnin kunnu líka að meta það og þannig hafði einn þriggja ára á orði þegar hann opnaði jóla- gjöfina eitt árið: „Þetta er nyt- samleg gjöf.“ Okkur er þakklæti efst í huga þegar við hugsum til El- ínar. Elsku Elín, hjartans þakkir fyrir hvað þú varst börnunum okkar góð amma og ávallt tilbú- in að taka á móti þeim enda þótti þeim ekki leiðinlegt að koma til ykkar og fara á skíði og á sumrin að veiða í Hólsánni, alltaf eitthvað að gera hjá afa og ömmu á Siglufirði. Hún fylgdist vel með okkur öllum og öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og var afar stolt af sínum afkomendum. Hún hafði það einnig fyrir vana að fara ávallt með ferðabæn fyrir okkur áður en við lögðum af stað í bæinn. Elsku Elín, við eigum eftir að sakna þín mikið. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Hjartans þakkir til starfs- fólks Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar fyrir kærleiks- ríka og góða umönnun tengda- móður minnar og ekki síður fyr- ir það hve yndisleg þið reyndust okkur. Elín, hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Jóna. Þá hefur tengdamóðir mín kvatt þennan heim og komin í dýrðina hjá Guði. Eftir öll þessi tæp 105 ár sem hún lifði þráði hún ekkert heitar en ganga á perlustrætum himinsins. Nú eru rúm 40 ár síðan ég kynntist Elínu fyrst og má segja að það hafi verið með nokkuð sérstökum hætti, því dóttir hennar, Guðfinna, sem síðar varð eiginkona mín, kom til Eyja til að vinna þar stuttan tíma á sjúkrahúsinu. Við kynntumst fljótlega og úr varð farsælt hjónaband í í 37 ár – en það sem kannski var svolít- ið sérstakt var að ég hitti ekki væntanlega tengdaforeldra mína fyrr en aðeins nokkrum dögum fyrir brúðkaupið, enda áttu þau heima á Siglufirði en ég í Eyjum og á þessum tímum var fólk ekki alltaf á ferðinni eins og er í dag. En allt fór þetta vel og varð okkur mjög vel til vina og þau trúðu mér fyrir yngsta afkvæm- inu sínu allt til enda, að hún lést 20. maí 2009, á 37. brúðkaups- degi okkar – langt um aldur fram. Þá var Óskar látinn fyrir nokkuð mörgum árum, en Elín lifði dóttur sína. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka þér, Elín mín, fyr- ir góða vináttu, fyrir öll góðu samtölin sem við áttum saman og á stundum í einrúmi. Þá gát- um við opnað okkur og sagt hvort öðru allt af létta, án þess að það hefði nokkur eftirköst. Og fyrir það er ég þakklátur. Ég bið algóðan Guð að blessa minningu góðrar tengdamóður og þakka fyrir allt og allt. Þinn tengdasonur, Magnús á Grundarbrekku. Í dag kveðjum við ömmu El- ínu sem var okkur afar kær. El- ín var hjartahlý kona sem ávallt hafði hag annarra í fyrirrúmi. Hún var alltaf til staðar fyrir sína nánustu en saumaði einnig fatnað fyrir bágstödd börn með- an hún hafði heilsu til. Minning hennar lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Okkur langar að kveðja Elínu með ljóði sem okk- ur finnst lýsa henni einkar vel. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum aamma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guð geymi þig og varðveiti. Hilmar, Elísabet og fjöl- skylda. Dóra, Klemenz og fjölskylda. Viðar Þór, Guðrún Edda og fjölskylda. Óskar, Ragnhild og fjölskylda. Elsku amma á Sigló. Nú ertu komin til þíns himneska föður eins og þú þráðir svo heitt. Sett- ir allt þitt traust á hann, alföð- urinn á himnum, og þjónaðir honum til hinsta dags. Við munum ekki gleyma þér og minnumst góðra stunda bæði á Sigló og í Eyjum. Þú varst alltaf tilbúin að rétta einhverju góðu að okkur – seint mun gleymast þegar Þórarinn var smástubbur í heimsókn hjá þér og var að brölta upp stigann upp á efri hæðina og tautaði fyr- ir munni sér „amma kengi“ … þetta áttir þú svo að skilja – hann vildi fá mjólk og kleinu hjá ömmu, sem hann auðvitað fékk. Þá gleymist heldur ekki, þeg- ar nafna þín Elín Ósk veiktist fimm ára gömul og foreldrar hennar þurftu að fara með hana til Bandaríkjanna í stóra skurð- aðgerð, þá létuð þið Óskar ykk- ur ekki muna um að koma til Eyja og halda heimili með Þór- arni, sem þá var nýbyrjaður í skóla, og vera vel á þriðja mán- uð í Eyjum í þessum erinda- gjörðum. Fyrir allt þetta viljum við þakka þér amma okkar og svo margt annað eins og prjóna- sokkana og vettlingana sem þú sendir okkur og hlýjuðu okkur á köldum vetrardögum. Elsku amma. Við þökkum þér fyrir allt og allt og biðjum góð- an Guð að blessa minningu góðrar ömmu. Barnabörnin í Eyjum, Þórarinn, Elín Ósk og Sævar Þór. Eftir langa ævi og farsæl 104 ár kvaddi Elín börnin sín tvö og hvarf til annars staðar. Ég hafði kvatt Elínu nokkrum dögum áð- ur en hún var elsta safnaðar- barn mitt og jafnframt elsti meðlimur hvítasunnusafnaðar- ins á Íslandi. Ég hélt nokkuð reglulegu sambandi við hana eftir að ég flutti norður. Þá var Elín komin yfir nírætt en bjó samt ein í sínu eigin húsi. Ef gest bar að garði opnaði hún eldhúsgluggann og varpaði nið- ur húslyklunum og þannig bauð hún fólk velkomið inn. Þeir sem þurftu næturgist- ingu sáu um sig sjálfir og gátu valið um herbergi eða hvílurúm að eigin vali nema þar sem saumavélin var. Í því herbergi voru gjarnan staflar af fötum sem Elín pakkaði síðan í kassa og sendi til Afríku eða Indlands svo börnin þar mættu klæðast í þessi ljómandi föt. Þessi iðja hennar vakti undrun og athygli manna svo mikla að þátturinn „Ísland í dag“ sá ástæðu til að gera störfum Elínar skil og sýna þjóðinni hvers megnug kona á tíræðisaldri var í hjálp- arstarfi og að hlúa að náung- anum. Hún lifði tvær heimsstyrjald- ir, frá torfbæ og hlóðaeldhúsi til rafvæðingar og sjálfvirkni í tækjakosti heimilanna. Hún fæddist á tíma þegar allt var farið fótgangandi eða á hesti en kveður veröld sem gerði tunglið að áfangastað. Hún þurfti einnig að velja sér lífsskoðun því margt var í boði á hennar ævi. Bæði komu póli- tískar útópíur um Sovétin eða nazismann sem og tískustrauma hversdagsins sem áttu að fylla sál mannsins. Ein var sú stefna sem Elín heillaðist af og það var kristin vakningartrú. Hún tók sér stöðu með hvítasunnusöfnuðin- um og lét Krist duga sér. Sem ung stúlka var hún send á ann- an bæ og reyndi þar stöðu hins vandalausa. Hún tilheyrði barn- mörgu heimili og varð að láta sér lynda að vera ekki meðal systkina. Þegar kom að ferm- ingunni þá beið hennar engin veisla né gjöf frá fósturforeldr- um því tíðarandinn var þannig. En sú stund kom að hún vildi frelsast og gefast Jesú Kristi. Það var eftir eina vakningasam- komu á Siglufirði. Þá var hún gift og boðskapur trúboðans hafði gripið huga hennar. Í eld- húsinu heima kraup hún við stól og bað innilega um handleiðslu Jesú í gegnum lífið og hún fengi þekkt hann sem frelsara sinn. Þessu augnabliki gleymdi hún ekki. Fjölskyldan stækkaði og ald- urinn færðist yfir. Hún orðin ekkja og trúlega stóð á níræðu þegar mikið ættarmót var hald- ið á Heimalandi undir Eyjafjöll- um, en það var hennar æsku- sveit. Þegar þessi mikli hópur ættingja og afkomenda var þar saman kominn fór hún upp á sviðið og sagði sögu sína og vitnaði um Jesú Krist. Hennar áskorun var sú að þau öll mættu gefast Jesú og vita að: „hvort sem ég lifi eða dey þá er ég Drottins“! Eftir þessa ræðu sagði hún börnum sínum frá draumi sem hana hafði dreymt um það að standa frammi fyrir stórum skara og vitna um Jesú. Þarna sá hún drauminn rætast. Enn vitnar Elín þótt látin sé því hún undirbjó útför sína og valdi þá sálma sem opinbera hug henn- ar, trú á Jesú. Með þessum minningum kveð ég safnaðarbarn sem þráði að gera Jesú dýrlegan. Snorri í Betel. Elín Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.