Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 44

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 Það er snemma á hryssingslegu vori fyrir nokkrum árum. Við, nemendur Þorvaldar Þorsteinssonar í námskeiðinu Skapandi skrifum, erum að tínast út úr húsi síðla kvölds. Við erum alls konar fólk á öllum aldri sem höfum kannað innviði okkar, notið okkar innri heims og þess sem þar er að finna og leyft því að birtast í skrifum. Við erum öll búin að skemmta okkur konunglega. Sumir eru ennþá bergnumdir, aðrir óðamála, einn í öðrum heimi, annar ringlaður og svo framvegis. Í alls kyns „misjöfnu ástandi“ heldur hver og einn heim á leið og hlakkar í ofvæni til næsta tíma. Það er nefnilega þannig að eftir svona kvöld með Þorvaldi verður maður aldrei aftur alveg samur, ekkert verð- ur nokkurn tíma aftur alveg eins, í allri skemmtilegustu merkingu þess orðs. Kæri Þorvaldur, þú hefur opnað dyr að ríkidæmi sögunn- ar og þeim óendanlegu mögu- leikum, sem búa í brjósti hvers manns, fyrir miklum fjölda fólks. Þú hefur kennt okkur að „treysta og njóta“ okkar innri heims. Þú hefur kynnt fyrir okkur galdurinn sem gerist við hina skilmálalausu játningu þess sem skrifar gagnvart því sem kann að birtast alveg óvænt. Þú hefur kynnt okkur fyrir sköpuninni sjálfri í öllu sínu veldi. Þú hefur stefnt nemendum þínum til spennandi funda við sjálfa sig, en um leið, í allri nálgun þinni á viðfangsefni, gef- ið þeim það besta og fallegasta af þér. Gefið okkur næmt og frjótt hugvitið, húmorinn, ein- lægnina, örlætið, rausnarskap- inn og hjartahlýjuna, með þessu öllu hefurðu óspart hvatt og stutt okkur. Barnið hefur alltaf verið þér hugleikið. Að allir og einkum börn eigi skilið það besta. Það besta í sér! Þú hefur haldið fram af einurð þörfinni fyrir skapandi skólastarf og látið okkur í té hollar ábendingar um að núverandi skólakerfi valdi viðskilnaði barna frá sjálfs- prottnu sköpunareðli sínu og að þau fari þannig á mis við ham- ingjuna sem felst í sköpun og uppgötvunina og undrunina sem henni fylgir. Þú vilt að barnið sjálft hafi forgang í því óvænta og ófyrirsjáanlega ævintýri sem sköpunin er. Svo margvíslega, af ein- stökum kærleika þínum og trúnaði gagnvart sköpuninni, hefur þú kennt og miðlað okkur af óþreytandi áhuga og örlæti Þorvaldur Þorsteinsson ✝ Þorvaldur Þor-steinsson fædd- ist á Akureyri 7. nóvember 1960. Hann lést á heimili sínu í Antwerpen 23. febrúar 2013. Þorvaldur var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju 15. mars 2013. hvernig hún býr í okkar innsta eðli, að hún er í rauninni „við“, á svo undur réttan og eðlilegan máta. Ég er þess full- viss að í heimkynn- um almættisins býrðu við alla þá gnótt sem þú hefur gefið öðrum. En jafnframt dvelur þú ávallt með okkur sem kynnt- umst þér, hjartahlýr, fallegur og skemmtilegur, þú ert stjarna okkar, tungl og sól, þú ert æv- intýrið, svo algerlega einstakur, svo algerlega ómissandi. Guð og englar umvefji þig og ástvini þína. Með innilegu þakklæti og kveðju, Kristín Guðmundsdóttir. Þorvaldur Þorsteinsson verð- ur öllum þeim minnisstæður, sem kynntust honum í eigin persónu. Hann var í senn al- vörugefinn og kankvís, fræði- maður og hvunndagslegur en umfram allt ljúfur og hæglátur í öllum samskiptum. Í öllu starfi sínu sem rithöfundur, kvik- myndagerðarmaður, kennari og ekki síst sem myndlistarmaður dró Þorvaldur upp þá sjálfs- mynd að hann væri í raun ekki mikill gerandi, heldur eins kon- ar miðill fyrir umhverfi sitt, strauma þess og stefnur, við- horf og vandamál: hans hlut- verk væri að koma með óvæntar ábendingar og margræðar at- hugasemdir fremur en að leggja til lausnir eða leiðarstef. Listsköpun Þorvaldar var fjölskrúðug og endurspeglaði öðru fremur þakklæti til alls al- mennings, fólksins sem hann taldi allt í senn: undirstöðu list- arinnar, efnivið hennar, eigend- ur og þá sem að endingu mundu meta gildi hennar, jafnt rakara sem ráðherra, börn sem bisk- upa. Ég verð ævinlega þakklát- ur fyrir að fá að kynnast þess- um viðhorfum Þorvaldar af eigin raun, m.a. í samtölum og samstarfi við undirbúning og uppsetningu stórrar sýningar á verkum hans í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, sem fram fór sumarið 2004. Sýning- unni gaf hann af alkunnri hóg- værð sinni og glettni yfirskrift- ina „Ég gerði þetta ekki“ og hélt því þannig fram að hann hefði sem listamaður gert næsta lítið, en þó tekið eftir ýmsu og sett fram í nýju sam- hengi, sem hann vonaðist til að gæti orðið að eftirminnilegri líf- reynslu fyrir gesti sýningarinn- ar. Sú varð líka reyndin. Við fráfall Þorvaldar Þor- steinssonar á besta aldri hafa Íslendingar misst einn áhuga- verðasta listamann sinnar kyn- slóðar og sérstakan talsmann gildis lista og menningar fyrir þjóðina alla. Fjölmargir hafa misst náinn vin og félaga, sem verður sárt saknað. Þó er missir fjölskyldunnar mestur, og því er hugurinn hjá Helenu, börn- um og barnabörnum. Eiríkur Þorláksson. Í moldinni eru ótal fræ falin, sem reyna að brjótast fram í dagsljósið. Sum ná að spíra, að spretta upp gegnum þungan möttulhjúp þröngsýninnar, önn- ur bíða síns tíma. Það kemur að því um síðir, að litli frjóanginn, sem var kaffærður af stöðnuði fargi, hans tími til að komast gegnum skelina, að leita til him- ins, sá tími mun koma. Augu barnsins, opinn hugur, að þora að sjá allt frá nýju sjónarhorni; tengibrautir eru óræðar og óteljandi, en hann gaf okkur þær samt svo margar. Skapandi hugsýn sem hann deildi með öll- um sem voru svo lánsamir að eiga samneyti við hann. Og hann miðlaði þessu til okkar sem fengum að taka þátt í æv- intýri hans og verða snortin af töfrasprota hans: Vertu óhræddur, þorðu að vera þú sjálfur, þá opnast þér víðerni veraldarinnar og þú ert orðinn þátttakandi í nýrri sýn orð- mynda á tilveruna. Að horfa gegnum holt og hæðir, í undirdjúpin, að innstu rótum grómagns náttúrunnar, til himins inn í eilífðina og leyfa okkur að eignast hlutdeild í mynd hans af alheiminum. Að fara á flug um þessar grundir mennskunnar og vera óhrædd- ur að sýna okkur, að mennskan á heima þar. Bregða upp fyrir okkur sjónarhorni barnsins, sem kallar á að fá að vera með í þessum undraheimi. Þakka þér allt. Sigurður St. Helgason. Kveðja frá Borgarleikhúsinu Fallinn er frá einn fremsti listamaður þjóðarinnar, Þor- valdur Þorsteinsson. Við ótíma- bært fráfall hans er skilið eftir djúpt skarð í hópi íslenskra listamanna. Þorvaldur starfaði jöfnum höndum sem skáld og myndlist- armaður. Í leikhúsverkum skáldsins sameinaðist þetta tvennt. Hann var djúpvitur samfélagsrýnir og brá gjarnan upp spegli þar sem áhorfendur mættu sjálfum sér og þurftu að líta í eigin barm. Þorvaldur var listamaður orðsins, hann lék sér oft með innihaldslaus samtöl þar sem persónur höfðu ekkert merkilegt að segja, en í öllu merkingarleysinu hlutu orðin og hið ósagða djúpa þýðingu. Undir yfirborðinu, á milli lín- anna og í þögninni var allt ann- að yfirborð, dýpri merking og ný saga – nýr sannleikur. Borgarleikhúsið á Þorvaldi mikið að þakka. Þrjú leikrita hans voru skrifuð fyrir leikhúsið og naut starfsfólk þess að tak- ast á við þessi krefjandi verk- efni og minnist ánægjulegs samstarfs við leikskáldið. Blíð- finnur í leikgerð og leikstjórn Hörpu Arnardóttur árið 2001, And Björk of course í leikstjórn Benedikts Erlingssonar árið 2002 og hlaut Grímuverðlaunin það árið og loks var Sekt er kennd frumsýnd 2004 í leik- stjórn Stefáns Jónssonar. Allt voru þetta heillandi leikverk, hvert á sinn hátt. Þau snertu strengi í hjörtum áhorfenda og lifa enn í fersku minni margra. Sjálfur minnist ég Þorvaldar með mikilli hlýju. Ég heillaðist fyrst af örleikritum hans og Vasaleikhúsinu sem var í út- varpinu fyrir allt of mörgum ár- um. Við Þorvaldur áttum mörg gefandi samtöl um leikhúsið áð- ur en við unnum fyrst saman ár- ið 2006. Þá skrifaði hann leik- ritið Lífið – notkunarreglur fyrir Leikfélag Akureyrar, þar sem ég gegndi starfi leikhús- stjóra á þeim tíma. Strax í upp- hafi var ljóst að Þorvaldi lá mik- ið á hjarta og hann hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og listinni. Fyrir honum var leik- húsið aldrei léttvægt, þótt það væri oft vettvangur fyrir bull- andi húmor. Hann vildi taka á málefnum líðandi stundar, vekja áhorfendur og hrista þá til. Þótt við værum ekki alltaf sammála og tækjumst stundum á um leiðir bar aldrei skugga á vin- áttu okkar og virðingu fyrir við- horfum hvor annars. Þorvaldur elskaði leikhúsið og listina en það, ásamt sannfæringu hans og óbilandi metnaði, heillaði mig. Þorvaldur skrifaði nokkra óborganlega söngtexta fyrir sýninguna sem Megas samdi lög við. Sum þeirra lifa enn góðu lífi, til dæmis hið undur- fagra Lengi skal manninn reyna. Án vafa minnast margir Þor- valdar fyrir hugvekjur sem hann flutti við ýmis tækifæri. Hann var magnaður hugsuður og kennari. Í honum brann eld- ur og hann átti auðvelt með að kveikja í þeim sem á hann hlýddu. Ég mun aldrei gleyma nokkrum slíkum hugvekjum þar sem Þorvaldur fjallaði um listina, sköpunina og lífið. Hann hafði einstakt lag á að fá okkur til að sjá hlutina í nýju ljósi. Fyrir mína hönd og starfs- fólks Borgarleikhússins votta ég Helenu og öðrum aðstand- endum innilega samúð. Lista- verkin munu lifa um ókomna tíð. Blessuð sé minning Þor- valdar Þorsteinssonar. Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri. Elsku strákurinn. Uppáhald engla og manna. Það er erfitt að trúa því að þú hafir kvatt þetta jarðneska líf svo skyndilega, en þó ekki, auð- vitað var þín þörf annars staðar. Þú skilaðir þínu hér og gott betur. Mikið eru þau heppin þarna í Ljósheimum að fá þig til liðs við sig. Ég veit það hefur birt við komu þína þangað. Ann- an eins mann, gæddan jafnmikl- um hæfileikum og þú varst gæddur, er fágætt að finna. Þar af leiðandi verða öll orð er ég set á blað um þig svo ógurlega fátækleg í samanburði við manninn, þig. Í mínum huga varst þú einn fullkomnasti mað- ur sem ég þekkti, blíður, góður, skemmtilegur og greindur, auk þess ofurfallegur jafnt að innan sem utan. Þú varst engum líkur. Í hvert skipti sem ég hitti þig eða heyrði í hlýnaði mér alltaf á alveg nýjum stöðum í hjartanu. Það segir svo mikið um þig. Tíminn þegar ofurlitli Blíð- finnur, hann Bóbó okkar, var að fæðast er saga sem ég mun geyma í hjarta mínu um ókomin ár. Þegar hann varð til í skrifum okkar á milli, ég sendi þér spurningu áður en ég fór að sofa og spratt svo á fætur næsta dag, full af eftirvæntingu eftir að lesa hvað Blíðfinnur hafði að- hafst meðan ég svaf. Stundum var það ekki neitt, því hann var víst svo þreyttur. Þú sagðir mér að opna náttborðsskúffuna mína varlega, því þar svæfi hann og ég gæti heyrt litlar hrotur ef ég hlustaði vel. Og alveg rétt, þarna svaf hann angurvært, í bómull, og hraut. Þetta var dásamlegur tími sem mun aldrei gleymast. Frek- ar en minning mín um þig. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Helena, Jóna Lísa og aðrir ástvinir, ég sendi ykkur styrk og votta mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Farðu í friði vinur minn kær. Þakka þér fyrir Bóbó, barnið og kærleikann. Þín vinkona, Linda Pétursdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, ÞORSTEINS ELÍSSONAR, Laxárdal, síðast til heimilis að Glósölum 7, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deildum K-2 og L-2 á Landakoti fyrir góða umönnun. Guðný S. Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Jón Einarsson, Karólína D. Þorsteinsdóttir, Böðvar Stefánsson, Elínborg Þorsteinsdóttir, Bergvin Sævar Guðmundsson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Böðvar Sigvaldi Böðvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, systir, mágkona og frænka, BERGLIND VALDIMARSDÓTTIR, Rósarima 5, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning fyrir börn hennar: Kt. 270887-2609, 0114-05-065183. Sara Sigurjónsdóttir, Helgi Már Veigarsson, Sindri Sigurjónsson, Sölvi Sigurjónsson, Arnhildur Karlsdóttir, Hilmar Breki Helgason, Kolbrún J. Kristjánsdóttir, Valdimar Ásgeirsson, Kristján Gunnar Valdimarsson, Valdimar Agnar Valdimarsson, Helga Rúna Péturs, Sigurborg Valdimarsdóttir, Jón Ólafsson, Ásgeir Valdimarsson, Hulda Jeremíasdóttir, systkinabörn. ✝ Kæru ættingjar og vinir, innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og útför STEINÞÓRS INGEBRIGT NYGAARD. Sérstakar þakkir til lögreglukórsins, starfs- félaga og fyrir frábæra þjónustu Kópavogskirkju. Ásta H. Haraldsdóttir, Erlendur Steinþórsson, Shou-Ping Wendy Chen, Andrés R. Ingólfsson, Guðlaug Helga Konráðsdóttir, Ása Andrésdóttir, Auður Ásta Andrésdóttir, Benjamin Beier, Margrét Erlendsdóttir, Arthur Erlendsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir, amma og systir, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR sérkennari, Logafold 65, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 8. mars. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 18. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á LÍF styrktar- félag og Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík. Brynjúlfur Erlingsson, Ársól Margrét Árnadóttir, Björn Brynjúlfsson, Hildur Björk Kristjánsdóttir, Erlingur Brynjúlfsson, Anna Lilja Oddsdóttir, Árni Brynjúlfsson, barnabörn og aðrir ættingjar. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR ARTHÚR GESTSSON, sem lést í faðmi fjölskyldunnar á deild 3 B Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 10. mars, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 18. mars kl. 13.00. Björgvin Kristjánsson, Sigríður Ingólfsdóttir, Guðný Elíasdóttir, Grétar Páll Stefánsson, Erla Sveinbjörnsdóttir, Kristín Þóra Sigurðardóttir, Haraldur Ragnarsson, Salbjörg Sigurðardóttir, Guðmundur Halldórsson, Gestur Sigurðsson, Íris Huld Guðmundsdóttir, Linda Sigurðardóttir, Páll J. Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður míns, tengdaföður, afa og bróður, BRAGA FREYMÓÐSSONAR. Steinunn Freyja Freymóðsson, Howard E. Green, Stephen Bragi Danley, James Mixen Danley, Sarah Sigrid Danley, Árdís J. Freymóðsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.