Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 60

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 60
LAUGARDAGUR 16. MARS 75. DAGUR ÁRSINS 2013  Myndlistarmaðurinn Guðmundur R. Lúðvíksson er einn 187 myndlistar- manna sem sýna munu á afar stórri myndlistarsýningu, NordArt 2013, sem fram fer í Carlshütter í Þýska- landi 8. júní til 6. október. 2.458 listamenn sóttu um að sýna og fyrr- nefndur fjöldi var valinn úr af dóm- nefnd. Sýningin mun fara fram á 120 þúsund fermetra svæði, innan- sem utandyra. Sýninguna sækja mörg hundruð þúsund manns á ári hverju. Ljósmynd/Spessi Valinn til þátttöku á NordArt í Þýskalandi  Rakel Blomster- berg, fatahönn- unarnemi við nýsjálenska skól- ann Otago Poly- technic, hreppti fyrstu verðlaun fyrir fatahönnun sína á tískuviku iD í Dunedin á Nýja- Sjálandi í vikunni, iD International Emerging Designer Awards. 30 fata- hönnunarnemar sýndu verk sín. Hlaut fyrstu verðlaun á iD-tískuvikunni  Tónleikar Johns Grants og hljóm- sveitar á tónleikastaðnum Heaven í Lundúnum 14. mars sl. fá fullt hús stiga í dagblaðinu Fin- ancial Times. Segir m.a. að Grant búi yfir þeim sjaldgæfa hæfi- leika að miðla djúpum sársauka með tungu- máli tónlistarinnar án þess að hlust- endur fyllist ang- ist. Grant lofsunginn í FT Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Sýning um Snorra á hvergi betur heima en hér. Það skapast sérstök nánd fyrir gesti að koma á staðinn og rifja upp atburði úr ævi Snorra sem gerast hér á staðnum og jafnvel sjá ummerki í landinu. Hér talar allt einni tungu,“ segir Óskar Guðmundsson rithöfundur sem er höfundur nýrrar sýningar um ævi Snorra Sturlusonar í Snorrastofu í Reykholti. Sýningin sem nefnist einfaldlega Saga Snorra verður opnuð með athöfn í dag. Farið er í gegnum ævi Snorra og teknir sérstaklega fyrir nokkrir at- burðir á hans dögum og áhrif hans á menningu Norður-Evrópu. Óskar segir að tilgangurinn sé að vekja áhuga nútímafólks á Snorra og arf- leifð hans. Unnt er að fara um líf hans á nokkrum mínútum en einnig dýpra í ýmsa þætti og verja til þess klukku- stundum og jafnvel dögum með að- stoð spjaldtölva. Vígásar til verndar Gestir komast í vébönd sýning- arinnar með því að ganga undir fag- urlega útskorna og fjörlega málaða vígása. Höfundar þeirra sækja hug- myndir sínar til miðalda. Óskar segir að dyraumbúnaðurinn sé liður í því að sýna litauðgi miðalda. Vígásar eru tré sem ætlað er að varna ófriðarmönn- um inngöngu í hús. Þeir koma fyrir í sögunum en er ekki lýst. Ein frásögn- in tengist Snorra í Reykholti beint. Innheimtumenn hans gátu ekki geng- ið eftir fornu fémáli á Stað í Hrútafirði vegna þess að þar voru vígásar í durum. Á sýningunni eru fáeinir munir úr fornleifauppgreftri í forna kirkjustæðinu í Reykholti. Það er gler og leir frá þeim stöðum í Evrópu sem slíkt gerðu best. Munirnir láta ekki mikið yfir sér en Óskar vekur athygli á að þeir gefi til kynna glæsileik og evrópsk tengsl. „Við vorum í Evrópusambandinu í vissum skilningi. Ég segi þetta ekki aðeins af því að ég er krati,“ segir Óskar. Hann útskýrir þessi orð með því að nefna tengslin í gegn um kaþ- ólsku kirkjuna. Vegna hennar hafi leiðir okkar legið til Niðaróss og Rómar. Þá hafi Íslendingar í raun verið í konungssambandi við Noreg og höfðingjar hér barist um hylli kon- ungs í innanlandsátökum. Loks getur hann um sameiginlegt tungumál og menningu sem Íslendingar áttu með Norðmönnum og fleiri norrænum þjóðum við strendur Evrópu. Hér talar allt einni tungu  Ný sýning um Snorra Sturluson opnuð í Reykholti Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Undir drekahöfðum Óskar Guðmundson stendur í dyrum nýrrar sýningar um Snorra Sturluson í Reykholti. „Öll miðlun er sköpun í sjálfu sér en mér finnst allir miðlar þrengja að mér,“ segir Óskar þegar hann er spurður að því hvort ekki sé kær- komið fyrir fræðimanninn og rithöfundinn að fá tæki- færi til að miðla þekk- ingu úr margra ára vinnu við Snorra með því að setja upp sýningu um ævi hans. „Ég vil alltaf segja miklu meira en ég get, hvort held- ur er í bók eða sýningu. Ég er rétt að byrja að miðla Snorra Sturlu- syni og langar að sjá hann í alls- konar formi, til dæmis í kvikmynd- um og sjónvarpi. Ævisaga Óskars um Snorra kom út 2009 og hann hefur síðan hald- ið áfram að vinna við efnið. Allir miðlar þrengja að mér ÓSKAR GUÐMUNDSSON HEFUR UNNIÐ LENGI VIÐ SNORRA Snorri hafði Reykholt sem höfuðbýli. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Hvaða klám skoða Íslendingar mest? 2. Meðhöndluð „eins og leikfang“ 3. Sjáðu Evróvisjón-myndbandið 4. Lét börnin smakka sæði sitt FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir NV-lands og léttir til. Frost 1 til 10 stig, mest inn til landsins, en sums staðar frostlaust með S-ströndinni að deginum. Á sunnudag Norðan 8-13 m/s og él við A-ströndina, en annars hægara og léttskýjað. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. Á mánudag og þriðjudag Norðaustanátt, yfirleitt 8-13 m/s og él N- og A-lands, en ann- ars bjart með köflum. Frost víða 2 til 7 stig. „Það er auðvitað mikil tilhlökkun að mótið sé að byrja og það er óhætt að segja að mann sé farið að kitla í lapp- irnar,“ sagði Matthías Vilhjálmsson leikmaður Start sem er nýliði í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann er einn þrettán íslenskra knatt- spyrnumanna sem leika í norsku úr- valsdeildinni en keppni í henni hófst í gærkvöld. »4 Matthías er farið að kitla í lappirnar „Það er búinn að vera fínn gangur í þessu hjá okkur og sérstaklega nú eftir ára- mótin. Við höfum unnið fimm af síðustu sex leikjum og þetta lítur bara ágætlega út. Þetta er hinsvegar jöfn deild,“ segir Aðalsteinn Eyj- ólfsson, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Eisenach sem á í harðri keppni um að flytjast upp úr 2. deildinni í vor. »2 Stefnan sett á efstu deild „Ég á ennþá þrjú ár eftir af mínum samningi. Ef liðið fellur þá er slæma hliðin á málinu sú að vera ekki lengur að spila í efstu deildinni á Spáni. Ef við skoðum hins vegar bjartari hlið- ina á málinu þá mun ég væntanlega fá fleiri tækifæri til að njóta mín á vellinum og þroskast frekar sem leik- maður,“ segir Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, og leikmaður spænska liðsins Manresa sem situr á botni spænsku úrvals- deildarinnar í körfu- knatt- leik. »1 Fær væntanlega fleiri tækifæri til að spila

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.