Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013
Heilsa og hreyfing
Þ
að er óhætt að fullyrða að
bandaríski læknirinn, trúðurinn
og hugsjónamaðurinn Patch
Adams er ekki eins og fólk er
flest. Hann ferðast um heiminn
300 daga á ári og hefur gert í bráðum 30
ár. Á ferðum sínum breiðir hann út boð-
skap sinn um umhyggju og gleði. Adams,
sem er á sjötugsaldri, er með grátt og
blátt hár í síðu tagli langt niður á bak.
Hann klæðir sig dags daglega eins og
trúður. Í vasa hans má svo finna eldrautt
trúðsnef sem hann skellur reglulega á sig
og gleður bæði börn og fullorðinna. Árið
1998 lék Robin Williams Patch Adams í
samnefndri kvikmynd en hún fjallaði um líf
hans og störf.
Adams var staddur hér á landi í síðustu
viku í boði Hugarafls, félagasamtaka geð-
sjúkra, en þau eiga tíu ára afmæli um
þessar mundir. Hann hélt bæði námskeið
hér og fyrirlestur og greinilegt er að hann
á sér fylgjendur hér á landi, sem annars
staðar. Hann lýsti fyrir fullum sal Þjóðleik-
hússins upphafinu af sínu hugjónastarfi, en
hann byrjaði í læknisfræði árið 1967. Þeg-
ar hann útskrifaðist nokkrum árum síðar,
ákvað hann strax að hann gæti aldrei
starfað sem hefðbundinn læknir en hann
hefur aldrei viljað nota geðlyf til lækninga.
Húsið stóð opið í tólf ár
Hann opnaði heimili sitt sjúklingum á átt-
unda áratugnum þar sem hann bjó í
kommúnu. Að jafnaði komu 500-1000 sjúk-
lingar þar í hverjum mánuði, og allt frá
fimm upp í fimmtíu gistu þar á hverri
nóttu. „Það var ekkert einkalíf, það má
segja að það hafi verið þröng á þingi. Ég
svaf ekki mikið á þessum árum, kannski
nokkra tíma á nóttu, ég vildi ekki missa af
neinu,“ segir Adams, en þetta heimili stóð
opið í tólf ár.
Gefur sér tíma með sjúklingum
Adams hefur enga trú á bandaríska heil-
brigðiskerfinu og segir tryggingakerfið þar
„rotið“. Hann lýsir því að hinn dæmigerði
læknir eyði 7,8 mínútum í sjúkling við
fyrstu heimsókn, en hann aldrei minna en
fjórum tímum. „Lengsta faðmlagið varaði í
tólf tíma,“ segir hann og hlær. Hann segist
aldrei hafa tekið krónu fyrir sjálfan sig við
læknisstörf sín, heldur noti hann peninga
sem hann fær fyrir fyrirlestra sína til að
hjálpa fólki út um allan heim, oft með því
að byggja skóla í fátækum þorpum.
Trúðurinn stöðvar ofbeldi
Adams, sem er alltaf klæddur víðum
skræpóttum buxum, litríkum skyrtum og
sjálflýsandi strigaskóm, segir ástæðu fyrir
þessum klæðaburði. Hann reynir alltaf að
nálgast fólk sem hann hittir og fötin hjálpa
til við að brjóta ísinn. Hann hefur marg-
sinnis notað klæðnaðinn og trúðshátt til að
stöðva ofbeldi sem hann hefur séð víða.
Hann segir auðvelt að stöðva slagsmál því
fólk verður yfirleitt svo agndofa yfir þess-
um undarlega manni. „Ég er trúður sem
er læknir, ekki læknir sem er trúður,“ segir
hann.
Sjö ástæður fyrir því
að hjálpa öðrum
Allt hans líf hefur snúist um umhyggju fyr-
ir öðrum og að hjálpa þeim sem þjást.
Hann nefnir sjö ástæður fyrir því hvers
vegna hann tileinki lífi sínu velferð annarra.
Í fyrsta lagi segist hann hreinlega elska
fólk. Hann segist eiga leyndan draum um
að festast í lyftu milli hæða með fólki sem
ekki þolir hvort annað, helst í marga
klukkutíma. „Það er svona mikið sem ég
elska fólk!“ segir Adams. Í öðru lagi er
honum mjög umhugað um framtíð mann-
kyns og sjálfur er hann ekki viss um að
það lifi af öldina. „Allt væri öðruvísi ef fólk
sýndi ást og umhyggju,“ segir hann. „Ég vil
framtíð þar sem fólk þarf að fletta upp orð-
inu stríð, af því það veit ekki hvað það þýð-
ir,“ segir hann. Í þriðja lagi telur hann það
skyldu hvers manns að sýna umhyggju en
fjórða ástæðan er sú að þú uppskerð eins
og þú sáir. „Karma þýðir ekki að ef ég
skutla þér á flugvöllinn í dag, þá skutlar þú
mér á morgun, frekar að ef þú ert góð
manneskja, þá færðu gott til baka.“ Í
fimmta lagi segist hann fá tækifæri til að
verða skapandi í að hjálpa fólki, og geta
reynt að stöðva ofbeldi og hungur. Í sjötta
lagi segist hann hafa möguleikann á að vera
duglegur og metnaðarfullur í sínu starfi.
„Maður þarf auðvitað að vera brjálaður,
dreyma það sem er óhugsandi.“ Hann segir
sjöundu ástæðu fyrir því að hann eyði ævi
sinni í að hjálpa fólki vera að það sé vís-
indalega sannað að það gerir manni gott.
Hefur séð mikinn hrylling
Adams hefur séð sinn skerf af eymd og vol-
æði en hann segist hafa setið á tíu þúsund
dánarbeðum í gegnum árin. „Þið getið ekki
ímyndað ykkur hryllinginn sem ég hef séð,“
segir hann klökkur, og mátti heyra saumnál
detta. Hann lýsir einnig sögunni af því þeg-
ar besti vinur hans og læknir var drepinn
með köldu blóði af geðveikum sjúklingi, en
starf hans er ekki hættulaust.
Adams notar ekki tölvu og segist ekki
kunna á slíkt tæki, en hann svarar öllum
skrifuðum bréfum sem hann fær, allt upp í
mörg hundruð á mánuði. Adams er um
þessar mundir að byggja spítala í Vestur-
Virginíuríki, sem á að veita ókeypis lækn-
isþjónustu um leið og að sýna fram á að
aðrar leiðir eru færar í heilbrigðiskerfi sam-
félagsins.
„Ég er trúður sem er læknir, ekki
læknir sem er trúður“
Morgunblaðið/Eggert
LITRÍKI LÆKNIRINN PATCH ADAMS
HEFUR SNERT HJÖRTU VÍÐA UM
HEIM EN HANN HELGAR LÍF SITT
UMHYGGJU FYRIR NÁUNGANUM,
VER FJÓRUM TÍMUM MEÐ HVERJUM
SJÚKLINGI OG HEFUR ALDREI ÁVÍS-
AÐ GEÐLYFJM.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Lengsta faðmlagið
varaði í tólf tíma,“ seg-
ir Adams, sem notar
faðmlög og snertingu
mikið í sínu starfi sem
læknir.
Á tíu ára afmæli Hugarafls, félagasam-
taka geðsjúkra, er ýmislegt gert til að
fagna. Stærsti viðburðurinn var koma
Patch Adams til landsins að sögn Auðar
Axelsdóttir, forstöðumanns Hugarafls.
Adams, sem dvaldi aðeins í 26 tíma á
landinu, náði að snerta marga Íslendinga,
þar á meðal Auði. „Þetta var alveg meiri-
háttar, ég er ekki komin niður á jörðina.
Hann gaf mér sem manneskju svo mikið,
hann fer alla leið. Og sem fagmanneskju
styrkti hann mig í þessari persónulegri
nálgun og umhyggju,“ segir hún.
Valdefling
Hugarafl hefur unnið ötullega í áratug við
að hjálpa geðsjúkum að komast aftur út í
samfélagið á sínum forsendum. Einnig
leggja þau mikla áherslu á að vinna með
aðstandendum en samtökin lögðu upp
með það frá byrjun að minnka fordóma
og nota reynslu geðsjúkra til að vinna í
bata þeirra. Hugarafl vill gjarnan hafa
áhrif á það hvernig heilbrigðiskerfið á Ís-
landi virkar og vilja þau sjá meiri virðingu
og efla mannréttindi geðsjúkra. Einkunn-
arorð þeirra er valdefling sem er þýðing
á enska orðinu „empower- ment“.
Vonast eftir stuðningi stjórnvalda
Auður, sem fékk viðtal við nýjan heil-
brigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson,
strax daginn eftir fyrirlesturinn hjá
Adams, bindur miklar vonir við nýja rík-
isstjórn. Hún segir þau ekki fá nægilegt
fjármagn og óskar eftir meiri stuðningi
stjórnvalda. „Þessi nálgun okkar er mjög
ódýr, og sparar heilbrigðiskerfið á öllum
sviðum, sparar fjármagn, sársauka og
þjónustu,“ segir hún og bætir við: „Við
viljum fá meiri viðurkenningu.“
„Ekki komin niður á jörðina“
Auður Axelsdóttir vill sjá breytingar í heil-
brigðiskerfinu.
Morgunblaðið/Golli
* Patch Adams ásér draum um aðfestast í lyftu milli
hæða með fólki sem
ekki þolir hvort annað.
„Það er svona mikið
sem ég elska fólk!“