Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Qupperneq 27
E
rla Hlín Hilmarsdóttir er
mikill fagurkeri sem sést
greinilega á heimili hennar.
Hún býr í fallegri og nota-
legri íbúð í Vesturbænum ásamt
kærasta sínum, Frosta Logasyni,
útvarpsmanni á X-inu 977.
Hún segist skoða mikið tísku-
og hönnunarblöð í frítíma
sínum og er dugleg að
dunda sér við að teikna
og búa til klippimyndir
sem rata oft upp á vegg.
Erla segist blanda mikið
saman gömlu og nýju og
„Ég myndi lýsa stílnum
mínum einfaldlega sem
samansafni af hlutum
sem mér þykir fallegir.
Svartur fylgir mér alltaf og
listaverk með myrku ívafi,“
segir Erla. „Ég sæki innblástur í
ýmis blöð og blogg og hef mjög
gaman af því að skoða Pinterest.
Þar fæ ég stundum góðar hug-
myndir sem ég get útfært á minn
eigin hátt. Svo er Sissa, mamma
mín, mikill innblástur. Sama hvar
hún býr þá er það fallegasta heim-
ilið í Reykjavík“. Erla telur helstu
mistökin þegar kemur að því að
innrétta vera að fólk leyfi fallegum
hlutum ekki að njóta sín. Þó eitt-
hvað sé gamalt þýði það
ekki að það sé ónothæft.
„Oft þarf bara að gefa
hlutunum nýtt líf á nýj-
um stað. Ég er veik
fyrir gömlum og fal-
legum eldhúsinnrétt-
ingum en oft eru þær
látnar fjúka fyrir
splunkunýrri Ikea-
innréttingu sem mér finnst
mikil synd,“ segir Erla. Verst
þykir henni þó að koma inn á
heimili sem eru eins og enginn
búi þar. „Heimili þar sem allt er
hvítt með smá slettu af rauðu hér
og þar.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á baðherberginu hangir falleg mynd sem er lýst upp með ljósi að aftan. Hér
gera litlu hlutirnir mikið fyrir heildarmyndina.
Erla og Frosti velja gamaldags eldhúsinnréttingar fremur en nýjar og hvítar ný-
móðins innréttingar. Pottarnir í glugganum er skemmtileg lausn á plássleysi.
Erla Hlín er mikill fagurkeri.
Mamma mikill
innblástur
ERLA HLÍN HILMARSDÓTTIR ER VERSLUNARSTJÓRI Í VERSL-
UNINNI AFTUR Á LAUGAVEGI. HÚN HEFUR ALLA TÍÐ
HAFT ÁHUGA Á INNANHÚSSARKITEKTÚR OG SEGIR
MIKILVÆGT AÐ LEYFA FALLEGUM HLUTUM AÐ NJÓTA SÍN.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
BLANDAR SAMAN GÖMLU OG NÝJU
Hauskúpur eru greinilega í
miklu uppáhaldi en nokkrar
skrautlegar finnast hér og þar á
heimilinu. Þessar eru frá Costa
Boda úr búðinni Kúnígúnd á
Laugaveginum.
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i O P I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 , l a u g a r d , 1 1 - 1 6 , s u n n u d . LO K AÐ E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
– fyrir lifandi heimili –
| BORÐSTOFUSTÓLAR | BORÐSTOFUBORÐ | SÓFABORÐ | LAMPAR | PÚÐAR | GLERVARAOG FALLEG SMÁVARA