Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Page 33
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölskyldurnar tvær hitt-
ast á þriðjudögum allan
ársins hring.
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Gott er að nota afganga af fiski í þessa súpu, en
einnig ferskan fisk skorinn í bita.
fiskur, eftir smekk
skelflettur humar
kókosmjólk 420 g. ein dós
karríkrydd frá pottagöldrum
50 ml rjómi
rjómaostur 2 msk, rifinn
einn laukur, skorinn smátt
chili pipar með kornunum
tveir grænmetisteningar
salt og pipar
smá kanill og tveir negulnaglar
Mýkið laukinn í potti í smá smjöri. Hellið svo
kókósmjólk og rjóma saman við og bætið við
ostinum. Kryddið. Látið suðuna koma upp. Bæt-
ið svo humrinum og fiskinum út í súpuna, takið
strax af hellunni og berið fram.
Fiskisúpa með
indversku yfirbragði
Girnilegur þorskhnakki
skorinn í sneiðar.
5 þorskhnakkar
4-5 perur
döðlur 200-300 gr
50 gr smjör
1 peli rjómi
Pernod hvítvín eða fennel
Afhýðið perurnar og skerið í smábita. Skerið döðlurnar einnig niður.
Skerið þorskhnakka í þykka bita.
Steikið perurnar upp úr smjöri á pönnu. Bætið döðlunum við og
steikið í 5-7 min.
Hellið Pernod yfir og kveíkið í … mjög flott! Ef ekki er til Pernod þá
má krydda með fennel.
Hellið svo rjómanum yfir og sjóðið niður.
Veltið fiskinum upp úr kyddblönduðu hveiti.
Salt, pipar og aroma út í. Bakið í ofni þar til fiskurinn er eldaður í
gegn.
Leggið svo fiskinn ofan á perurnar og döðlurnar. Berið fram með
fersku salati.
Hægt er að skipta út þorski fyrir kjúkling.
Þorskhnakkar með
döðlum og perum