Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Page 61
milljónum punda. Svo eru til úr-
slitaleikir þar sem titill í húfi, fall
eða hvað sem er. Tæknin kemur,
hvort sem ég lifi til að sjá það,“
sagði Ferguson árið 2007.
Blatter, Webb og Collina
Sepp Blatter, forseti FIFA, er einn
af þeim sem hefur snúist hugur í
þessum málaflokki. Fyrst var hann
alfarið á móti tækninni en eftir að
hann varð vitni að „marki“ Frank
Lampard á HM 2010 skipti Blatter
um skoðun. „Ég held að ég geti
sannfært stjórn reglugerðarnefnd-
arinnar um að við verðum að fylgja
tækninni, við höfum ekki efni á að
bíða og sjá hvað gerist.
Platini vill þetta ekki en ég vil
ekki vera aftur á HM og upplifa
eitthvað eins og þetta – ég myndi
deyja,“ sagði Blatter.
Howard Webb, fremsti knatt-
spyrnudómari á Englandi og trú-
lega í heiminum, telur að mark-
línutækni í knattspyrnu muni bæta
leikinn ef hraðinn í leiknum verður
áfram sá sami. Margir hafa einmitt
sett spurningarmerki við hvort
þessi marklínutækni yrði til að
hægja á leiknum. Hann yrði líkt og
í ameríska fótboltanum þar sem
dómarinn má taka sér mjög marg-
ar mínútur til að skoða atvik.
„Fólk um allan heim elskar leikinn.
Það elskar hvernig hann er, hvern-
ig hann er spilaður, taktinn og
hraðann í leiknum.
Það þarf að gæta þess að vernda
leikinn, en það kemur stundum
fyrir að það væri gott að geta gert
vinnuna mína aðeins auðveldari. Ef
við fáum nákvæmt og áreiðanlegt
kerfi mun það bæta gildi leiksins í
heild.“
Hinn þekkti ítalski dómari Pier-
luigi Collina er hins vegar á móti.
Segir að ekki sé þörf á að taka upp
sérstaka marklínutækni. Collina er
einn besti dómari sögunnar en
hann er nú hátt settur í dómara-
málum UEFA. „Sú tækni sem hef-
ur verið prófuð hefur ekki virkað
nægilega vel. Ég held að besta
lausnin sé fólgin í aukadómurum
við endalínuna eins og verið hefur í
Evrópuleikjum.
Það hefur dregið stórlega úr
hrindingum og peysutogi innan
teigs á síðustu tímabilum. Það er
vegna fjölgun dómara. Þegar þú
ert að keyra og sérð löggu í
fjarska þá hægirðu á þér, alveg
eins og þú brýtur ekki á þér innan
teigs þegar þú veist að dómarinn
er að horfa.“
Manuel Neuer horfir á eftir boltanum
fara inn fyrir línuna eftir skot Lampards.
AFP
Roy Carroll missti boltann inn fyrir línuna. Ekkert mark var þó gefið.
Geoff Hurst skoraði eitt frægasta „mark“ sögunnar.
Luis Garcia skoraði mark eða „mark“ fyrir Liverpool gegn Chelsea.
Getty Images
MARK EÐA „MARK“
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900
Funahöfða 1
110 Reykjavík
Sími: 567-4840
ERTU MEÐKAUPANDA?Skjalafrágangur
frá kr. 15.080
Seljum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Skráðu þinn frítt!
Okkur finnst gaman
að selja bíla,
viltu selja þinn?
SÖLULAUN frá kr. 39.9
00
Í gátunni táknar hver tala ákveðinn bókstaf. Þrautin er að finna hvaða tala
stendur fyrir hvaða bókstaf og færa í viðeigandi reit í rúðustrikaða boxinu
hér fyrir neðan. Allt íslenska stafrófið er notað. Til að koma hreyfingu á
hlutina eru nokkrir stafir gefnir. Stafrófið er hægt að nota til að að krossa
út fundna stafi.
LYKILORÐ