Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 30
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Jarðafélagið Lífsval hefur selt jarð- ir á síðustu mánuðum fyrir rúmlega einn milljarð. Félagið átti 41 jörð þegar sala á jörðunum hófst á síð- asta ári og hafa 16 verið seldar og verið er að ganga frá sölu á tveimur til viðbótar. Stjórnarformaður fé- lagsins vonast eftir að Landsbank- inn verði ekki fyrir fjártjóni vegna lánveitinga til Lífsvals. Lífsval var stofnað árið 2002, en eigendur þess voru nokkrir ein- staklingar sem m.a. höfðu tengst viðskiptum með jarðir. Grunn- hugmyndin að baki félaginu var að fjárfesta í landi enda töldu eigendur þess það vera örugga fjárfestingu til langs tíma. Landsbankinn á 88% í Lífsvali Landsbanki Íslands var einn af eigendum Lífsvals frá upphafi og fjárhagslegur bakhjarl þess. Árið 2010 var hlutur bankans 19%, en hann var þá stærsti hluthafinn. Vorið 2012 eignaðist Landsbank- inn meirihluta í félaginu eftir að nokkrir af eigendum þess gátu ekki staðið við fjárhagslegar skuldbind- ingar sínar. Bankinn myndaði síðan meirihluta í stjórn félagsins. Um síðustu áramót átti Landsbankinn 75% hlutafjár, en hlutur bankans er nú kominn upp í 88%. Jón Steingrímsson, stjórn- arformaður Lífsvals, stýrir félaginu fyrir hönd Landsbankans. Hann segir að sala á jörðunum hafi geng- ið vel og í samræmi við áætlun. Fé- lagið hafi gefið sér þrjú ár til að selja allar jarðirnar. Í upphafi hafi 19 jarðir verið auglýstar til sölu, en Landsbankinn hafi ekki viljað setja allar jarðirnar í sölu í einu þar sem það hafi getað skapað offramboð á jörðum. Nú er hins vegar búið að auglýsa allar jarðirnar til sölu. Búið að selja 16 jarðir Lífsval á í dag 25 jarðir. Seldar hafa verið 16 jarðir á síðustu 15 mánuðum og verið er að ganga frá sölu á tveimur jörðum til viðbótar. Sumar jarðirnar sem Lífsval átti voru í leigu, en eftir að Landsbank- inn hóf að stýra félaginu hafa engir nýir leigusamningar verið gerðir. Leigjendum félagsins hefur því fækkað smám saman. Það var stundaður búskapur á vegum Lífsvals á fimm jörðum þeg- ar ný stjórn tók við. Félagið rak þrjú kúabú, þ.e. að Flatey á Mýrum við Hornafjörð, Skriðufelli í Jökuls- árhlíð og á Ytra-Felli í Eyjafjarð- arsveit. Rekin voru tvö sauðfjárbú, annars vegar í Miðdal í Skagafirði og hins vegar á Barkarstöðum í Húnavatnssýslu. Starfsmenn Lífs- vals við þessi bú voru 15. Í dag hef- ur kúabúið á Ytra-Felli verið selt og rekstri kúabúsins á Skriðufelli verið hætt. Starfsmenn Lífsvals í dag eru 10. Þau bú sem ennþá eru í eigu fé- lagsins eru öll til sölu og vonast Landsbankinn til að sölu þeirra ljúki á þessu ári. Flatey kostar 480 milljónir Verðmætasta eign Lífsvals er bú- ið á Flatey, en það er auglýst til sölu á 480 milljónir. Jón segir að margir hafi sýnt búinu á Flatey áhuga og viðræður séu í gangi. Hann vonast eftir að menn nái sam- an um verð fljótlega þannig að hægt verði að ganga frá sölunni fyr- ir áramót. Hluti af eignum Lífsvals var mjólkurkvóti upp á samtals 857 þúsund lítra. Stærstur hluti hans, eða 507 þúsund lítrar, fylgir Flatey. 300 þúsund lítra kvóti á Ytra-Felli var seldur um leið og búið var selt. 50 þúsund lítra kvóti sem fylgdi Skriðufelli verður seldur á markaði í haust. Mjólkurkvóti hefur að undanförnu verið seldur á kvótamarkaði á um 320 krónur lítrinn. Kvótinn sem Lífsval átti var því tæplega 275 milljóna virði. Stefnt að því að Landsbankinn sleppi skaðlaus frá sölunni Þegar hrunið skall á voru eignir Lífsvals metnar í bókhaldi á 5,2 milljarða og þá skuldaði félagið Landsbankanum 2,4 milljarða. Um síðustu áramót, eftir að sala á jörð- unum var hafin, námu bókfærðar eignir Lífsvals tæplega 2,4 millj- örðum króna. Jón segir að því stefnt að Lands- bankinn verði ekki fyrir fjártjóni af lánveitingum til Lífsvals. Hann segir aðspurður rétt að verð á jörðum sé lægra nú en það var fyrir hrun. Það hafi þó alls ekki orðið neitt hrun á jarðaverði. Hann segir að það megi alltaf deila um hvenær sé rétti tím- inn fyrir bankann að selja. Enginn viti hvað gerist eftir 1-2 ár. „Það er ekki hlutverk bankans að standa í einhverjum fjárfestingum á jörðum og reyna að fara veðja á hvort verð- ið muni hækka eða lækka.“ Jón segir að ýmsir aðilar hafi keypt jarðirnar. Þetta séu bæði ein- staklingar og félög. Einn útlend- ingur hafi keypt jarðir af félaginu. Hann segir að kúabúið á Ytra-Felli hafi verið selt þeim sem rak búið meðan það var í eigu Lífsvals. Fleiri tóku reyndar þátt í kaup- unum á búinu. Á jörðinni Norður-Botni við Tálknafjörð er stundað fiskeldi og félagið sem stendur að fiskeldinu keypti jörðina. Svíi keypti þrjár og hálfa jörð Sænski timburframleiðandinn John Harald Örneberg keypti jarð- ir Lífsvals í Langadal við Ísafjarð- ardjúp, en gengið var frá sölunni á síðasta ári. Hann keypti þrjár og hálfa jörð undir merkjum eign- arhaldsfélagsins Varpland. Gunnar Sólnes, lögfræðingur á Akureyri, situr í stjórn Varplands. Hann seg- ir að Örneberg hafi áhuga á veiði, skógrækt og náttúruvernd og það sé það sem reki hann til þess að kaupa jarðir á Íslandi. Gunnar seg- ir að Örneberg sé ekkert byrjaður að framkvæma á jörðunum. Hann hafi falið Skjólskógum á Vest- fjörðum að meta jarðirnar með til- liti til skógræktar. Hefur selt jarðir fyrir milljarð  Landsbankinn hefur selt 16 af 25 jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals  Dýrasta jörðin er auglýst á 480 milljónir  Stjórnarformaður Lífsvals vonast eftir að bankinn sleppi skaðlaus frá viðskiptunum Morgunblaðið/Eggert Kúabú Lífsval rak um tíma þrjú kúabú. Eitt þeirra var selt, annað lagt niður og það þriðja er til sölu. Kvótinn sem Lífsval átti var um 275 milljóna virði. Verðmætar jarðir » Verðmætasta eign Lífsvals er búið á Flatey á Mýrum við Hornafjörð, en það er auglýst á 480 milljónir. Þar er rekið eitt stærsta kúabú landsins. » Næstverðmætasta jörð í eigu Lífsvals er Svartagil í Borgarfirði, en hún er auglýst til sölu á 250 milljónir. Jörðin er landmikil og henni fylgja veiðihlunnindi í Norðurá. » Jörðin Skriðufell er auglýst til sölu á 50 milljónir. » Sauðfjárbúið að Miðdal í Skagafirði er auglýst til sölu á 136 milljónir. » Sauðfjárbúið að Bark- arstöðum í Húnavatnssýslu er auglýst til sölu á 108 milljónir. » Sænski timburframleiðand- inn John Harald Örneberg keypti þrjár og hálfa jörð Lífs- vals í Langadal við Ísafjarð- ardjúp, en gengið var frá söl- unni á síðasta ári. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Fáðu heyrnartæki til reynslu og stjórnaðu þeim með ReSound Appinu Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Heyrðu umskiptin og stilltu heyrnartækin í Appinu 50% afslátturaf rafhlöðum í ágúst Finndu okkur á facebook Sigurður M. Magnússon, for- stjóri Geisla- varna ríkisins, hefur þegið boð Alþjóðakjarn- orkumálastofn- unarinnar (IA- EA) um að vera forseti alþjóðlegs fundar um geislavarnir eftir kjarnorkuslysið í Fukushima í Jap- an. Fundurinn verður haldinn í höf- uðstöðvum IAEA í Vínarborg í febrúar á næsta ári. Á fundinum verður m.a. fjallað um þá geislun sem fólk varð fyrir og með hvaða hætti það var, ýmsa læknisfræðilega og þjóðfélagslega þætti, og aðgerðir til að draga úr afleiðingum slyssins til lengri tíma. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig best sé að standa að miðlun upplýsinga til almennings. Forseti alþjóðlegs fundar um kjarn- orkuslysið í Japan Sigurður M. Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.