Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur á
undanförnum fjórum árum verið
meiri en nokkru sinni í sögu íslensks
leikhúss. Áhorfendur hafa verið yfir
210.000 á ári síðustu þrjú ár og því
kemur leikhúsið með góðan meðbyr
inn í nýtt leikár. „Áhorfendur hafa
flykkst í leikhúsið og aðsóknin verið
söguleg á undanförum árum og fyrir
það erum við þakklát en við erum
ekkert þjökuð af því að reyna að
toppa fyrri ár heldur setjum við á
svið verk sem okkur finnst eiga er-
indi og við teljum að geti unnið hug
og hjarta fólks,“ segir Magnús Geir
Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleik-
hússins.
Dagskrá leikhússins í vetur er
fjölbreytt og er þar að finna tuttugu
og eitt verk, bæði ný og frá síðast-
liðnu leikári. „Það verða óvenju
mörg ný íslensk leikverk, sígild
verk, erlend samtímaverk verk auk
barna- og fjölskyldusýninga á dag-
skránni í vetur. Við ætlum líka að
vera með vinsæl verk frá síðasta
leikári eins og Mýs og menn Rautt,
BLAM og síðast en ekki síst stór-
sýninguna Mary Poppins,“ segir
Magnús um veturinn framundan í
Borgarleikhúsinu.
Leggja undir sig Gamla Bíó
Leikverkið Hús Bernörðu Alba
verður frumsýnt í Gamla bíói í októ-
ber en það er sígilt verk eftir Fed-
erico Garía Lorca sem var eitt
þekktasta ljóð- og leikskáld Spán-
verja á tuttugustu öldinni. „Það var
ekki útlit fyrir að pláss væri til að
frumsýna nýja sýningu á stóra svið-
inu í haust og við stóðum frammi
fyrir því að þurfa annaðhvort að
taka út vinsælar sýningar af fjöl-
unum eða leita út fyrir leikhúsið og
það var gert,“ segir Magnús en
Gamla bíó ljær leiksýningunni
skemmtilegan blæ og það ætti að
vera áhugaverð upplifun fyrir leik-
húsgesti að sækja leikhússýningu
Borgarleikhússins í Gamla bíói þar
sem Kristín Jóhannesdóttir stýrir
stórum hópi listakvenna í sýning-
unni.
Fræðsla og skemmtun fyrir alla
Borgarleikhúsið leggur mikið upp
úr því að hafa sýningar fyrir alla
fjölskylduna að sögn Magnúsar.
„Áherslan er á að hafa sýningar
sem fjölskyldan getur notið saman
en ekki bara sérstakar barnasýn-
ingar. Mary Poppins er frábært
dæmi um slíka sýningu en þar er á
ferð stórsýning á nýjum skala hér-
lendis. Hún hefur verið eindæma
vinsæl, á síðasta leikári komust
færri að en vildu og nýjar sýningar
haustsins eru þegar að seljast upp.
Af öðrum verkum sem tilvalið er að
taka börnin með á eru Mýs og menn,
Skálmöld, BLAM og Furðulegt
hátta-lag hunds um nótt en sú sýn-
ingin er ótvíræður sigurvegari
bresku leikhúsverðlaunanna í vor.
Auk þessara fjölskyldusýninga bjóð-
um við upp á hefðbundnar barnasýn-
ingar eins og Skoppu og Skrítlu og
Hamlet litla.“
Magnús segir að ekki megi heldur
gleyma fræðsluhlutverki leikhússins
en það er mikilvægur þáttur í starfi
leikhúss. „Við vorum að opna
fræðsludeild til að sinna unga fólk-
inu og opna leikhúsið enn frekar.
Með þessu móti getum við ræktað
tengslin við skólana enn betur og
kynnt starf leikhússins betur fyrir
ungu kynslóðinni.“
Stórar jólasýningar
Jólafrumsýning leikársins er
hamlet þar sem Óafur Darri fer með
titilhlutverkið undir stjórn Jóns Páls
Eyjólfssonar. Ragnar Bragason
snýr aftur með nýtt verk, Óska-
steina eftir sigurgöngu fyrsta verks
hans, Gullregns sem sýnt var á síð-
asta leikári. „Kristín Marja Bald-
ursdóttir þreytir síðan frumraun
sína sem leikskáld þegar leikrit
hennar, Ferjan verður frumsýnd
eftir áramót. Megas og Bragi Valdi-
mar hafa samið nýja tónlist við
klassíska verkið Jeppi á fjalli sem
frumsýnt verður í september. þar
fer Ingvar E. Sigurðsson með tit-
ilhlutverkið undir stjórn Benediks
Erlingssonar,“ segir Magnús og
ljóst að leikhúsárið verður engu
síðra en undanfarin ár.
Fjölskyldan í Borgarleikhúsið
Morgunblaðið/Kristinn
Leiksýnng Borgarleikhúsið leggur áherslu á að vera með sýningar sem öll fjölskyldan getur notið saman eins og sýningin um Mary Poppins.
Morgunblaðið/Ómar
Sýning Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri segir aðalatriðið að
setja á svið sýningar sem vinna hug og hjarta áhorfenda.
Dagskrá leik-
hússins verður fjöl-
breytt og skemmti-
leg í vetur
fi p y j g p
Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam
Villibráðar-paté með paprik
Bruchetta með tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparrótars
Bruchetta með hráskinku, balsam og grill uðu Miðjarðarhafsgrænm
- salat fersku
k r y d d j u r t u m í brauðbo
með Miðjarða
Risa-rækj
með peppadew Silu
með japönsku majón
si sinnepsrjóma- osti á bruchet
Hörpuskeljar, 3 smá
Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og fersku
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarb
Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R
sahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Veitingar fyrir öll tækifæri,
stór og smá, fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það
sama, glæsilegar veitingar
og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.
Super Flu og
Samaris ásamt
Ghozt og Bjössa
Brunahana spila
í hliðarsal Har-
lem á Menning-
arnótt, 24. ágúst.
Íslenska raf-
hljómveitin Sam-
aris hefur verið
að gera það gríð-
arlega gott undanfarið og var að fá
samning hjá One Little Indian Re-
cords. Góða Tungl, lag þeirra sem
kom út árið 2011, hefur einnig hlot-
ið frábærar viðtökur. Superflu er
þýskt dúó sem samanstendur af
þeim Feliks Thilemann og Mathias
Schwarz. Þeir komu fyrst fram á
sjónarsviðið árið 2005 og hafa und-
anfarin ár verið að skapa sér nafn í
raftónlistarheiminum. Fyrr á þessu
ári gáfu þeir út, ásamt Hjálmum,
lagið Va Ga Ga. Lag þetta, sem er
samsuða af hústónlist og reggí, hef-
ur vakið mikla athygli.
Rafrænt hjá
Samaris
Samaris hópurinn.