Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 13
þeir eru veikastir fyrir á, en aðrir eru að reyna að ná betri tökum á að nota ljós- myndamiðilinn til að skapa áhrifameiri ljós- myndir. Við erum ekki að kenna hér ljós- myndatækni, heldur að aga þeirra sýn á ljósmyndun,“ segir Einar Falur. „Það er margt í gangi núna, til dæmis þessi frábæra vika fyrir Gleðigönguna og allt sem tengist henni,“ segir hann. „Það er svo skemmtilegt á lokadeginum að sjá afrakst-urinn, en heila málið er að við Mary Ellen sjáum framför og að þau verði öll betri á sínu sviði,“ segir hann. „Við vinnum með jákvæða, uppbyggilega gagn- rýni og þau taka henni vel, enda komin hingað til að læra, en þetta eru gríðarlega ólíkir ljósmyndarar. Það er líka það sem gerir þetta svo spennandi,“ segir hann. Ísland með sterkan persónuleika Lögð er áhersla á mannlífið á Íslandi frem- ur en landslag. Þau segja að þótt að Ísland sé þekkt fyrir landslagsmyndir er hér nóg annað að mynda. „Mannlífið hér er lifandi, og fólk hér er opið fyrir að láta mynda sig,“ segir Mark. „Erlendis er litið á Ísland sem land fyrir landslagsljósmyndara, og auðvitað er það frábært fyrir þá. En það er líka mjög áhugavert mannlíf hérna, og okkar námskeið snýst fyrst og fremst um það,“ segir Einar Falur. Mark bendir einn- ig á að Ísland sé frábært land fyrir nám- skeið af þessu tagi vegna þess hversu allt er smátt í sniðum. „Mér finnst þetta áhugaverðasta landið af Norðurlöndunum. Það er svolítið einangrað og óflekkað og hef- ur sinn eigin persónuleika, sterkan persónu- leika,“ segir hún. „Hér er svo auðvelt að kenna, bæði er Ísland svo myndrænt og svo er svo auðvelt að nálgast fólk, allir þekkja alla,“ segir hún og Einar Falur bætir við, „við reynum svo sannarlega að nýta okkur þetta litla samfélag, til að fá verkefni fyrir okkar nemendur, fá að heimsækja listafólk, Bláa lónið og slíkt.“ Já, þetta er mjög vina- legt land,“ segir Mark og vonast til að koma aftur á næsta ári með nýtt námskeið. Þriggja mínútna afrakstur Martin Bell hefur áratuga reynslu af kvik- myndagerð og hefur starfað við gerð margra heimildamynda, en hann er kunnastur fyrir heimildamyndir eins og „Streetwise“, sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna árið 1985. Hann leikstýrði einnig myndinni „American Heart“, með Jeff Bridges í aðalhlutverki. Hingað er hann kominn í þriðja sinn að kenna, en hann er með fjóra nemendur, tvo erlenda og tvo íslenska. „Nemendur mínir þurfa að gera kvikmynd sem að lokum er ekki meira en þrjár mínútur. Myndin þeirra gæti sjálfsagt verið miklu lengri, klukkutími þess vegna, en það sem þau sýna í lokin er þá stikla af því sem þau hafa gert,“ segir hann. Nemendur ráða hvort þeir gera heimild- armynd eða leikna, en þessir fjórir völdu sér heimildarmyndagerð. „Það erfiðasta er klippingin, og þetta er tímafrekt, þannig að ég get ekki haft fleiri nemendur í einu,“ segir Martin. „Viðfangsefnin eru misjöfn, einn myndar fötluð börn, annar er á veit- ingastað, þriðji er í iðnaðarfyrirtæki og ég veit ekki alveg hvað sá fjórði er að gera, ég held hann sé að vinna með hestum og jafn- vel hundum, það kemur í ljós,“ segir hann og brosir. Þegar hann er spurður um hvað hann vilji kenna sínum nemendum hlær hann og svarar: „Hvað sem þau vilja vita, sem ég veit! Það er erfitt að segja. Kenna þeim að segja einfalda sögu í kvikmynda- formi.“ Martin segir það ákaflega erfitt að klippa myndirnar, að komast að kjarna sögunnar. „Galdurinn er í handritinu, ef það er skáld- verk, eða að fá aðgang að sögunni ef það er heimildarmynd,“ segir hann. „En það mik- ilvægasta er klippingin, það er listform í sjálfu sér, þetta snýst um að þjappa, að komast að kjarnanum,“ segir Bell að lokum. 18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Dermicore® Bylting í lífrænum sólarkremum brokkoli.is Inniheldur leynivopnið í brokkolí - sulforaphane ...efnið sem virkjar húðfrumurnar! Rannsóknir sýna að sulforaphane úr brokkolí virkjar húðfrumurnar til framleiðslu náttúrulegra andoxunarefna - það er ein áhrifamesta og langvirkasta leiðin til að verjast ótímabærri öldrun húðarinnar og stuðla að endurnýjun hennar. Dermicore er háþróuð húðvörulína frá sænska fyrirtækinu THE BROCCOLI, Lífrænar - Ekki erfðabreyttat – Engin rotvarnarefni (Engin parapen), Engin jarðolía - Húðsjúkdóma-og ofnæmisprófaðar, Pre Tan Creme a Undirbýr húðina fyrir útfjólubláa geisla sólarinnar. a Stuðlar að hraðari og jafnari sólbrúnku. Inniheldur andoxunarefni og sulforaphane sem verst sindurefnum og merkjum öldrunar. Sólarvörn (SPF 6 og 15) Tvöföld vörn, bæði gegn UVB og UVA geislum. Sérvirk innihaldsefni sem vernda húðina gegn hrukkum og ótímabærri öldrun. Inniheldur „Shea Butter“ og E-vítamín fyrir styrkjandi og rakagefandi áhrif. After Sun Creme Verst sólbruna, roða og flögnun – fyrir fallega brúnku sem endist lengur. Hjálpar að endurnýja raka- og salt jafnvægi húðarinnar. Meðal sérvalinna innihaldsefnia eru: • Aloe Vera – fyrir græðandi áhrif. • Agúrka, Chamomile og Menthol – fyrir kælandi og róandi áhrif. • Avókadó olía, Pro-vítamín B5 og E-vítamín fyrir rakagefandi áhrif. SÓLARVÖRURNAR FRÁ DERMICORE FÁST HJÁ: a a a a a Mannlífið í Nauthólsvík séð gegnum linslu Gabrielu Olmedo frá Mexíkó. Beverley Abramson, margra barna amma, er hingað komin frá Toronto í Kanada. Hún segir það hafi verið Mark sem hafi dregið sig alla leið til Íslands. „Ég hef verið aðdáandi hennar lengi, en ég breytti alveg lífi mínu árið 1996 þegar ég hætti sem ráðgjafi og fór í háskóla í ljósmyndun,“ en síðar fór hún á námskeið hjá Mark í Mexíkó. Abramson hefur sérstakan áhuga á að mynda dans. „Ég hef reynt að mynda dansara alls stað- ar sem ég kem, og einnig bak við tjöldin, að segja sögu í ljós- myndum um hvað dansarar upp- lifa,“ segir hún. „Á þessu nám- skeiði langar mig að bæta mig, fínpússa ýmislegt og æfa mig meir, og svo er hér allt annað umhverfi,“ segir hún, en hún hyggst mynda götudansara en einnig dansa á Gaypride. Hún ber Mark vel söguna. „Hún er mjög móðurleg. Allir hennar nemendur eru eins og börnin henn- ar og hún er mjög gefandi. Hún tók mig strax undir sinn verndarvæng og hefur hjálpað mér mikið,“ segir hún. „Öll hennar gagnrýni er hjálp- leg og uppbyggileg.“ „Hún er mjög móðurleg“ Beverley Abramson fær leiðsögn hjá Mary Ellen Mark. Morgunblaðið/Ásdís Gabriela Olmedo, þriggja barna móðir frá Mexíkó, er atvinnuljósmyndari í sínu heimalandi en hún sérhæfir sig í portrett ljósmyndun. Áhugi hennar kviknaði snemma, en faðir hennar, sem var barna- læknir, var mikill áhugaljósmyndari. Glæpagengi rændi honum og heimtaði lausnargjald en myrtu hann síðan. Ol- medo, sem er einkabarn, segir að þrátt fyrir þann hrylling sem hún gekk í gegn- um, hafi það orðið til þess að hún fór að læra það sem hugur hennar stóð til, sem var ljósmyndun, en hún nam markaðsfræði til að byrja með. „Þegar ég var lítil, áður en að pabbi dó, vorum við vön að fara í sirkusinn í Mexíkó, og ég man að þegar við komum heim sýndi pabbi mér bæk- urnar hennar Mark til að fá aðra sýn á sirkus, og ég var alveg heilluð. Ég hef ver- ið aðdáendi hennar síðan,“ segir hún, en hún hefur einnig sótt námskeið hjá henni í sínu heimalandi. „Í byrjun var hún ansi hörð við mig, þegar hún sá fyrst möppuna mína var hún ekki ánægð. En mér hefur farið mikið fram, þannig að þetta hefur verið frábært. Gagnrýni getur verið erfið, en alveg frábær,“ segir hún. Blaðamaður lá á hleri þegar Mark skoðaði nýjustu myndirnar hennar. Greinilegt er að Ol- medo hefur farið fram, því það eina sem heyrðist frá meistaranum var, „frábært, stórfínt hjá þér, nú ertu að taka „þínar“ myndir, nema bara á Íslandi, þetta er stórgott!“ „Þetta er stórgott!“ Það fór vel á með þeim Gabrielu Olmedo og Mary Ellen Mark. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.