Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Page 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 Heimili og hönnun Aftur í skólann LOCH NESS skrifborðslampi, burstað ál. H 49 cm 29.995,- ICE skrifborð með svartri glerplötu. 125 x 65 cm 27.900,- HOUSE Vegghilla, natur. H 32,3, B 25 cm 4.995,- HOMES Kollur með geymslu, ýmsir litir. H 42, Ø31 cm 13.900,- F ramkvæmdir hófust upphaflega af því að okkur vantaði baðkar,“ segir húsmóðirin í Hlíðunum sem bauð okkur í innlit. Þessi rúmgóða hæð í skemmtilegu bakhúsi fékk yfirhalningu fyrir nokkrum árum. „Þetta endaði eiginlega fokhelt,“ segir hún og hlær. Þau fluttu í húsið ásamt sonum sínum tveimur árið 2001 og hafa smátt og smátt verið að breyta íbúðinni, en húsið er byggt á sjötta áratugnum. Þau fengu innanhúsarkítektinn Thelmu B. Friðriks- dóttur til liðs við sig. Fórna þurfti einu litlu herbergi til að fá stærra baðherbergi með baðkari, en einnig þurfti þar að rúmast þvottavél og þurrkari. Thelma hannaði rennihurð sem hylur þvottavélarnar þegar þær eru ekki í notkun. „Þetta er mjög smart lausn hjá henni, og svo notaði hún hnotu á vegginn í stíl við gömlu tekkhurðirnar,“ segir húsfreyjan. Tekkskápurinn hennar ömmu Allar innréttingar eru sérhannaðar en þau völdu hvíta skápa í bland við hnotuna í eldhúsið, og gólfið er hvítt- uð eik. Gamlir munir í bland við nýja setja skemmti- legan svip á stofuna. Hægindastóllinn eftir Charles og Ray Eames er í uppáhaldi, en einnig eldri munir. Gamall tekkskenkur stendur í stofunni. „Þennan feng- um við þegar amma fór á elliheimili, og þá vildi hann enginn, en nú er hann vinsæll,“ segir hún. Gamla skenkinn úr tekki fengu þau þegar amma fór á elliheimili, en þá var eng- inn sem vildi hann. Nú eru slíkir skenkir mjög eftirsóttir víða. Eldhúsið er bjart en efri skápar eru úr hnotu. Endaði fokhelt Í BJARTRI OG SKEMMTILEGRI HÆÐ HAFA HJÓN MEÐ TVO SYNI KOMIÐ SÉR VEL FYRIR. ÍBÚÐINNI HEFUR VERIÐ BREYTT Á SMEKKLEGAN HÁTT Á SÍÐUSTU ÁRUM. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is HÆÐ Í HLÍÐUNUM FÉKK YFIRHALNINGU Gamlir munir í bland við nýja passa vel saman í hillu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.