Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Page 38
*Föt og fylgihlutir Haustið er handan við hornið og skólarnir að byrja. Nú er tími til að endurskoða fataskápinn »40
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd?
Ég á mér enga sérstaka fyrirmynd en auðvitað hafa margir áhrif á mann bæði úr tískubrans-
anum og annarstaðar frá. Ég reyni engu að síður að láta hjartað ráða og falla ekki fyrir öllum
tískubylgjum.
Hver er þinn uppáhaldshönnuður?
Jean Paul Gaultier hefur alltaf heillað mig frá því ég sá hann fyrst og í dag held ég líka mikið
upp á Alexander Wang.
Ætlar þú að kaupa þér eitthvað sérstakt fyrir haustið?
Ætli maður þurfi ekki að fá sér góða skó fyrir haustið. Svo væri ég til í flotta Kenzo há-
skólapeysu.
Hvað er uppáhalds „trendið“ þitt fyrir haustið?
Það gleður mig að sporty-stíllinn sé að halda áfram inn í haustið. Fullkomin blanda af stíl og
þægindum.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó þú eigir nóg af því?
Ég virðist eiga auðvelt með að kaupa mér gallabuxur og hvítar skyrtur. Á allt of mikið af því en
það eru uppáhaldsflíkurnar mínar.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa?
Það yrðu sennilega einhverjir fallegir skór eða taska frá Saint Laurent. En ég bendi á að listinn
er langur.
Ertu með eitthvert mottó þegar kemur að fatastíl?
Ég er óhræddur við að prófa nýja hluti en er frekar „casual“ í
klæðaburði. Númer 1, 2 og 3 er að snið og stærð passi.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst
þátt í?
Nei, ég lít ekki á tilraunastarfsemi mína á yngri árum
sem tískuslys. Pizza 67 peysan sem ég klæddist yfir
skyrtu árið 1993 er t.d. grunnurinn að mínum stíl í dag.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
10 corso como í Mílanó er allavega ein af skemmtilegri
verslunum sem ég hef heimsótt. Hefur einstakan stíl og
þaðan kemur maður brosandi út.
Hver eru bestu fatakaupin þín?
Ég á 20 ára gamlar Levis gallabuxur sem ég nota enn,
það hljóta að kallast góð kaup.
Morgunblaðið/Rósa Braga
10 Corso Como í Mílanó er uppáhaldsbúð Stefáns.
Jean Paul Gaul-
tier er djarfur
og skemmti-
legur hönnuður.
AFP
Stefáni langar í
fallega tösku frá
Saint Laurent.
Háskólapeysan frá
Kenzo er vænt-
anleg í Sævar Karl.
STEFÁN SVAN TÍSKUSPEKÚLANT
Jean Paul
Gaultier hefur
alltaf heillað
STAFÁN SVAN AÐALHEIÐARSON ER MIKILL SMEKKMAÐUR OG FAGURKERI.
STEFÁN ER INNKAUPASTJÓRI SÆVARS KARLS Á HVERFISGÖTU EN HANN ER
NÝKOMINN HEIM AF TÍSKUVIKUNNI Í KAUPMANNAHÖFN ÞAR SEM HANN
SÁ UM AÐ KAUPA INN VÖRUR Í BÚÐINA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Stefán Svan er
óhræddur við að
prófa nýja hluti.