Morgunblaðið - 14.12.2013, Side 1

Morgunblaðið - 14.12.2013, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 1 3  291. tölublað  101. árgangur  Þvörusleikir kemur í kvöld www.jolamjolk.is dagar til jóla 10 LOKAÆVINTÝRI HALLBERU Á SARDINÍU FÓRU Á MOTORFÁKUM UM PERÚ ÞÚFNAHERINN ÖFLUGI REISIR RISAÞÚFU SUNNUDAGUR SKÚLPTÚR Á GRANDA 10SAMDI VIÐ BESTA LIÐ ÍTALÍU 4 ÁRA STOFNAÐ 1913  „Ég þoli ekki að þessi þáttur sé að hætta. Þegar hann Guðni minn [Már Henningsson] verð- ur búinn með síðustu vaktina á gamlárskvöld mun ég loka fyr- ir Rás 2 og Rás 1 og opna aldrei fyrir þær aftur,“ segir Vagna Sólveig Vagnsdóttir, tæplega áttræð kona á Þingeyri, en hún hefur hringt í Næturvaktina á Rás 2 um hverja einustu helgi frá árinu 1989 og fyrir vikið eignast fjölmarga aðdáendur og vini úti um allt land. Nætur- vaktin verður lögð niður frá og með áramótum. Innst inni vonar Vagna Sól- veig þó að menn sjái sig um hönd. „Menn hljóta að átta sig á því fyrr en síð- ar að þeir eru að gera hrap- alleg mistök. Þetta gæti rið- ið Rás 2 að fullu. Þess vegna mun ég halda í vonina – alveg fram á gamlárskvöld.“ Rætt er við Vögnu Sólveigu í sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins. Ætlar að skrúfa fyrir Rás 1 og Rás 2 Vagna Sólveig Vagnsdóttir Stórir vinnustaðir » Um 240 manns vinna hjá Skinney-Þinganesi til sjós og lands og fleiri yfir sumarið. Fyrirtækið gerir út sjö skip. » Yfir 100 manns hjá Skag- anum, Þorgeiri og Ellert og fleiri fyrirtækjum á Akranesi koma að smíði búnaðarins. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Skaginn hf. á Akranesi hefur undir- ritað samning við útgerðarfyrirtæk- ið Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði um sölu á nýjum búnaði fyrir vinnslu á uppsjávarfiski, en jafnframt eru fyrirhugaðar breyt- ingar á vinnslu á bolfiski. Samning- urinn er stærsti einstaki samningur sem Skaginn hefur gert við íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki um sölu á há- tæknibúnaði til fiskvinnslu. Ekki fékkst uppgefið hvert kaupverð tækjanna er en það hleypur á hundr- uðum milljóna. Aðalsteinn Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Skinneyjar-Þinga- ness, segir að afköst í frystingu uppsjávarafla aukist með breyting- unum, jafnframt verði gæði afurða meiri en áður og fyrirtækið verði samkeppnishæfara. Áformað er að setja búnaðinn upp á Hornafirði áður en sumarvertíð hefst í síld og makríl. Ingólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Skagans, segir að á síðasta áratug hafi orðið mikil þróun í búnaði til vinnslu á uppsjávarfiski til mann- eldis hér á landi. Kerfin séu orðin mjög afkastamikil og sjálfvirk, en Skaginn hafi séð um smíði á búnaði hjá flestum stærri fyrirtækjunum í greininni og hafi búnaðurinn verið þróaður í góðri samvinnu við iðnað- inn. MHorft til framtíðar »32-33 Gæði og afköst aukast  Skinney-Þinganes á Höfn endurnýjar búnað til vinnslu á uppsjávarfiski  Samningurinn sá stærsti sem Skaginn á Akranesi hefur gert hérlendis Kertaljós og fagur söngur einkenndi Lúsíutónleikana sem haldnir voru í Seltjarnarneskirkju í gærkvöldi. Mátti þar sjá syngjandi hvítklædd börn og unglinga með kertaljós. Þótt Lúsíumessa heilagrar Lúsíu hafi verið aflögð við siðaskipti héldu sum lönd á Norðurlöndum tryggð við siðinn. Kertaljós og fagur söngur á Lúsíumessu Morgunblaðið/Eggert Lúsíutónleikar fóru fram í Seltjarnarneskirkju í gærkvöldi  Orka Energy (OE) skrifaði í gær undir samning um uppbyggingu jarðhitakerfis til húshitunar í Sia- nyang-héraði í Kína. „Þetta er 38 milljóna manna hérað og stærsta borgin telur um sex milljónir. Núna höldum við áfram uppbyggingu, meðal annars með því að fara inn á ný jarðhitasvæði. Samhliða erum við að skoða arðsemi af nokkrum öðrum verkefnum,“ segir Eiríkur Braga- son, framkvæmdastjóri OE. »14 Uppbygging í 38 milljóna héraði  Íslendingar sem þurfa að bíða óeðlilega lengi á biðlista eftir lækn- isaðgerð kunna í náinni framtíð að eiga rétt á að sækja þjónustuna til heilbrigðisstofnana erlendis. Rík- issjóður myndi þurfa að end- urgreiða sjúklingnum jafn háa fjár- hæð og aðgerðin hefði kostað hér á landi. Ferða- og dvalarkostnaður erlendis fæst þó ekki greiddur. Tilskipun Evrópusambandsins um heilbrigðisþjónustu yfir landa- mæri gerir ráð fyrir þessum rétti og hún mun gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Hér á landi er hafinn undirbúningur að innleið- ingu en ekki er vitað hvenær regl- urnar taka gildi. Forstjóri Sjúkra- trygginga á ekki von á að margir nýti sér þetta, þjónustan á Íslandi sé þrátt fyrir allt samkeppnisfær í gæðum og verði. »44 Morgunblaðið/Eggert Aðgerð Fjöldi sjúklinga er á biðlistum eft- ir læknisþjónustu á heilbrigðisstofnunum. Mega fara í læknis- aðgerð til útlanda  Búist er við því að lottóvinningurinn í íslenska lottóinu fari yfir 125 milljónir króna, að sögn Stefáns Snæs Konráðs- sonar, framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár. Potturinn er áttfaldur og í sögulegu hámarki en um 45% af seldum röðum fara í vinninga. Í heild má því gera ráð fyrir að um 219 milljónir renni til vinn- ingshafa. Sé tekið mið af því að hver röð seljist á 130 krónur má gera ráð fyrir að alls seljist lottó- miðar fyrir tæpar 487 milljónir króna, sem jafngildir tæpum 3,75 milljónum raða. Guðlaugur Kristjánsson, eigandi Happahússins í Kringlunni, sagði að stanslaus röð hefði verið í allan gærdag. „Það er algjört lottóæði,“ segir Guð- laugur en hann ásamt tveimur öðrum starfsmönnum var að allan daginn að sinna vongóðum viðskiptavinum. „Hér eru fjölmargir kúnnar sem ekki hafa sést í mörg ár. Stóri vinningurinn hefur þessi áhrif,“ segir Guðlaugur. Hann gerir ráð fyrir að á þriðja þúsund manns hafi komið og keypt lottómiða í gær. Sjálfur segist hann hafa keypt sér 30 raðir. „Ég hef mest fengið 1.500 krónur í lottóinu en ég tek alltaf þátt í því.“ vidar@mbl.is Stóri vinningurinn kveikir upp „ lottóæði“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.