Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Hugmyndin er að menn öðlist svo- litla innsýn í þetta sveitasamfélag. Með því að lesa bókina er það ekki bara Skíðadalsbotninn sem opnast heldur líka gluggi inn í lifandi sveita- menningu almennt. Það verður til sérstök stemning og mikil sköpun í þessu litla samfélagi í þessum eina þrönga dal tvo daga á ári,“ segir Svarfdælingurinn Hjörleifur Hjart- arson. Hann tók saman og ritaði skýr- ingar í bók sem var að koma út og nefnist Krosshólshlátur. Andríkir gangnamenn Bókin er safn kveðskapar og sagna úr göngum Svarfdælinga frá hausti 1965 og til 2009. Um er að ræða úrval úr vísum, ljóðum og lausu máli sem gangnamenn hafa fært í gestabækur Sveinsstaðaafréttar í Skíðadal. Göng- urnar taka tvo daga hvert haust, gangnamenn sofa eina nótt í gangna- mannakofanum Stekkjarhúsum og svo er réttað í Tungurétt, þangað er rekið hátt í 2.000 fjár. „Félagsskapurinn Gangnamanna- félag Sveinsstaðaafréttar tók frum- kvæðið að því að gefa þetta efni út. Þetta er vaskur hópur þrjátíu manna sem hefur gengið á Sveinsstaðaafrétt í áratugi. Þetta eru andríkir menn og mikið af góðum hagyrðingum og góð- um söngmönnum. Við höfðum úr miklum efnivið að moða í bókina en þarna má finna örsögur, vísur og dá- lítið af sagnfræði, mikið af myndum og hljómdiskur með söng gangna- manna fylgir með,“ segir Hjörleifur. Sungið frá morgni til kvölds „Það er talað um að réttir í Svarf- aðardal séu með þeim allra líflegustu og svo er mjög líflegt í göngunum. Nóttina í kofanum er sungið langt frameftir og byrjað strax aftur dag- inn eftir og sungið allan þann dag, réttardaginn, til enda,“ segir Hjör- leifur. Miklar gleðikröfur eru gerðar til gangnamanna. „Það eru á milli þrjá- tíu og fjörutíu manns í gangna- mannafélaginu og það er ekki síður mikilvægt að menn séu gleðimenn og söngmenn en að þeir séu miklir garp- ar.“ Sögurnar og kvæðin fjalla flest um náttúruna, skepnurnar, mennina og gleðina. Áberandi lítið er af neðan- beltisvísum og kann Hjörleifur skýr- ingu á því. „Við gerum okkur grein fyrir því að sumar vísur hafa alls ekki verið færðar til bókar, það hafa þó einhverjir farið yfir strikið. Við erum siðavandir og kannski full á köflum. Klámvísurnar fengu ekki náð í þess- ari bók.“ Meira er um að menn séu teknir fyrir í kveðskapnum og segir Hjörleifur einelti ríkan þátt í gangnamannagleðinni. „Mönnum er ekki hlíft og sumir verða meira fyrir barðinu á skáldun- um en aðrir en það þykir eftirsóknarvert.“ Hjörleifur hefur sjálfur farið í göngur frá þrettán ára aldri og segir það ómissandi. „Það er óhætt að segja að fyrir þessa menn er þetta hámark gleð- innar.“ Kannski fullsiðavandir á köflum  Gangnamannafélag Sveinsstaðaafréttar tók saman safn kveðskapar og sagna úr göngum Svarf- dælinga  Gangnamenn þurfa að vera miklir garpar, gleðimenn og söngmenn og helst hagmæltir Krosshólshlátur Gangnamenn í fyrstu göngum 2008. Gangnamannafélag Sveinsstaðaafréttar var stofnað 1989. Þokan svört og suddaél KROSSHÓLSHLÁTUR Hjörleifur Hjartarson Gerð er tillaga um 100 millj. kr. framlag til stækkunar á byggingu verknámshúss við Fjölbrautaskóla Suðurlands, skv. breytingatillögum við fjárlagafrumvarp næsta árs sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Þeg- ar frumvarpið var lagt fram fyrr í haust var verkefni þetta sett á ís og fyrirhuguð framlög ríkisins til þess slegin af, í sparnaðarskyni. „Með forgangsröðun í fjárlaga- vinnunni náðum við þessu í gegn, enda er framkvæmdin mikilvæg. Sveitarstjórnir á Suðurlandi hafa þrýst á ríkisvaldið í þessu máli og samstaða þeirra hefur haft sitt að segja,“ sagði Sigurður Ingi Jó- hannsson, ráðherra og 1. þingmað- ur Suðurkjördæmis, við Morgun- blaðið. Framlag sveitarfélaga í hendi Teikningar að verknámshúsinu liggja fyrir. Ráðgert er að það verði um 1.650 fermetrar að flatarmáli. Sveitarfélögin Suðurlandi eiga, samkvæmt al- mennri reglu, að greiða um 40% byggingarkostn- aðar sem er áætl- aður um 700 millj. kr. Tillegg þeirra er að stórum hluta í hendi, eða alls 150 millj. kr. „Ég er býsna bjart- sýn á framhaldið, nú þegar þessi til- laga liggur fyrir sem vonandi verð- ur samþykkt. Ef allt gengur upp er hægt að fara í lokahönnun á húsinu strax eftir áramótin og vonandi geta framkvæmdir hafist þegar líð- ur á næsta ár,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu. Verknám við skólann er vinsælt og fjölsótt, en aðstöðuleysi í núver- andi húsnæði, sem fyrir löngu er orðið of lítið, hefur sett framþróun þess mikil takmörk. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Menntun Vænst er að framkvæmdir við stækkun verknámshúss Fjölbrauta- skóla Suðurlands geti hafist á næsta ári, gangi fyrirheit í fjárlögum eftir. Verknámshúsið aftur á fjárlögin  100 millj. kr. framlag til framkvæmda við Fjölbrautaskóla Suðurlands Olga Lísa Garðarsdóttir Í bókinni er kafli sem heitir Þokuvísur og þar segir: „Að frá- töldum stórhríðum er þokan hvimleiðust allra veðurafbrigða. Þokuvísur mega heita nánast sérstök kveðskapargrein í gestabókum Sveinsstaða- afréttar.“ (bls 129) Í kaflanum má lesa þessa þokuvísu eftir Þórarin Hjart- arson sem má syngja við lagið „Vorið góða“: Þokan svört og suddaél, súld og nepjuvindur, ógnarvitlaust eg það tel að ætla að finna kindur. Heim í rúm að hlýja sér hugur stefnir löngum. Helvíti hve oft það er ógeðslegt í göngum!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.