Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 33
FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Með endurnýjun og uppbyggingu í fiskiðjuveri Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði með samningi við Skagann á Akranesi er horft til framtíðar. Í vor verður nýr vinnslu- búnaður settur upp hjá fyrirtækinu og reiknað er með að afköst í fryst- ingu uppsjávarafla aukist úr tæp- lega 400 tonnum á sólarhring í um 600 tonn. Jafnframt verða gæði af- urða meiri en áður, framleiðni eykst og fyrirtækið verður samkeppnis- hæfara, að sögn Aðalsteins Ingólfs- sonar, framkvæmdastjóra fyrirtæk- isins. Hann vill ekki gefa upp nákvæman kostnað við nýja bún- aðinn, en segir hann hlaupa á hundruðum milljóna króna. Aðalsteinn segir að byrjað verði að fjarlægja eldri frysta og ýmis önnur tæki að lokinni loðnuvertíð, vænt- anlega í lok mars, og nýi búnaðurinn verði síðan settur upp. Hann eigi að vera kominn upp og tilbúinn til vinnslu 1. júní í sumar eða áður en makríl- og síldarvertíð hefst. Ekki er reiknað með breytingum í starfs- mannafjölda. Varðandi bolfiskvinnslu sé einnig verið að hugsa til framtíðar og þar sé byrjað að endurnýja vinnslubúnað í samvinnu við Skagann. Unnið sé að frekari endurnýjun og endurskipu- lagningu og hugsanlega kalli þær breytingar á byggingaframkvæmdir á næstu misserum. Óvissunni ljúki „Forsenda allra framkvæmda í sjávarútvegi er að greinin fái að þróast eðlilega,“ segir Aðalsteinn. „Stjórnarflokkarnir hafa lofað því að festa komist á og óvissu ljúki um veiðigjöld. Við treystum því að svo verði og á þeim forsendum förum við út í þessar fjárfestingar,“ segir Aðalsteinn. Hann segist hafa þá trú að íslensk stjórnvöld endurskoði lög um veiðigjöld með það að leiðarljósi að sjávarútvegurinn geti haldið áfram að vaxa og skila samfélaginu öllu ríkulegum ávinningi. Aðalsteinn segir mikilvægt fyrir Skinney- Þinganes og samfélagið allt, að ís- lenskur sjávarútvegur haldi stöðu sinni í fremstu röð á heimsvísu. Sú staða sé ekki sjálfgefin heldur þurfi fjárfestingu til. Því kosti fyrir- tækið miklu til við endurbætur sem þessar. Hann segir að íslenskur sjávarútvegur hafi á undanförnum árum tekið virkan þátt í þróun vinnslubúnaðar fyrir sjávarútveginn með Skaganum hf. Markmiðið sé ætíð að auka samkeppnishæfni Ís- lands á alþjóðamarkaði. Sjö skip og 240 starfsmenn Skinney-Þinganes er ásamt bæjarfélaginu stærsti vinnuveit- andinn á Höfn í Hornafirði. Þar starfa um 240 manns á sjó og landi, en á humarvertíð á sumrin og við af- leysingar bætast um 60 ungmenni við. Fyrirtækið er alhliða útgerðar- fyrirtæki og segir Aðalsteinn að í raun sé alltaf einhver vertíð í gangi; net, humar, dragnót eða vertíð upp- sjávarskipa. Í haust hafa uppsjávar- skip fyrirtækisins verið á síldveið- um og náðu stórum hluta kvótans í grennd við Stykkishólm í upphafi vertíðar. Skinney-Þinganes gerir út sjö skip og eru fimm þeirra smíðuð á ár- unum 2000-2009 þannig að flotinn hefur að stórum hluta verið endur- nýjaður á síðustu árum. Eitt skipið var smíðað 1991 og elst í flotanum er uppsjávarskipið Jóna Eðvalds, sem var smíðað 1975. Skip- ið kom til landsins sem Björg Jóns- dóttir ÞH árið 2004 og var þá skipt um brú, spil og vél í skipinu. Fram- undan er stór klössun á skipinu. Horft til framtíðar á Höfn  Skinney-Þinganes eykur afköst í uppsjávarvinnslu með nýjum búnaði  Í gagnið fyrir sumarvertíð  Forsenda framkvæmda í sjávarútvegi er að greinin fái að þróast eðlilega, segir Aðalsteinn Ingólfsson Morgunblaðið/Ómar Frá Höfn í Hornafirði Ásgrímur Halldórsson við bryggju framan við fiskvinnsluna. Fastir starfsmenn hjá Skinney-Þinganesi eru um 240 á sjó og landi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.