Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Munið að slökkva
á kertunum
Eldtefjandi efni er sprautað er á kerta-
skreytingar koma aldrei í veg fyrir bruna
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Birkir Darri
SVIÐSLJÓÐ
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Ak-
ureyri voru formlega stofnuð á af-
mælishátíð sjúkrahússins (FSA) í
fyrradag, þegar hafa um 200 manns
gengið í samtökin og fyrsta verk-
efnið verður að færa sjúkrahúsinu
tugi rafstýrðra sjúkrarúma að gjöf.
Sextíu ár eru á morgun frá því
starfsemi sjúkrahússins var flutt í
núverandi húsakynni á Eyrarlands-
holti og því var einnig fagnað á
fimmtudag að 140 ár eru liðin frá því
starfsemi fyrsta sjúkrahússins á Ak-
ureyri hófst, árið 1873.
Fjárframlög hækka
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigð-
isráðherra, flutti ávarp og óskaði
sjúkrahúsinu og starfsmönnum þess
til hamingju. Ráðherra upplýsti að
skv. breytingartillögum meirihluta
fjárlaganefndar yrðu framlög til
FSA á næsta ári 554 milljónum kr.
hærri en áður hefði verið gert ráð
fyrir.
Kristján Þór sagði í samkvæminu
að þrátt fyrir aðhald og erfiðleika
vegna þröngrar rekstrarstöðu og
niðurskurðar á liðnum árum hefði
merkið ekki verið látið síga. Hann
kvaðst þess fullviss að sjúkrahúsið
næði settum markmiðum; að verða
miðstöð sérhæfðrar heilbrigðisþjón-
ustu á Norður- og Austurlandi og fá
alþjóðlega vottun á starfsemi sína,
ekki síðar en 2017.
Bjarni Jónasson, forstjóri FSA,
sagði að árum saman hefði verið
rætt um að koma á fót hollvina-
samtökum sem stutt gætu við starf-
semi sjúkrahússins og eflt þá þjón-
ustu sem þar fer fram. Stofnun
samtakanna nú væri því mikilvægur
stuðningur starfsmönnum FSA og
undirstrikaði þann hlýhug sem sam-
félagið sýnir starfseminni.
Einn þeirra sem unnið hafa öt-
ullega að stofnun hollvinasamtak-
anna, Stefán Gunnlaugsson, rakti
aðdragandann að því og aðkomu
sína að verkefninu. Hann hefði þurft
að dvelja í nokkra mánuði á lyflækn-
ingadeild vegna erfiðra veikinda og
að því loknu gengið á fund Bjarna
forstjóra og sagst telja sig í stórri
skuld við sjúkrahúsið.
Langþráður draumur
„Get ég ekki gert eitthvað fyrir
ykkur?“ spurði Stefán og Bjarni
nefndi þá þann langþráða draum að
stofnuð yrðu hollvinasamtök sjúkra-
hússins. Stefán gekk í málið, ásamt
Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóni
Birgi Guðmundssyni og Bjarna for-
stjóra.
Stefán kynnti afrakstur starfsins
á afmælishátíðinni. Í máli hans kom
fram að nú þegar hafa nær tvö
hundruð manns gengið í hollvina-
samtökin og vonast er til að mun
fleiri bætist við á næstunni.
Fyrsta verkefni samtakanna verð-
ur að koma að endurnýjun sjúkra-
rúma lyflækningadeildar og skurð-
lækningadeildar sjúkrahússins.
„Núverandi rúm eru mörg hver
komin til ára sinna, eru börn síns
tíma og kalla orðið á mikið viðhald.
Ný rafstýrð rúm mundu gera sjúk-
lingum leguna þægilegri og auð-
velda til muna vinnu starfsfólks,“
sagði Stefán. Hann greindi frá því að
aðeins vantaði herslumuninn á að
það takmark næðist að kaupa fjölda
slíkra rúma. Fjölmörg fyrirtæki,
stéttarfélög og margir einstaklingar
hefðu lagt hönd á plóginn. „Mér sýn-
ist allt stefna í að hægt verði að af-
henda nýju sjúkrarúmin snemma á
næsta ári,“ sagði Stefán.
Hægt er að skrá sig í samtökin á
vef FSA, www.fsa.is, og verður ár-
gjald 5.000 kr. Lögð er áhersla á að
hver króna sem samtökin safna
renni til tækjakaupa fyrir FSA.
Get ég ekki gert eitthvað fyrir ykkur?
Stefán Gunnlaugsson gekk í að stofna hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri eftir að hann lá þar í
nokkra mánuði FSA 60 ár á Eyrarlandsholti 140 ár frá því fyrsta sjúkrahús í bænum tók til starfa
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gleði Bjarni Jónasson, forstjóri FSA, og Kristján Þór Júlíusson ráðherra.
Jóhannes G. Bjarnason, fyrrver-
andi bæjarfulltrúi á Akureyri, er
formaður fyrstu stjórnar Holl-
vinasamtaka Sjúkrahússins á
Akureyri. Aðrir í stjórn eru Erla
Björg Guðmundsdóttir, Hilda
Jana Gísladóttir, Jóhann Sig-
urðsson, Kristín Sigfúsdóttir,
Kristjana Skúladóttir, Sigurður
E. Sigurðsson, Stefán Gunn-
laugsson og Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson.
Á afmælishátíðinni var til-
kynnt að nú þegar hafa um 200
manns gengið í samtökin.
Jóhannes
formaður
HOLLVINASAMTÖK FSA
Gekk í málið Stefán Gunnlaugsson
vann að stofnun samtakanna.
Könnun Capacent sem gerð var í nóv-
ember meðal stjórnenda 400 stærstu
fyrirtækja landsins á aðstæðum í at-
vinnulífinu, leiðir í ljós að stjórnendur
telja að þær hafi heldur farið versn-
andi á síðari hluta ársins eftir að hafa
batnað nokkuð síðastliðið vor. Að
jafnaði sjá þó stjórnendur fram á
bata næsta misserið að því er fram
kemur í frásögn Samtaka atvinnulífs-
ins af niðurstöðunum. Þriðjungur
þeirra telur að aðstæður verði betri
en 12% að þær versni. Horfur virðast
heldur hafa batnað því í síðustu könn-
un í september sl. töldu 30% að að-
stæður myndu batna en 13% að þær
myndu versna.
Búast við 3,9% verðbólgu
Einungis 7% stjórnenda telja að
aðstæður um þessar mundir séu góð-
ar, tæplega helmingur telur þær
slæmar og álíka stór hópur telur að-
stæður hvorki góðar né slæmar.
„Nægt framboð er af starfsfólki og
í heild er búist við nokkurri fækkun
starfsmanna á næstu sex mánuðum.
Verðbólguvæntingar hafa minnkað
örlítið en haldast háar því búist er við
3,9% verðbólgu á næstu 12 mánuð-
um,“ segir á vefsíðu SA.
Fram kemur í greiningu á niður-
stöðum könnunarinnar að rúmur
helmingur stjórnenda á höfuðborgar-
svæðinu telur aðstæður slæmar en
þriðjungur á landsbyggðinni. „Í flest-
um atvinnugreinum telur um eða yfir
helmingur stjórnenda aðstæður
slæmar, með þeim undantekningum
að tveir þriðju stjórnenda í bygging-
ariðnaði telja svo vera og fjórðungur í
sjávarútvegi. Engu munar hvort um
er að ræða útflutningsfyrirtæki eða
ekki þar sem í báðum hópum telur
um helmingur stjórnenda aðstæður
vera slæmar en einungis 6-8% að þær
séu góðar. Hlutfallslega fleiri stjórn-
endur stærri fyrirtækja telja aðstæð-
ur slæmar en þeirra minni,“ segir í
umfjöllun SA.
Könnunin leiðir ennfremur í ljós að
jafn hátt hlutfall stjórnenda fyrir-
tækjanna, eða 15%, býst við fjölgun
og fækkun starfsmanna á næstu sex
mánuðum, en 70% að starfsmanna-
fjöldi verði óbreyttur. „Fjölgun
starfsmanna er einkum líkleg í ýmissi
sérhæfðri þjónustu, og samgöngum
og ferðaþjónustu, en fækkun í fjár-
málastarfsemi og iðnaði. Á höfuð-
borgarsvæðinu er fækkun starfs-
manna líklegri en fjölgun en því er
öfugt farið á landsbyggðinni. Hlut-
fallslega fleiri stór fyrirtæki áforma
fækkun en þau minni.“
Alls starfa 32 þúsund manns hjá
fyrirtækjunum í könnuninni og
benda SA á að í ljósi þess að hlutfalls-
lega fleiri stór fyrirtæki áforma
fækkun starfsfólks megi gera ráð fyr-
ir að starfsmönnum í heild fækki á
næstu sex mánuðum.
Telja að aðstæður
hafi versnað en
fari batnandi
Búast við lítilsháttar fækkun starfsfólks
Morgunblaðið/Kristinn
Könnun Náði til 400 fyrirtækja