Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 35

Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 35
FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Fyrir næstu jól mun að öllum lík- indum vera komnir á markað, ís- lenskir arinkubbar, framleiddir úr tólg og taði. Þá er stefnan sett á er- lendan markað í framtíðinni. „Hugmyndin kviknaði á mál- þingi sem ég sat fyrir fimm árum í Gunnarsholti og bar titilinn Auð- lind eða óþefur. Þar var fjallað um dýraafurðir eins og úrgang,“ segir Óli Hilmar Briem Jónsson arkitekt sem er hugmyndasmiður kubbanna. Hann segist sjálfur alltaf hafa haft gaman að fornum fræðum og sögu Íslendinga. „Ég fór að hugsa um hvort ekki væri hægt að nýta þessi tvö náttúrefni betur; tólg og tað. Ég velti því einnig fyrir mér af hverju þetta hætti að vera auðlind á tækniöld.“ Úr varð þessi hugmynd sem er orðin fullmótuð eftir fimm ár. Hann er búinn að finna hárnákvæma blöndu af tólg og taði eftir tölu- verða yfirlegu. Hins vegar er verið að vinna í því að finna réttar um- búðir utan um kubbinn. Lyk- ilatriðið er að umbúðirnar verða að brenna vel. Þá bendir Óli á að fram- leiðslan sé ekki tækjafrek og því ættu fyrstu arinkubbarnir að koma á markað næsta vor ef að líkum læt- ur. Framleiðslan er vistvæn og sjálf- bær. Kubbarnir eru fisléttir, reykja lítið og brenna lengur en innfluttir arinkubbar. Þar sem kubbarnir eru lyktarlausir verður lítið mál að bæta við t.d. furunálum í þá og öðr- um ilmefnum fyrir jólin. Kubbarnir hafa fengið nafnið; Ís- lenskir eldkubbar og á ensku Hekla Fire Logs. Óli er í samstarfi við Kjartan Má Benediktsson á Hvolsvelli, um að- stöðu og tað í framleiðsluna. Garð- ar Jónsson, á Stóruvöllum í Bárð- ardal, mun leggja til hreinsaða tólg í fyrstu tilraunaframleiðsluna. Óli hlaut styrk nýverið frá Landsbank- anum til að hefja framleiðslu. Þá segir hann að margir mætir menn hafi stutt sig með ráðum og dáð í gegnum tíðina og eigi stóran þátt í því að hugmyndin sé orðin að veruleika. thorunn@mbl.is Arinkubbur Engu er líkara en tveir fuglar sitji á kubbnum og eru líkt og hugmyndin sem hefur fengið vængi. Arinkubbar úr ís- lenskri tólg og taði  Unnið að hugmyndinni í fimm ár Óli Hilmar Briem Jónsson Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011 Stærðir 6 cm – 40 cm Verð frá 1.990,- Hugljúfar gjafir Sex stórmeistarar, þar á meðal Frið- rik Ólafsson, eru meðal ríflega 100 keppenda sem skráðir eru til leiks á Friðriksmóti Landsbankans sem fram fer í dag, laugardag, í útibúi bankans í Austurstræti. Mótið er jafnframt Íslandsmót í hraðskák. Þetta er tíunda árið í röð sem Landsbankinn og Skáksamband Ís- lands standa fyrir Friðriksmótinu í skák, en mótið er haldið til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeist- ara Íslendinga. Margir af sterkustu stórmeist- urum landsins hafa undanfarin ár teflt til heiðurs Friðriki. Eftirtaldir stórmeistarar eru skráðir til leiks: Friðrik Ólafsson (2406 Elo-stig), Helgi Ólafsson (2546), Hjörvar Steinn Grétarsson (2511), Jón L. Árnason (2499), Stef- án Kristjánsson (2491) og Þröstur Þórhallsson (2445). Auk þess tekur Lenka Ptáncníková (2245), stór- meistari kvenna, þátt. Alþjóðlegu meistararnir Bragi Þorfinnsson (2454) og Jón Viktor Gunnarsson (2412) eru meðal kepp- enda nú en þeir sigruðu á mótinu í fyrra ásamt Hjörvari Steini. Bragi hlaut titilinn eftir stigaútreikning. Þá eru nokkrir sterkustu skák- menn af yngri kynslóðinni skráðir til leiks á mótinu í dag. Þegar mótið var haldið í fyrsta sinn árið 2004 stóðu þeir Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson uppi sem sigurvegarar. Vegleg pen- ingaverðlaun eru í boði og fær sig- urvegarinn 100 þúsund krónur. Mótið hefst í dag klukkan 13 og stendur til klukkan 16.30. Að því loknu verða verðlaun afhent. Áhorfendur eru velkomnir. sisi@mbl.is Sex stórmeistarar keppa á Friðriksmótinu í dag  Friðrik sjálfur er meðal keppenda Morgunblaðið/Kristinn Brautryðjandi Friðrík Ólafsson var fyrsti stórmeistari Íslendinga. Verulegur árangur náðist í opnun nýrra markaða fyrir íslenska flug- rekendur á ráðstefnu Alþjóðaflug- málastofnunarinnar um loftferða- samninga sem lauk í Durban, Suður-Afríku, í gær, skv. upplýsing- um utanríkisráðuneytisins. Alls gerði samninganefnd Íslands tíu nýja loftferðasamninga á þessari ráðstefnu og bendir utanríkisráðu- neytið á að það er besti árangur sem náðst hefur að því er varðar fjölda nýrra samninga fram til þessa. Nýju samningarnir voru gerðir við Afganistan, Bangladess, Botsvana, Gambíu, Grænhöfðaeyjar, Holland vegna Kúrasaó, Kenía, Malí, Tan- saníu og Tógó, en jafnframt var und- irrituð viljayfirlýsing um gerð samn- ings við Kambódíu. Auk þessa sammæltist íslenska sendinefndin óformlega með Nígeríu um að stefna að gerð samnings á næstu mánuðum. Með þessum samningum hefur Ísland gert alls 80 loftferðasamninga við önnur ríki. Gerðu tíu nýja loftferðasamninga Morgunblaðið/Ómar Flug Ísland hefur nú gert 80 loft- ferðasamninga við önnur ríki.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.