Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Hádegistilboð VIÐTAL Hörður Ægisson hordur@mbl.is Þrátt fyrir áhyggjur tengdar fjár- magnshöftum og starfsumhverfi fjármálafyrirtækja á Íslandi vildu erlendir fjárfestar kaupa skuldabréf á Íslandsbanka til lengri tíma en þriggja ára. Til- kynnt var fyrir helgi að Íslands- banki hefði lokið sínu fyrsta er- lenda skulda- bréfaútboði að upphæð 500 millj- ónir sænskra króna, jafnvirði ríflega 9 milljarða íslenskra króna. Til skoðunar er að nota fjármunina til að greiða inn á gjaldmiðlaskiptasamning við Seðla- banka Íslands. Jón Guðni Ómarsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Íslands- banka, segir í samtali við Morgun- blaðið að bankinn hafi verið tilbúinn að gefa út skuldabréf til þriggja ára á 400 punktum yfir millibankavöxt- um en fjárfestar hafi hins vegar vilj- að að útgáfan yrði til lengri tíma, eða fjögurra ára. „Það er til marks um að þeir hafi trú á framtíðarhorfum bankans og efnahagsmálum á Ís- landi almennt. Þetta er mjög þýðing- armikið skref og traustsyfirlýsing á því uppbyggingarstarfi sem hefur verið unnið í bankanum síðustu ár,“ að sögn Jóns Guðna. Alls tóku yfir 40 fjárfestar frá Sví- þjóð, Noregi og Finnlandi þátt í út- boðinu og var mikil umframeftir- spurn eftir bréfunum. Þetta er aðeins önnur erlend skuldabréfa- útgáfa íslensks fjármálafyrirtækis frá árinu 2007 – Arion banki lauk sínu fyrsta útboði í febrúar síðast- liðnum að fjárhæð 500 milljónir norskra króna – og segir Jón Guðni að Íslandsbanki muni í kjölfarið stefna að reglulegri skuldabréfaút- gáfu á erlendum mörkuðum. Þótt fyrsta útboð bankans hafi verið lítið þá var það í samræmi við það sem lagt var upp með, útskýrir Jón Guðni, enda hafi Íslandsbanki í sjálfu sér ekki mikla þörf fyrir er- lenda fjármögnun á þessari stundu. Því hafi bankinn ekki viljað fara í stóra útgáfu miðað við þau vaxtakjör sem bjóðast nú á mörkuðum. „Sáttur“ með vaxtakjörin Það vekur eftirtekt að þótt ávöxt- unarkrafan á skuldabréf íslenska ríkisins í Bandaríkjadölum hafi hækkað nokkuð frá því á vormánuð- um þá eru vaxtakjörin sem Íslands- banki fær 100 punktum lægri en í til- felli Arion banka. Aðspurður hvað skýri helst þann mun bendir Jón Guðni á að Pareto Securities, sem var umsjónaraðili útboða beggja bankanna, hafi gefið Íslandsbanka aðeins hærra lánshæfismat (BB+) en Arion banka (BB). Samkvæmt því lánshæfismati, sem er þó ekki form- legt heldur aðeins gert í tengslum við útboðið, er Íslandsbanki einum flokki frá því að komast upp í fjár- festingarflokk. Að sögn Jóns Guðna þá skiptir það einnig máli að þróun efnahagsmála á Íslandi hafi farið batnandi það sem af er ári. Fjárfestar sem Íslands- banki hitti í aðdraganda skulda- bréfaútboðsins – í Skandinavíu og annars staðar í Evrópu – hafi metið það sem svo að „Ísland væri á réttri leið“. Varðandi rekstur Íslands- banka þá hafði það mest að segja að vanskilahlutföll útlána fara lækkandi og eigið fé bankans hefur aukist mik- ið á síðustu misserum. Við því var að búast að fyrstu skuldabréfaútgáfur íslensku bank- anna á erlendum mörkuðum eftir fjármálahrunið 2008 myndu reynast hlutfallslega dýrar. Jón Guðni segir því að bankinn sé „sáttur“ með þau vaxtakjör sem fengust og að ekki hefði komið til greina að fara í útgáfu á hærri kjörum. „Við vissum alltaf að fyrsta útgáfan yrði dýrust en þetta gefur okkur góðar vonir um að við getum fengið betri kjör í framhald- inu sem geti þannig styrkt sam- keppnisstöðu okkar í útlánum til ís- lenskra fyrirtækja sem þurfa erlenda fjármögnun.“ Jón Guðni viðurkennir þó að það sé vissulega ekki við því að búast, miðað við að vaxtakjörin í útboðinu eru 400 punktar yfir millibankavöxt- um, að hægt sé endurlána þá fjár- muni – með álagi – til íslenskra fyr- irtækja. Hins vegar, útskýrir hann, sé Íslandsbanki vitaskuld með breiðari fjármögnun í erlendri mynt, bæði víkjandi skuldabréf og innlán, sem ber lægri vexti. Jón Guðni nefnir að Íslandsbanki sé með það til skoðunar að nota fjár- munina sem fengust í skuldabréfa- útboðinu til að greiða inn á gjald- miðlaskiptasamning sem var gerður við Seðlabankann í ársbyrjun 2011. Slík ráðstöfun myndi bæta vaxta- mun bankans. Gjaldmiðlaskipta- samningurinn við Seðlabankann, sem var gerður til að leiðrétta gjald- eyrismisvægi í bókum Íslandsbanka, fól það í sér að Íslandsbanki myndi greiða Seðlabankanum jafnvirði 48 milljarða íslenskra króna í erlendri mynt næstu fimm árin. Höft og bankaskattur Mikill tími fór í að hitta erlenda fjárfesta áður en ráðist var í sjálft út- boðið, að sögn Jóns Guðna, og segir hann að meira en ár sé síðan sú vinna hófst. Í kjölfarið var tilkynnt í júlí sl. að Íslandsbanki hefði fengið stað- festan útgáfuramma sem gaf bank- anum færi á að gefa út að jafnvirði 250 milljónir Bandaríkjadala í mis- munandi myntum og á föstum og fljótandi vöxtum. Skuldabréfaútgáf- an í lok síðustu viku var gefin út und- ir þeim ramma. Jón Guðni segir að fljótlega eftir að lokið var við útgáfurammann hafi hins vegar komið bakslag í erlenda markaði og áhættuálag aukist vegna vísbendinga um að Seðlabanki Bandaríkjanna ætlaði að draga úr skuldabréfakaupum sínum. Það hafi gert það að verkum að það tafðist nokkuð að ljúka við skuldabréfa- útboð Íslandsbanka. Fyrir utan rekstrar- og fjárhags- stöðu Íslandsbanka þá nefnir Jón Guðni að fjárfestar hafi mikið horft til þess hvernig efnahagsástandið væri almennt á Íslandi um þessar mundir. Helstu áhyggjur þeirra í þeim efnum sneru að fjármagnshöft- um og starfsumhverfi fjármálafyrir- tækja. „Það bárust fréttir frá Íslandi að til stæði að hækka hinn sérstaka bankaskatt á skuldir fjármálafyrir- tækja enn frekar á sama tíma og við vorum með fjárfestakynningar. Það var vissulega ekki auðvelt að útskýra þau mál fyrir áhugasömum fjárfest- um,“ segir Jón Guðni. Stefnt er að skráningu skuldabréf- anna í Kauphöll Írlands næstkom- andi mánudag. Fjárfestar telja „Ísland á réttri leið“  Íslandsbanki stefnir að frekari útboðum erlendis Morgunblaðið/Ómar Tímamót Íslandsbanki lauk sínu fyrsta erlenda skuldabréfaútboði fyrir helgi. Skuldabréfaútgáfan var aðeins önnur slík íslensks banka frá 2007. 9 milljarða útboð » Íslandsbanki fékk nokkuð lægri vaxtakjör í erlendu skuldabréfaútboði, sem lauk fyrir helgi, samanborið við út- boð Arion banka sl. febrúar. » Pareto gaf Íslandsbanka lánshæfismatið BB+ en Arion banka BB. » Til skoðunar að nota fjár- munina til að greiða inn á gjaldmiðlaskiptasamning við Seðlabankann. Jón Guðni Ómarsson ● Gengi Banda- ríkjadals og evru hækkaði enn einu sinni gagnvart jap- anska jeninu á gjaldeyrismarkaði í Tókýó í gær og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Er þetta rakið til jákvæðra frétta af bandarísku efnahagslífi. Talið er líklegt að bankastjórn Seðlabanka Bandaríkj- anna muni í næstu viku tilkynna að dregið verði úr sértækum aðgerðum til stuðnings efnahagslífinu. Í Tókýó hækkaði Nikkei hlutabréfavísitalan um 0,40%, í Sydney nam hækkunin 0,71% og í Seúl lækkaði vísitalan um 0,26%. Dollar og evra styrkjast enn gagnvart jeninu Stuttar fréttir… ● Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin mark- aðsstjóri Íslands- hótela, en undir Ís- landshótelum eru m.a. Fosshótel- keðjan og Reykja- víkurhótel. Um nýtt starf er að ræða og mun Ósk Heiða meðal annars sjá um mótun stefnu Íslandshótela í mark- aðsmálum og markaðssetningu á vörum og þjónustu þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum. Ósk Heiða er með mastersgráðu í al- þjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands, en hluta námsins tók hún við Copenhagen Business School. Ósk Heiða ráðin mark- aðsstjóri Íslandshótela Ósk Heiða Sveinsdóttir ● Neysluútgjöld heimila 2010-2012 jukust um 2% að raunvirði frá 2009-2011, samkvæmt frétt á heimasíðu Hagstofunnar. Neysluútgjöld á heimili árin 2010–2012 voru 476 þúsund krónur á mánuði og hafa aukist um 7,3% frá tímabilinu 2009– 2011. Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% frá 2011 til 2012 og hafa heimilisútgjöldin aukist um 2,0% að teknu tilliti til verð- breytinga. Á heimili búa að meðaltali 2,4 einstaklingar. Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni voru 533 þúsund krónur á mánuði. Ráðstöfunartekjur flestra hópa voru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali 89% af ráðstöf- unartekjum. Í úrtaki voru 3.565 heimili, 1.772 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun 49,7%. Útgjöld heimilanna jukust um 2% 2010-2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.