Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 45

Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 45
45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Jólapeysur Verðlaun voru veitt í Hörpu í gær fyrir jólapeysur í fjáröflunarátaki Barnaheilla sem fram fór á áheitavefnum jolapeysan.is. Gallerí Gimli fékk verðlaun fyrir fallegustu peysuna, Margrét Helgadóttir fyrir ljótustu peysuna, Unnur Steinsson fyrir frumlegustu peysuna, ritstjórn Kvennablaðsins fyrir bestu glamúrpeysuna og Bryndís og Árni fyrir bestu nördapeysuna. Golli Þessa dagana eru miklir annatímar á Al- þingi. Löng umræða varð um Fjáraukalög fyrir árið 2013 og Fjárlög næsta árs liggja fyrir til af- greiðslu. Við sem styðjum ríkisstjórnina erum ánægð með gang mála og horfum vonglöð til framtíðar. Aðalbaráttumál stjórnarflokkanna í síðustu kosn- ingum er að fá farsælan fram- gang. Fundin var sameiginleg niðurstaða þar sem helstu áherslur beggja stjórnarflokk- anna til bjargar heimilunum í landinu fengu farveg. For- sendubresturinn vegna verð- tryggðra skulda heimilanna verð- ur leiðréttur að mestu með skattheimtu á lánastofnanir og með ráðstöfun séreignarlífeyr- issparnaðar. Þrátt fyrir að Fjáraukalög 2013 séu að mestu afleiðing af óraun- hæfri fjárlagagerð síðustu rík- isstjórnar, hafði stjórnarand- staðan allt á hornum sér. Hún tók þá ýmsar ákvarðanir um verulegar hækkanir nokkurra út- gjaldaliða sem ekki var innstæða fyrir og bætti síðan um betur í síðustu kosningabaráttu með stórfelldum fyrirheitum um greiðslur á næsta fjárlagaári. Það er ásetningur núverandi rík- isstjórnar að afgreiða hallalaus fjárlög fyrir næsta ár, þannig að óhjákvæmilegt er að draga sumt til baka sem fyrri stjórn gaf fyr- irheit um. Ríkisstjórnin stendur vörð um félags- og heilbrigðismál. Ákveðið er að auka framlög til sjúkra- stofnana um fjóra milljarða frá því sem tillaga var gerð um í frumvarpinu. Allt að 6 þúsund milljónir króna fara til al- mannatrygginga, mest til styrktar eldri borg- urum og öryrkjum. Þannig er verið að draga til baka skerð- ingar sem eldra fólk varð fyrir upp úr hruni. Skattar á milli- tekjur lækka um 5 þúsund milljónir og til leiðrétt- ingar á forsendubresti húsnæð- islána eru ætlaðar 20 þúsund millj- ónir með bankaskattinum. Þessar viðbótargreiðslur nema 35 millj- örðum til heimilanna í landinu.Til meðferðar eru í þinginu frumvörp um frestun á nauðungarsölum og til að gera fólki léttbærara að komast í gegnum gjaldþrot. Þá verður ungu fólki auðveldað að kaupa sína fyrstu íbúð með því að veita afslátt af stimpilgjöldum. Við stjórnarsinnar getum því verið ánægð og stolt yfir hallalaus- um fjárlögum næsta árs og að jafnframt hafi tekist að koma helstu stefnumálum flokkana í höfn til hagsbóta fyrir heimilin og heilbrigðiskerfið. Eftir Sigrúnu Magnúsdóttur » Stolt yfir hallalaus- um fjárlögum og að jafnframt hafi tekist að koma helstu stefnu- málum í höfn til hags- bóta fyrir heimilin og heilbrigðiskerfið. Sigrún Magnúsdóttir Höfundur er þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Stórkostleg fjárlög Eftir að íslenskir kjúklingaframleið- endur viðurkenndu á dögunum að hafa flutt inn erlenda kjúklinga og selt til neytenda sem íslenska hefði verið hægt að ímynda sér að viðbrögð stjórnvalda yrðu þau að afnema, eða í það minnsta draga úr, þeirri gríð- arlegu innflutningsvernd sem ís- lenskir kjúklingaframleiðendur búa við. Hin einstaka hreysti íslenska of- urkjúklingsins væri kannski aðeins orðum aukin. Hin miklu rök um fæðuöryggi þjóðarinnar héldu kannski ekki þegar á reyndi. Virðing fyrir neytendum í þessu landi og rétti þeirra til að fá réttar upplýs- ingar um uppruna vöru væri kannski undir meðallagi. Það hefur sennilega verið of mikil bjartsýni að búast við því að stjórn- völd brygðust hratt við. Það hefur sjaldan gerst þegar um er að tefla hagsmuni íslenskrar búvörufram- leiðslu annars vegar og hagsmuni ís- lenskra neytenda og íslenskrar verslunar hins vegar. Fyrir nokkrum dögum bárust fréttir af því að það kynni að stefna í smjörskort hér á landi fyrir jólin. Svo alvarlegt var ástandið að aðild- arfélög Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, sem eru hagsmuna- samtök afurðastöðva í mjólkuriðn- aði, sáu sína sæng upp reidda og pöntuðu nær níutíu tonn af írsku smjöri til þess að geta annað eft- irspurn. Mikið var haft við enda um sérpöntun að ræða sem ekki varð af- greidd í einu vetfangi. Eftir að írsk- um mjólkurbændum hafði tekist að fram- leiða upp í hina sér- stöku íslensku pöntun leysti smjörgámurinn landfestar á Írlandi og sigldi seglum þöndum norður Atlantshaf. Þar með var tryggt að ís- lenskir neytendur fengju notið hins írska smjörs nú í jólamán- uðinum, eftir að hafa verið fullvissaðir um að ekkert væri að óttast, þar sem um „staðalsmjör“ væri að ræða sem væri fyllilega sambærilegt hinu íslenska eðalsmjeri bæði að gæðum og útliti. Einhver kynni að hafa ímyndað sér að viðbrögð stjórnvalda við yf- irvofandi smjörskorti hefðu verið þau að heimila tollfrjálsan innflutn- ing til þess að mæta hinni yfirvof- andi þörf. Ekki frekar en í öðrum sambærilegum tilvikum örlaði á við- brögðum frá stjórnvöldum. Hin nú- tímavædda íslenska einokun í mjólk- urframleiðslu skyldi óáreitt fá að flytja inn hið írska „staðalsmjör“, án þess að það hvarflaði að stjórnvöld- um að nýta mátt samkeppninnar og hleypa öðrum fyrirtækjum að því borði. Þessi tvö grátbroslegu tilvik sýna vel það öngstræti við erum komin í með viðskipti með landbúnaðarvörur og þá innflutningsvernd sem greinin nýtur. Hvernig stjórnvöld geta réttlætt þá gríðarháu tollvernd sem kjúk- lingaframleiðslan nýtur, eftir að framleiðendur hafa viðurkennt að hafa villt um fyrir neytendum, er erfitt að sjá. Þeir hafa með þessu viðurkennt að erlendir kjúklingar séu „fullgóðir“ fyrir íslenska neyt- endur, að neytendur í landinu hafi ekkert að óttast. Rökin fyrir fæðu- örygginu eru einnig fokin út í veður og vind, þar sem þetta dæmi sýnir að innlend framleiðsla hefur með reglu- bundnum hætti þurft að láta erlenda kjúklingaframleiðendur hlaupa und- ir bagga með sér. Virðingarleysið fyrir íslenskum neytendum sem þetta tilvik lýsir er algert. Innlendir framleiðendur á smjöri geta nú ekki annað innlendri eft- irspurn, þannig að Mjólkursam- salan, einokunarfyrirtæki í mjólk- urframleiðslu, flytur athugasemda- laust inn níutíu tonn af smjöri í jólamánuðinum. Þegar það hentar er bent á að írska smjörið sé á allan hátt sambærilegt því íslenska að gæðum. Rökin fyrir þeirri innflutn- ingsvernd sem íslensk mjólkurfram- leiðsla nýtur eru þar með fokin út í veður og vind. Rökin gegn því lög- boðna samkeppnisleysi sem ríkir í íslenskri mjólkurframleiðslu eru augljósari en nokkru sinni fyrr. Hér með er lýst eftir stjórnmála- manni sem hefur þor til að taka þessi mál föstum tökum, stjórnmálamanni sem vill tala máli neytenda og ekki síður þess stóra hóps fólks sem byggir afkomu sína á öflugri ís- lenskri verslun. Eftir Andrés Magnússon »Hér með er lýst eftir stjórnmálamanni sem hefur þor til að taka þessi mál föstum tökum, stjórnmálamanni sem vill tala máli neyt- enda … Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Hinn íslenski ofurkjúklingur og hið íslenska staðalsmjör
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.