Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er búin að ganga með þann draum í um þrjá áratugi að taka upp og gefa út þessa tónlist,“ segir Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari um nýja út- gáfu af strengjakvartettum Jóns Leifs, sem nefnist Eilífð og Kamm- ersveit Reykjavíkur og Smekkleysa gefa út. Á plötunni leika félagar úr Kammersveitinni verkin Mors et vita op. 21 frá árinu 1939, Vita et mors op. 36 sem tónskáldið samdi á árunum 1948-51 og El Greco op. 64 frá árinu 1965. Kvartettinn skipa auk Rutar, sem leikur fyrstu fiðlu, Sigurlaug Eðvaldsdóttir sem leikur aðra fiðlu, Þórunn Ósk Mar- inósdóttir á víólu og Hrafnkell Orri Egilsson á selló. Aðspurð segist Rut fyrst hafa kynnst kvartettum Jóns Leifs þegar Kammersveit Reykjavíkur spilaði Mors et vita árið 1977. „Það verk er aðgengilegast og styst. El Greco er líka nokkuð aðgengilegur, en það er Vita et mors sem stendur í flestum,“ segir Rut og bendir á að verkið sé eitt fjögurra verka sem Jón Leifs samdi í minningu dóttur sinnar, Líf- ar, sem drukknaði aðeins 17 ára gömul. „Þegar við í Reykjavíkur- kvartettinum fluttum verkið á Myrk- um músíkdögum árið 1991 hafði það ekki heyrst í um tuttugu ár síðan kvartett Björns Ólafssonar spilaði það á sínum tíma.“ Spurð hvað það sé við Jón Leifs sem heilli hana segir Rut að tón- skáldinu takist með svo áhrifaríkum hætti að fanga hinn innsta kjarna og náttúru Íslands. „Jón Leifs hefur alltaf heillað mig,“ segir Rut, sem ár- ið 1991 fékk heiðursviðurkenningu STEFs fyrir að stuðla að kynningu og flutningi á verkum Jóns Leifs. „Ég hef svo sannarlega reynt að standa mig í því að halda nafni hans á lofti og með þessum nýja diski er Kammersveit Reykjavíkur búin að gefa út öll kammerverk Jóns Leifs á tveimur diskum,“ segir Rut, en fyrri diskurinn, Erfiljóð, kom út árið 2005. Þeir skildu ekki Jón Leifs Í samtali við Morgunblaðið dregur Rut ekki dul á að það hafi verið óhemjumikið verk að taka kamm- erverkin þrjú á Eilíf upp og koma út. „Það var fyrst með Reykjavíkur- kvartettinum, sem starfaði 1990- 1993, sem þetta hefði verið gerlegt, en við í þessum hóp sem spilar á disknum höfum starfað alllengi sam- an. Þetta er frábær hópur sem hefur staðið með mér öll þessi ár í gegnum súrt og sætt,“ segir Rut og heldur áfram: „Þessi verk eru mjög tækni- lega krefjandi. Það er óhætt að segja að Jón hafi ekki kunnað mikið á strengjahljóðfæri, miðað við hvernig verkin eru skrifuð. Það liggur við að á löngum köflum séu átta raddir í gangi, sem þýðir tvær nótur á mann, sem er allt í lagi af og til, en mjög mikið þegar það er viðvarandi. Einn- ig má nefna að í El Greco notar hann mikið tremolo, sem er mjög hraður bogi. Að spila slíkt langtímum saman er líka mjög þreytandi. Þannig að það þarf mikið úthald til að spila þá alla á einum tónleikum,“ segir Rut og rifjar upp að hópurinn hafi ein- mitt leikið öll þrjú verkin á sömu tónleikunum á Listahátíð 2007. Að sögn Rutar dró það ekki úr henni kjarkinn þegar BIS-útgáfan gaf verkin þrjú út árið 1994. „Ef eitt- hvað er þá varð ég ennþá staðráðn- ari í því að gefa þetta sjálf út einn daginn,“ segir Rut og heldur áfram til útskýringar: „Í útgáfu BIS var sænski Yggdrasil-kvartettinn feng- inn til að leika verkin. Þetta eru mjög góðir hljóðfæraleikarar sem spila mjög vel. Þeir spila þetta hins vegar mjög fágað eins og hverja aðra tónlist, en mér fannst vanta meiri hörku, hraðara tempó á köflum og minna víbrató. Mér fannst þeir ein- faldlega ekki skilja Jón Leifs og hvernig Ísland birtist í tónlist hans,“ segir Rut og bendir á að kamm- erverk Jóns Leifs séu mjög frá- brugðin stóru hljómsveitarverkum hans. „Þar fer mikið fyrir slagverki og hávaða sem heillar marga. „Stóru verkin hans eru auðvitað stórbrotin, en kammerverkin eru innilegri,“ segir Rut og segist sannfærð um að margir hefðu gaman af því að hlusta á kammerverkin hans og kynnast tónmálinu. Ánægð með langan aðdraganda „Í raun er ég mjög ánægð með hvað það hefur tekið mig langan tíma að gefa þessa kvartetta út,“ segir Rut og heldur áfram til útskýr- ingar: „Það hefur veitt mér tækifæri til að koma endurtekið að þessum mögnuðu verkum. Auk þess hefur tíminn gefið mér færi á að kafa dýpra í þau.“ Aðspurð að lokum segist Rut hafa nóg að gera við að sinna útgáfu- málum Kammersveitar Reykjavík- ur. „Ég gerði samning við Stúdíó Sýrland um að ljúka við að klippa all- ar þær upptökur sem til eru með sveitinni. Væntanlegur á næstu dög- um er diskur með kammerverkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en einsöngvarar eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurð- arson og Marta Hrafnsdóttir. Í handraðanum eigum við efni í fimm geisladiska með íslenskum verkum og aðra þrjá með klassískum verk- um. Vonandi koma þeir allir út á næstu árum.“ „Gamall draumur“  Eilífð nefnist nýr diskur með strengjakvartettum Jóns Leifs Krefjandi verk Flytjendur strengjakvartetta Jóns Leifs á nýjum diski eru fiðluleikararnir Rut Ingólfsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu og Hrafnkell Orri Egilsson á selló. Sönghópurinn Reykjavík 5 ásamt djasstríói heldur jólatónleika í Frí- kirkjunni í Reykjavík annað kvöld kl. 20. Sönghópinn skipa þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Gísli Magna, Hera Björk Þórhallsdóttir, Kristjana Stef- ánsdóttir og Þorvaldur Þorvalds- son. Sex ár eru liðin síðan hópurinn kom síðast fram á tónleikum. Um hljóðfæraleik á tónleikunum sjá Gunnar Gunnarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur. Reykjavík 5 með jólatónleika Kristjana Stefánsdóttir Dimma blæs til tvennra þungarokks- tónleika í Kaldalóni í Hörpu í kvöld kl. 20.00 og 22.30. Dimma sendi fyrr á árinu frá sér tvöfalda tón- leikadiskinn Myrkraverk í Hörpu á CD/ DVD og er ætlunin að fagna útgáf- unni með því að flytja verkið Myrkraverk í heild sinni, ásamt eldri lögum. Hljómsveitina skipa þeir Stefán Jakobsson söngvari, Birgir Jónsson á trommur, Silli Geirdal á bassa og Ingó Geirdal á gítar. Dimma leikur Myrkraverk Þungarokkssveitin Dimma. Hönnunarsjóður hefur úthlutað í fyrsta skipti til hönnuða og arki- tekta, ríflega 41 milljón króna. Rúm- lega 200 umsóknir bárust sjóðnum og var sótt um yfir 400 milljónir, tí- falda upphæðina sem var til skipt- anna. Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs; þróunar og rannsókna, verkefna og markaðs- starfs auk sérstakra ferðastyrkja. Alls hljóta 29 verkefni styrk auk þess sem veittir eru 20 ferðastyrkir til 13 verkefna. Styrkupphæðirnar eru flestar á bilinu 1 – 2,5 milljónir en hæsti styrkurinn er 3,8 milljónir að þessu sinni. Ferðastyrkirnir nema allir 100 þúsundum. Hæsta styrkinn hlýtur verkefnið „Ný ævintýri Víkur Prjónsdóttur“. Studiobility fær 2,2 milljónir vegna „Selected by Billy“ og Dögg Guð- mundsdóttir 2,1 milljón vegna „Yf- irlit og nýtt“. Tvær milljónir króna fengu fjögur verkefni en forsvars- menn þeirra eru Katrín Ólína Pét- ursdóttir, Dagný Bjarnadóttir, Signý Kolbeinsdóttir og G. Orri Finnbogason. Verkefni Maríu Krist- ínar Jónsdóttur, „Staka“, er styrkt um 1,8 milljónir, fimm verkefni hljóta 1,5 milljónir og níu hljóta 1 milljón króna í styrki. Meðal verkefnanna eru nýjar fatalínur leiðandi sem og ungra fata- hönnuða. Þá hljóta fatahönn- unarfyrirtæki styrki til markaðs- setningar erlendis. Það gera líka vöru- og húsgagnahönnuðir en þar er um að ræða mikilvæga fjárfest- ingu í starfsemi margra hönnuða og fyrirtækja. Úthlutað úr Hönnunarsjóði Katrín Ólína Pétursdóttir María Kristín Jónsdóttir Verið velkomin Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands: Laugardagur 14. desember kl. 11: Stúfur og Grýla skemmta Laugardagur 14. desember kl. 12: Fyrirlestur á ensku um íslenska jólasiði Sunnudagur 15. desember kl. 11: Þvörusleikir skemmtir Jólasveinar skemmta börnum daglega kl. 11 alla daga til jóla Jólasýningar og jólaratleikur Safnbúð og kaffihús. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17. Listasafn Reykjanesbæjar ENDURFUNDIR/REUNION Samsýning: Þórður Hall og Kristbergur Ó. Pétursson 1. nóv. – 15. des. Bátasafn Gríms Karlssonar Byggðasafn Reykjanesbæjar Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn SKÖPUNARVERK - KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR 8.11. 2013 - 19.1. 2014 KL. 14 - HEIMILDAMYND um Kristínu Gunnlaugsdóttur KL. 14:45 - LEIÐSÖGN í fylgd listamannsins um sýninguna GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013 GERSEMAR 8.11. 2013 - 19.1. 2014 SAFNBÚÐ - JÓLATILBOÐSDAGUR 15. des. á íslenskum listmunum og listrænni gjafavöru KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og eplakaka Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánud. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Lokað í desember og janúar. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Lokað í desember og janúar. Dvalið hjá djúpu vatni Rúna – Sigrún Guðjónsdóttir Kærleikskúlan 2003-2013 Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis (7.6. – 5.1.2014) Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Viðmið Paradigm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.