Morgunblaðið - 14.12.2013, Page 77
MENNING 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
kannski bara kynlífi eina nótt eða
svo. Hann finnur sér félaga, en sam-
böndin rakna; hann elskar Júlíu Ses-
ar ekki nógu mikið, Anitu Besse of
mikið og Helgu ekki neitt – hann
elskar að vera með Ungfrú Austur-
bæjarskóla æsku sinnar, en ekki
ungfrúna sjálfa.
Þegar upp er staðið er hann nefni-
lega hugfanginn af treganum, róm-
antískri depurð; raunir Werthers
unga, en án ákefðar og innri hvata;
það er allt úthverft á okkar sam-
félagsmiðlatímum og við nennum
ekki að vera áköf, fáum okkur bara
annan bjór og hækkum í græjunum.
Þegar allt er glatað, ástin kulnuð
(kannski var aldrei nein glóð) þá er
Cohen handhægur, réttir fram bikar
Haustið 1971 var ég staddur í partíi í
Kópavogi hjá stelpu sem ég var
skotinn í, þá fjórtán ára. Í safni for-
eldra hennar rakst ég plötu með
kanadíska tónlistarmanninum Leon-
ard Cohen, Songs of Love and Hate,
sem var þá nýút-
komin. Lögin á
henni voru ein-
föld en textarnir
heilluðu mig al-
gerlega, svo
rækilega að mér
rennur ekki úr
minni tilfinningin
við að heyra
Avalanche í
fyrsta sinn þó ég sé löngu búinn að
gleyma hvað stúlkan hét.
Leonard Cohen er söngvaskáld
brostinna vona, hirðskáld óhamingj-
unnar, lárviðarskáld ástar í meinum.
Hann er hvarvetna nálægur í Síð-
asta elskhuganum, skemmtilegri
skáldsögu Vals Gunnarssonar;
þunglyndisleg röddin raular undir
ástarsorgina sem gegnsýrir bókina
og kaflar úr einskonar ævisögu Co-
hens brjóta upp frásögnina. Sögu-
maður bókarinnar þræðir barina í
leit að ást eða uppgerðarást eða
biturðarinnar og sameinar tónlist og
ritlist; „[d]iskasafnið sagði manni
hver maður var“ og „[b]ókahillurnar
segja okkur hver við erum“ – sögu-
maður hlustar á plötur Cohens og
les bækur hans.
Sagan berst víða, frá Moskvu til
Montreal, Helsinki til New York,
Sankti Pétursborg til Reykjavíkur
og sögumaður er þó ekki bara að
segja sína sögu heldur líka okkar
sögu, samfélagssögu með hæfilega
kæruleysislegu kryddi. Víst eru Ís-
lendingar hænsn, en heimurinn er
hænsnakofi hvort eð er. Neðanmáls-
greinar höfundar skjóta og oft inn
meinlegum athugasemdum og skýr-
ingum sem eru stundum ekki skýr-
ingar: „Tilviljanir eru reyndar svo
algengar hér í borg að fólk tekur
þær gjarnan í misgripum fyrir ör-
lög,“ segir neðanmáls við stutta lýs-
ingu á hinni litlu borg Reykjavík þar
sem sjaldnast þarf að skipuleggja
nokkuð, það sé nóg að treysta á til-
viljanir.
Ég nefndi í upphafi plötuna Songs
of Love and Hate þar sem meðal
annars er að finna lykillagið Famous
Blue Raincoat sem segir frá ást-
arþríhyrningi líkum þeim sem Valur
rekur í sögunni af sögumanni og
Anitu Besse og franska hugsjóna-
manninum / bresku Brad Pitt-
eftirmyndinni / stórnefjaða Grikkj-
anum / illa hirta Belganum / lág-
vaxna Brasilíumanninum. Á vefnum
má finna myndskeið frá í sumar þar
sem Valur les uppúr bókinni og
syngur Cohen-lag með sínum texta -
lag um snjáðan bláan regnfrakka,
nema hvað.
Höfundurinn Cohen er hvarvetna
nálægur í sögu Vals Gunnarssonar.
Dreypt á bikar biturðarinnar
Skáldsaga
Síðasti elskhuginn bbbbn
eftir Val Gunnarsson.
Ormstunga gefur út. 201 bls. innb.
ÁRNI MATTHÍASSON
BÆKUR
Bill Burr verður með uppistand í
Silfurbergi Hörpu annað kvöld kl.
20. „Fyrr um kvöldið og á undan
Bill Burr koma fram tveir af bestu
grínistum landsins, þeir Ari Eld-
járn og Hugleikur Dagsson,“ segir í
tilkynningu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skipuleggjendum hefur
Burr m.a. gert það gott fyrir leik
sinn í Breaking Bad-seríunum.
Hann leikur í nýjustu mynd Söndru
Bullock sem ber nafnið The Heat.
„Hann á að baki langan og farsælan
feril og ætlar að stikla á stóru með
frábært uppistand.“
Hugleikur og
Ari hita upp
fyrir Bill Burr
Uppistand Hugleikur Dagsson
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lestrarfélagið Krummi hefur átt-
unda árið í röð kynnt tilnefningar
til verðlaunanna Rauðu hrafns-
fjaðrarinnar, sem veitt er fyrir for-
vitnilegustu kynlífslýsingu ársins í
íslenskum bókmenntum.
Tilnefnd að þessu sinni eru Heið-
rún Ólafsdóttir, Hugleikur Dags-
son, Jón Kalman Stefánsson, Sindri
Freysson, Sjón og Össur Skarphéð-
insson. Meðal fyrri verðlaunahafa
eru Auður Ava Ólafsdóttir, Eiríkur
Örn Norðdahl, Steinar Bragi og El-
ísabet Jökulsdóttir.
Sex tilnefnd til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar
Sigurvegari Karl Blöndal afhenti Auði
Övu hrafnsfjöðrina fyrir Undantekninguna.
Tilkynnt hefur verið að þrír erlend-
ir fræðimenn og höfundar hljóti nú
styrki sem kenndir eru við Snorra
Sturluson. 71 umsókn barst frá 20
löndum. Styrkina hljóta, til þriggja
mánaða dvalar, Rüstem Altinay,
Tyrklandi, til að þýða þrjú leikrit
eftir Jóhann Sigurjónsson; dr.
Przemyslaw Czarnecki, Póllandi,
til að skrifa kennslubók í forn-
íslensku, og Tapio Koivukari, Finn-
landi, til að kynna sér staðhætti og
skjöl um galdramál á Vestfjörðum.
Hljóta styrki
kennda við Snorra
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Pollock? (Kassinn)
Lau 14/12 kl. 19:30 24.sýn Sun 15/12 kl. 19:30 25.sýn
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýnigar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn
Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23.
sýn
Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn
Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 14/12 kl. 11:00 Sun 15/12 kl. 12:30 Lau 21/12 kl. 14:30
Lau 14/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 14:00 aukas. Sun 22/12 kl. 11:00
Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 12:30
Sun 15/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:00 aukas.
Uppselt á allar sýningar!
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn
Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30
Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Fetta bretta (Kúlan)
Lau 14/12 kl. 14:00 Lau 14/12 kl. 15:30
Ný barnasýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 mánaða til 3ja ára.
Mary Poppins –★★★★★ „Bravó“ – MT, Ftíminn
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 14/12 kl. 19:00 Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00
Sun 22/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 12/1 kl. 13:00
Fim 26/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00
Fös 27/12 kl. 19:00 Lau 4/1 kl. 13:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Lau 28/12 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Sun 29/12 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Þri 17/12 kl. 20:00 Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla bíói Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Mið 18/12 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Fim 19/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Fös 20/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Flytur í Gamla bíó í janúar v. mikilla vinsælda
Hamlet (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Fim 23/1 kl. 20:00 6.k.
Þekktasta leikrit heims
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 21/12 kl. 20:00 12.k Lau 4/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Sun 22/12 kl. 20:00 Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 14/12 kl. 11:00 aukas Lau 21/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 13:00
Lau 14/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 14:30 Fös 27/12 kl. 14:30
Lau 14/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 16:00 aukas Lau 28/12 kl. 13:00
Sun 15/12 kl. 11:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 14:30
Sun 15/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 13:00
Sun 15/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas Sun 29/12 kl. 14:30 aukas
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
RAGNHEIÐUR
ný ópera eftir
Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson
FRUMSÝNING Í ELDBORG 1. MARS 2014
GJAFAKORT SELD Í MIÐASÖLU HÖRPU
gefðu
óperusýningu
í jólagjöf