Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
Fararstjóri: Elísabet Margeirsdóttir
14. - 19. mars
Hálfmaraþon í NewYork
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
New York er að margra mati skemmtilegasta borg í heimi
og einn vinsælasti viðburður borgarinnar er hálfmaraþonið.
Hér gefst því einstakt tækifæri til að láta
drauminn verða að veruleika, hlaupa
hálfmaraþon í borginni sem aldrei sefur.
Verð: 198.700 kr. á mann í tvíbýli.
Mikill meirihluti Letta, 60%, erandvígur því að evra verði
tekin upp sem gjaldmiðill landsins.
Þetta breytir þó engu því að eftir
fjóra daga verður evran formlega
tekin upp í Lettlandi.
Lettarsam-
þykktu á sín-
um tíma að
ganga í Evrópusambandið og var
sú afstaða skiljanleg hjá þjóð sem
ella væri sennilega í svipaðri stöðu
og Úkraína er nú í gagnvart Rúss-
landi.
Fyrir ríki sem áratugum samanmátti sætta sig við að vera
undirokað innan Sovétríkjanna var
sjálfsagt að komast í sem best skjól
í vesturátt til að halda sem tryggi-
legast í nýfengið frelsi.
Ísland er í allt annarri og betristöðu og þarf ekki á því að halda
að láta segja sér til um gjaldmiðil
eða afsala sér stórum hluta full-
veldisins vegna aðsteðjandi ógnar.
Staða Letta nú hlýtur að verða Ís-lendingum umhugsunarefni.
Sú staðreynd að þeir neyðast um
áramótin til að taka upp mynt sem
þeir vilja ekki er aðeins enn eitt
dæmið um lýðræðishallann í Evr-
ópusambandinu og yfirgang stjórn-
valda í Brussel.
Og staða Letta hlýtur einnig aðverða til þess að flýta þeirri
ákvörðun sem óhjákvæmileg er í
tengslum við aðildarumsókn Ís-
lands að ESB og aðlögunarferlið
allt.
Augljóst er að Ísland mætti aldr-ei lenda í þeirri stöðu sem
Lettar eru nú í og tryggasta leiðin
til að forðast hana er að slíta við-
ræðunum.
Lettar neyddir til
að taka upp evru
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.12., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík -2 snjókoma
Akureyri -3 snjókoma
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 5 alskýjað
Lúxemborg 7 skúrir
Brussel 8 skúrir
Dublin 5 skúrir
Glasgow 7 skýjað
London 10 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 6 léttskýjað
Moskva -1 heiðskírt
Algarve 16 skýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 12 skúrir
Winnipeg -3 skafrenningur
Montreal -7 snjókoma
New York 1 alskýjað
Chicago 0 léttskýjað
Orlando 18 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:37
ÍSAFJÖRÐUR 12:08 15:02
SIGLUFJÖRÐUR 11:53 14:43
DJÚPIVOGUR 11:01 14:58
Aukin tækni kallar á nýyrði og í
Morgunblaðinu í gær var sér-
stakur flugbúnaður, sem m.a. er
talinn geta nýst við leit að týndu
fólki, nefndur flygildi eða drónur.
Jón Þóroddur Jónsson fjar-
skiptaverkfræð-
ingur vill að
tækið sé kallað
vélfluga.
Í 3. útgáfu Ís-
lenskrar orða-
bókar, sem kom
út 2002, segir að
flygildi sé eitt-
hvað fljúgandi,
flugtæki gert af
mannahöndum. Í
sömu bók er vélfluga skýrð sem
vélknúin flugvél. Orðið dróna er
ekki til í orðabók en enska nafn-
orðið drone er karlbýfluga á ís-
lensku. Morgunblaðið greindi frá
því 2008 að lögð hefði verið 260
metra flugbraut fyrir flygildi á
Hólmsheiði. Fyrirtækið Flygildi
ehf. var stofnað í fyrra til að þróa
og markaðssetja sjálfvirk flygildi
og vélfugl sem flýgur með vængja-
slætti.
Jón Þóroddur Jónsson situr í
orðanefnd rafmagnsverkfræðinga,
sem hittist vikulega, og segist að-
eins hafa rætt þetta í nefndinni.
Hann segir að orðið dróna hafi
verið notað um umrætt fyrirbæri
sem og flygildi. „Flugvél er vel
þekkt fyrirbæri og vélfluga er gott
og gamalt íslenskt orð. Það er ná-
kvæmlega það sem þetta er, vél-
fluga,“ segir hann. Jón Þóroddur
áréttar að enska skýringin á dro-
nes sé lítil fluga með mótor að
fljúga. Vélfluga.
„Þetta er fínt orð og miklu auð-
veldara í munni heldur en flygildi,“
segir Jón Þóroddur og bætir við
að menn greini á um hvort skrifa
eigi flygildi, flýgildi eða flígildi.
Orðið er frjálst. steinthor@mbl.is
Orðið vélfluga
frekar en flygildi
Morgunblaðið/Golli
Jón Þóroddur
Jónsson
Jón Þ. Jónsson
leggur orð í belg
Ferðaskrifstofuleyfi fyrirtækisins Ævintýrareisur
ehf., eða Luxury Adventures, við Askalind í Kópa-
vogi, hefur verið fellt úr gildi vegna rekstrarstöðv-
unar. Innköllun þessa efnis er birt í Lögbirtinga-
blaðinu í gær, 27. desember.
Starfsemi ferðaskrifstofunnar var trygginga-
skyld samkvæmt lögum um skipan ferðamála. Sam-
kvæmt lögunum er tryggingu ætlað að endurgreiða
fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna svonefndr-
ar alferðar, sem enn er ófarin, og til heimflutnings
viðskiptavinar úr alferð. Í Lögbirtingi er skorað á
viðskiptavini fyrirtækisins að leggja fram skriflegar
kröfulýsingar í tryggingarféð innan 60 daga frá
birtingunni í Lögbirtingablaðinu. Skal beina kröf-
um til skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri.
Engar kröfur komnar
Helena Karlsdóttir, lögfræðingur Ferðamála-
stofu, sagði við Morgunblaðið í gær að engar kröfur
hefðu borist. Hún sagði það gerast öðru hvoru að
ferðaskrifstofur skiluðu inn leyfum sínum þegar
breytingar yrðu á rekstri og fyrirkomulagi á sölu
ferða. Þannig þyrfti t.d. ekki ferðaskrifstofuleyfi til
að selja ferðamönnum dagsferðir.
Ólafur Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Luxury
Adventures, sagðist ekki reikna með að neina kröf-
ur bærust, enda væru honum vitanlega engar úti-
standandi ferðir sem hefði verið selt í en ekki farn-
ar. Verið væri að breyta rekstrinum og skipta um
áherslur. Starfsemin héldi áfram með öðru sniði en
Ólafur sagði starfsfólki hafa fækkað síðan í sumar,
þegar háannatíminn er í ferðamennskunni.
bjb@mbl.is
Ævintýrareisur skila inn leyfinu
Eigandinn segist ætla að breyta um áherslur hjá ferðaskrifstofunni