Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 Edilon Hreinsson segist ekki ætla að gera mikið úr því þó hanneigi afmæli í dag. Þvert á móti hyggst hann taka það rólega.„Kannski að við förum út og fáum okkur hamborgara eða eitthvað,“ segir Edilon. Hann starfar hjá þjónustufyrirtækinu Brammer. Edilon er fyrrverandi knattspyrnumaður og lék hann meðal annars með KR, Fram og Haukum. Eiginkona hans heitir Ragnhildur Ísaksdóttir og saman eiga þau börnin Stefaníu Diljá sem er átta ára og Ísak Inga sem er fjögurra ára. Hann segir fínt að eiga afmæli á þessum árstíma. „Maður fékk oft jóla- og afmælisgjafirnar saman. Ég fékk ekkert stærri gjafir fyrir vikið en ég man ekki eftir því að það hafi angrað mig. Ég get þó fullyrt að það hafi ekki haft áhrif á mig á fullorðinsárum,“ segir Edilon og hlær við. Edilon ólst upp á Brávallagötunni og segir að hann hafi grun um að mamma hans hafi verið fyrirmyndin að Bibbu á Brávallagötunni þó hann geti ekki fullyrt það. Hann er mikill KR-ingur og stuðningsmaður Manchester United. „Ég fór á lokaleikinn hjá Alex Ferguson í fyrra. Það var mjög gaman,“ segir Edilon. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti og nam mannfræði við Háskóla Íslands. „Ég á reyndar eftir að skrifa ritgerðina eins og klassíkt er. En ég er byrjaður á henni,“ segir Edilon að lokum. vidar@mbl.is Edilon Hreinsson er 35 ára í dag 35 ára Edilon Hreinsson er 35 ára gamall í dag. Hann ætlar ekki að halda sérstaklega upp á daginn en gæti þó fengið sér hamborgara. Ætlar kannski að fá sér hamborgara Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Alexander Leó fæddist 4. apríl. Hann vó 4246 g og var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru Brynjar Reynisson og Jónína Margrét Sveins- dóttir. Nýir borgarar Hafnarfjörður Mía Ísabella fæddist 30. apríl. Hún vó 2780 g og var 46,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Ýr Káradóttir og Anthony Baciga- lupo. V ilhjálmur fæddist á Lindargötu 11 í Reykjavík, í timburhúsi sem afi hans byggði og enn stendur. Þar ólst hann upp í nábýli við athafnalífið; höfnina, Landssímann, Landssmiðj- una og Völund svo fátt sé nefnt. Vilhjálmur var sex sumur í sveit, lengst af á Ströndum: „Ég fór einn norður í rútu tíu ára og þekkti eng- an í Arnkötludal, en leið strax vel hjá því öndvegisfólki. Húsakostur var að hluta úr torfi og búskapar- hættir fornir. Björn fóstri sagði áratugum síðar að þetta yrði kallað barnaþrælkun nú til dags en ég hefði ekki viljað missa dag úr.“ Leiðin lá í Miðbæjarskólann, landspróf í Vonarstræti og stúd- entspróf frá MR. Próf í rafeinda- og Vilhjálmur Þór Kjartansson verkfræðingur – 70 ára Á Kauai-eyju 2011 Villi með loftnet í flugdreka. Póstkort radíóamatöra til staðfestingar á sambandi, QSL. Fjallarefur, radíóama- tör og djassgeggjari Fjölskyldan 2002 Vilhjálmur, Guðrún, Deepa, Hannes, Geetha og Kris Iyengar. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is STIGAR OG TRÖPPUR Á 20% AFSLÆTTI* ÁLHJÓLA PALLAR OG -VEGGJA PALLAR AFSLÁTTUR* 25% * Sorpkvarnir AF BRIMRÁSAR STIGUM OG TRÖPPUM *Tilboðin gilda til áramóta eða á meðan birgðir endast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.