Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nýliðun lunda í Vestmannaeyjum hefur verið neikvæð í ellefu ár samfleytt. Þar hefur verið fram- kvæmd lengsta rannsókn á við- komu lunda hérlendis. Lundaveiðar í Eyjum hafa verið ósjálfbærar all- an þann tíma. Athuganir Papey- inga benda til viðvarandi pysju- dauða þar allt frá 2005. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu fuglafræðinganna Erps Snæs Han- sen og Arnþórs Garðarssonar. Nú- verandi viðkomubrestur lundans í Vestmannaeyjum hófst árið 2003. „Ungfuglastofninn er nú næstum horfinn og vantar um 2 milljónir fugla í stofninn eða helming stofns- ins eins og hann var samsettur fyr- ir 2003,“ segir m.a. í skýrslunni. Erpur Snær segir vísbendingar vera um að ungfuglinn sé horfinn víðar en í Vestmannaeyjum. Það sé líklega lítið sem ekkert eftir af ungfugli á hlýsjávarsvæðinu við sunnan- og vestanvert landið. Um 75% varpstofns lunda hér við land hafa verið á þessu svæði. Árleg meðalveiði lunda í Vest- mannaeyjum á árunum 1968-2007 var um 77.600 fuglar á ári. Fram kom á liðnu vori í Morgunblaðinu að frumútreikningar bentu til þess að þessar veiðar hefðu verið ósjálf- bærar. Frumútreikningarnir hafa verið dregnir til baka því nýir út- reikningar sýna að veiðarnar á þessu tímabili hafi verið innan sjálfbærnimarka. Eftirlit með myndavélum Erpur Snær og samstarfsmenn hans hafa stundað viðamiklar rannsóknir á viðkomu lundans hringinn í kringum landið undan- farin ár. Á síðasta sumri voru farn- ir tveir leiðangrar umhverfis land- ið til gagnaöflunar. Tólf lundabyggðir hringinn í kringum landið voru heimsóttar. Ábúðar- hlutfall á hverjum stað var mælt með holumyndavél og viðkoma mæld. Erpur hefur sótt um styrk til Veiðikortasjóðs vegna kaupa á sex sjálfvirkum myndavélum. Þær er hægt að nota til að fylgjast með af- drifum varpsins, fæðusamsetningu og mötunartíðni á afmörkuðu svæði í lundavarpi. Erpur segir að sér- stakur hugbúnaður geti unnið úr myndunum og tegundagreint fæð- una sem lundarnir bera í ungana. Þannig sést hvort það er t.d. sand- síli eða loðna sem pysjurnar fá. Boð Tom Hart, prófessors við Oxford-háskóla, um þátttöku í al- þjóðlegu samstarfi um lundarann- sóknir hefur verið þegið. Hart hef- ur notað sjálfvirkar myndavélar við rannsóknir á mörgæsum á Suð- urskautslandinu. Sótt verður um styrk erlendis til kaupa á tugum sjálfvirkra myndavéla sem notaðar verða í íslenskum lundabyggðum og víðar við Norður-Atlantshafið við að fylgjast með viðkomu lund- ans. Ungfugl lunda er víða horfinn  Íslendingum boðið í alþjóðlegt samstarf um lundarannsóknir  Ráðgert er að setja upp sjálfvirkar myndavélar í lundabyggðum  Hugbúnaður getur greint hvaða fæðu lundinn ber í pysjurnar Morgunblaðið/Eggert Lundar Talið er að í Vestmannaeyjum vanti um tvær milljónir ungfugla í lundastofninn eða um helming stofnsins eins og hann var fyrir árið 2003. Árum saman hefur varp lundans misfarist við Suður- og Vesturland. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 REYKJAVÍK kl.: 17:00 til 19:00 Fundarstaður: Stórhöfði 25, 3 hæð. DAGSKRÁ: Málefni vélstjóra á sjó V M - F É L A G V É L S T J Ó R A O G M Á L M T Æ K N I M A N N A St ó r h ö f ð a 2 5 - 1 1 0 R e y k j av í k - 5 7 5 9 8 0 0 - w w w. v m . i s Nánari upplýsingar á heimasíðu VM, www.vm.is. VM heldur félagsfund í Reykjavík mánudaginn 30. desember. FÉLAGSFUNDUR VM F é l a g s v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a Lundarannsóknir 2013 er heiti nýrrar skýrslu eftir fuglafræð- ingana dr. Erp Snæ Hansen, sviðsstjóra vistfræðirannsókna við Náttúrustofu Suðurlands, og dr. Arnþór Garðarsson, pró- fessor emeritus við Háskóla Íslands. Í skýrslunni er greint frá vöktun viðkomu, fæðu og líftölu og könnun vetrarstöðva lundans. Um er að ræða skýrslu til Veiðikortasjóðs sem styrkt hefur lundarannsóknir hér á landi undanfarin ár. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur lundinn átt erf- itt uppdráttar mörg undan- farin ár. Varp hefur misfarist og pysjur ekki komist upp við sunnan- og vestanvert landið. Ástæður þess hafa m.a. verið raktar til hlýnunar sjávar og hruns í sandsílastofninum. Sandsílið er mikilvæg fæða fyrir pysjurnar og eins full- orðnu lundana, ekki síst um varptímann. Hægt er að lesa skýrsluna á vef Náttúrustofu Suðurlands (www.nattsud.is). Lundinn rannsakaður LUNDARANNSÓKNIR 2013 Um þessar mundir stendur yfir sýn- ing í Safnahúsinu í Borgarnesi um hagleiksmanninn og listunnandann Hallstein Sveinsson. Þar má sjá listaverk frá blómatíma íslenskrar myndlistar um miðja síðustu öld en Hallsteinn rammaði inn myndir fyrir listamenn á þeim tíma og átti þá marga að góðum vinum. Samkvæmt upplýsingum frá Safnahúsinu hefur sýningin verið mjög vel sótt og m.a. margir komið sem þekktu Hallstein persónulega. Meðal þeirra eru bræðurnir Jónas, Hávarður og Ingólfur Helgi Tryggvasynir sem komu á sýn- inguna skömmu fyrir jól. Þekktu þeir Hallstein að góðu þegar þeir ól- ust upp í Háaleitishverfinu í Reykja- vík um og uppúr 1960. Hallsteinn átti hús á þeim slóðum sem kallað var Uppland. Húsið stóð við Háaleit- isveg, nú Háaleitisbraut, en var rifið árið 1971 þegar Hallsteinn flutti í Borgarnes. Ýmsir listamenn og vinir Hall- steins voru þar heimagangar um árabil, en það átti líka við um krakka í hverfinu sem komu oft til Hall- steins. Leyfði hann þeim m.a. að smíða hitt og þetta á verkstæðinu sínu og búa til sinn ævintýraheim. Bræðurnir þrír segjast minnast Hallsteins með mikilli hlýju og glöddust þeir við að sjá handverk hans á sýningunni í Borgarnesi. Við brottför rituðu þeir eftirfarandi í gestabók Safnahússins: „Fortíðarþráhyggja hríslaðist um okkur, þegar við sáum sýninguna um Hallstein vin okkar. Hann leyfði okkur oft að dunda við smíðar, hvort sem það var eilífðarvél eða raf- magnsgítar. Blessuð sé minning hans.“ Sýningin um Hallstein Sveinsson stendur yfir fram að 28. janúar nk. og er opin alla virka daga frá kl. 13 til 18 í Safnahúsinu í Borgarnesi. Bræður Ingólfur Helgi, Jónas og Hávarður Tryggvasynir með hönd undir kinn, eins og sumar myndirnar í Safnahúsinu sýna Hallstein Sveinsson. Minntust Hallsteins  Sýning um Hallstein Sveinsson mjög vel sótt í Safnahúsinu í Borgarnesi Minningar Uppland, hús Hallsteins við Háaleitisveg í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.