Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
Áskorun
frá óbyggðanefnd
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, fyrir
hönd íslenska ríkisins, afhent óbyggðanefnd
kröfur sínar um þjóðlendur á svokölluðu
svæði 8 vestur – Mýra- og Borgarfjarðar-
sýsla að undanskildum fyrrum Kolbeins-
staðahreppi ásamt Langjökli. Á því
landsvæði eru sveitarfélögin Borgarbyggð,
Skorradalshreppur, Hvalfjarðarsveit og
Akraneskaupstaður. Þjóðlendukröfur ríkisins
ná til afmarkaðra hluta þessa landsvæðis,
sjá nánari lýsingu og yfirlitskort á heima-
síðunni obyggdanefnd.is og á skrifstofum
viðkomandi sveitarfélaga og sýslumanns-
embætta.
Óbyggðanefnd, sem er sjálfstæður úrskurð-
araðili, kallar nú eftir kröfum þeirra sem
kunna að eiga öndverðra hagsmuna að
gæta á þjóðlendukröfusvæði ríkisins.
Hér með er skorað á þá er þar telja til
eignarréttinda að lýsa kröfum sínum
skriflega fyrir óbyggðanefnd, Hverfis-
götu 4a, 101 Reykjavík, í síðasta lagi
fimmtudaginn 20. mars 2014. Með
kröfum þurfa að fylgja þær heimildir
og gögn sem aðilar byggja rétt sinn á.
Leiðbeiningar um frágang kröfulýsinga,
þ.á m. korta, fást á heimasíðunni
obyggdanefnd.is og á skrifstofu
óbyggðanefndar.
Hlutverk óbyggðanefndar er að 1) kanna og
skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna
og hver séu mörk þeirra og eignarlanda, 2)
skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem
nýttur er sem afréttur og 3) úrskurða um
eignarréttindi innan þjóðlendu.
Í samræmi við ákvæði laga nr. 58/1998
verður yfirlýsingu um þjóðlendukröfur
ríkisins þinglýst á þær fasteignir á svæðinu
sem skráðar eru í þinglýsingabók og málið
varðar.
Óbyggðanefnd.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Sunnudagur 29. desember
Kl. 16.30 Samkoma. Vörður Leví
Traustason prédikar.
Nýársdagur 1. janúar
Kl. 16.30 Hátíðarsamkoma. Helgi
Guðnason prédikar.
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18, auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Raðauglýsingar 569 1100
Styrkir
Til sölu
Tilkynningar
Safnaðarheimili Grensáskirkju
Sunnudagurinn 29. des.
Samkoma kl. 17.00. Ræðumaður
Guðlaugur Gunnarsson.
fasteignir
BÍLAR
Sérblað um
bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga