Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla        álgluggum ehf.            !  "    #   $%"  & ' Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga ÁLGLUGGAR - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Hefð er fyrir því vestanhafs að kvikmyndahúsin fyllist af gestum á jólum. Jólin í ár voru engin undantekning og var miðasalan sú næstbesta í sögu Hollywood. Tölur frá bandarísku kvikmyndaverunum benda til þess að jólasalan þar í landi hafi samtals numið 78 milljónum dala. Betri hefur jólasalan ekki verið síðan 2009 þegar kvikmynd um ævintýri Sherlock Holmes leiddi sölutöl- urnar. MarketWatch segir miðasöluna í ár frábrugðna árinu 2009 þegar Sherlock gnæfði yfir samkeppnina með 24,6 milljónir dala í tekjur. Fimm söluhæstu myndirnar þessi jólin voru allar á svipuðu reki hvað sölutölur varðar og aldrei meira en tveggja milljóna dala bil á milli þeirra. Flestir sáu kvikmyndina um ævintýri Hobbitans. Myndin halaði inn 9,3 milljónum dala á miðvikudag og hefur á tveimur vikum aflað um 150 milljóna í seldum miðum. Í öðru sæti hafnaði The Wolf of Wall Street í leikstjórn Martin Scorsese, þar sem Leonardo DiCaprio leikur fjárglæframann. Myndin var frumsýnd á jóladag og námu miðasölutekjurnar 9,1 milljón dala. Í þriðja sæti var gamanmyndin Anchorman 2, með 8,1 milljón í tekjur og um 56 milljónir í heildina eftir átta daga í sýn- ingu. Íslandsmyndin um Walter Mitty, með Ben Stiller í aðalhlutverki, var fjórða söluhæsta myndin vestanhafs á jólum og spennumyndin American Hustle hafnaði í fjórða sæti. ai@mbl.is Landslag Íslandsmynd Ben Stiller um Walter Mitty var fjórða aðsóknarmesta kvikmyndin vestanhafs á jóladag. Næstbestu jólin hjá kvikmyndahúsum í BNA  Miðasölutekjur hafa ekki verið meiri síðan 2009 Bilun kom upp í netsölukerfi banda- ríska flugfélagsins Delta á fimmtu- dagsmorgun og varð til þess að al- menningur gat keypt sér flugfar með miklum afslætti. CNN greinir frá því að viðskiptavinir flugfélagsins keyptu sér m.a. flug frá Boston alla leið til Honolulu fyrir litla 68 dali, jafnvirði um 7.800 kr, og frá Oklahomaborg til St. Louis fyrir rösklega 12 dali eða um 1.800 kr. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu sömu miðar kostað að lágmarki um 85.000 og 33.000 kr, miðað við niðurstöður úr flugferðaleitarvélinni Dohop.com Talsmaður flugfélagsins fékkst ekki til að gefa upp hversu margir miðar seldust á þessu óeðlilega verði en fréttir af afsláttarverðunum bár- ust hratt um samfélagsmiðla. Delta mun taka gilda alla þá miða sem keyptir voru á lækkuðu verði. Bendir MarketWatch á að bæði geti það haft slæm áhrif á ímynd flug- félags að þræta við viðskiptavini í til- vikum sem þessum og þar að auki meina bandarísk lög flugfélögum að breyta miðaverði hafi miðakaupin verið staðfest, jafnvel þótt um sé að ræða tölvuvillu. Hlutir í Delta höfðu lækkað um 3,3% um miðjan dag á föstudag. ai@mbl.is Tölvubilun hjá Delta  Villa í sölukerfi lækkaði miðaverð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.