Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verk talaði til okkar vegna þess að þetta er klassískt verk um kúgun og meðvirkni,“ segir Marta Nordal leikstjóri um Lúkas eftir Guðmund Steinsson sem leikhópur- inn Aldrei óstelandi frumsýnir í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í kvöld kl. 19.30. Aldrei óstelandi er hug- arfóstur Mörtu og Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur leikkonu og Lúk- as er þriðja sýn- ingin sem þær setja upp á jafn- mörgum árum. Verkið fjallar um Lúkas sem er tíður matargestur á heimili hjónanna Sólveigar og Ágústs, en líf þeirra virðist snúast um þessar heimsóknir. „Þau dýrka Lúkas og leggja sig í líma við að gera honum til hæfis en Lúkas er hverflyndur og leikur sér að þeim líkt og köttur að mús. Þau eru hins vegar alltaf jafn- hrifin af honum hvort heldur hann hrósar þeim eða meðhöndlar þau eins og skepnur,“ segir Marta og tekur fram að hjónin hafi þannig gefið sig algjörlega á vald þessum gesti sínum. Með hlutverk Lúkasar fer Stefán Hallur Stefánsson, en hjónin leika Edda Björg Eyjólfs- dóttir og Friðrik Friðriksson. Einræðisherrar áberandi Að sögn Mörtu finnst henni sem leikstjóra sérlega spennandi hversu symbólískt verkið er. „Höfundurinn njörvar það hvorki niður í tíma né rúmi og það gerir verkið mjög opið til túlkunar,“ segir Marta og bendir á að Lúkas, sem upphaflega var frumsýnt árið 1975, spretti upp úr kalda stríðinu og heimsmynd þar sem einræðisherrar voru áberandi í Evrópu. „Þetta er verk sem getur átt við kúgun í sinni víðustu mynd, hvort heldur er í ástarsamböndum, á vinnustað eða á stærra plani eins og í samspili þjóðar og einræðisherra,“ segir Marta og tekur fram að efni verksins eigi alltaf við. „Þarna er fjallað um tilhneigingu manneskjunnar til að vilja stjórna öðrum sem og meðvirkni okkar, því við leitum í að láta stýra okkur,“ seg- ir Marta og tekur fram að verkið skilji áhorfendur eftir með fleiri spurningar en svör. „Sem er gott, því mér finnst alltaf vont þegar hlut- irnir eru matreiddir um of fyrir áhorfendur.“ Höfum mikinn áhuga á menningararfinum Sem fyrr segir er Lúkas þriðja uppfærsla leikhópsins Aldrei óstel- andi á jafnmörgum árum. Fyrsta uppfærsla hópsins var Fjalla- Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson í Norðurpólnum í upphafi árs 2011. Rétt rúmu ári síðar setti hópurinn upp Sjöundá eftir Mörtu Nordal og leikhópinn í Kúlunni í Þjóðleikhús- inu, en leikritið var að hluta byggt á skáldsögu Gunnars Gunnarssonar, Svartfugli. „Við höfum mikinn áhuga á menn- ingararfinum. Okkur finnst spenn- andi að skoða gömul íslensk leikrit upp á nýtt og skoða hvort þau eigi enn erindi í dag. Það er gaman að skoða þessa höfunda sem höfðu áhrif á sinn samtíma. Verk bæði Jóhanns Sigurjónssonar og Guðmundar Steinssonar náðu út fyrir landstein- ana,“ segir Marta og bendir sem dæmi á að Lúkas hafi á sínum tíma höfðað mjög til austantjaldsland- anna og verkið verið sett upp þar. Vinna með leikhúsformið „En þótt við séum meðvitað að skoða arfinn lítum við ekki svo á að við séum í efnisvali okkar njörvaðar við fortíðina. Þannig ætlum við Edda Björg að setja upp einleik Söruh Kane um þynglyndi á næsta ári,“ segir Marta og tekur fram að mark- mið leikhópsins Aldrei óstelandi sé ávallt að vinna meðvitað með leik- húsformið og gera tilraunir. „Í tilfelli Lúkasar erum við trú verkinu og erum ekki að reyna að af- byggja það. Við lokum hjónin inni í kassa og búum til fjórða vegginn, þannig að leikararnir eru með hljóð- nema til að áhorfendur heyri það sem sagt er í kassanum. Þau verða þannig áþreifanlega eins og dýr í glerbúri. Þetta ýtir undir þá túlkun að þau séu innilokuð í sjálfskapar- víti. Eini maðurinn sem er frjáls ferða sinna og getur farið inn og út úr kassanum að vild er Lúkas,“ segir Marta. Þess má geta að leikmyndina hannar Stígur Steinþórsson, um búninga sér Helga Stefánsdóttir, lýsing er í höndum Lárusar Björns- sonar og um tónlist og hljóðmynd sér Stefán Már Magnússon. Næstu sýningar verða annað kvöld og um næstu helgi, en allar nánari upplýs- ingar eru á: leikhusid.is. „Eins og dýr í glerbúri“ Marta Nordal  Aldrei óstelandi frumsýnir Lúkas í Þjóðleikhúsinu í kvöld kl. 19.30 Gestrisin Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson í hlutverkum sín- um sem hjónin Sólveig og Ágúst sem taka reglulega á móti Lúkasi. Tónleikar verða haldnir í Gamla Vínhúsinu í Hafnarfirði í kvöld, laugardagskvöld, og standa að þeim félagarnir Sveinn Guðmunds- son og Magnús Leifur Sveinsson. Hyggjast þeir með þessari fram- kvæmd fylla upp í bilið milli jóla og nýárs. Húsið verður opnað 21. Fyrst flytur Sveinn lög af plötu sinni Fyr- ir herra Spock, MacGyver og mig, ásamt nýrra efni. Honum til halds og trausts verða Hálfdán Árnason á kontrabassa, Magnús Leifur á gítar og básúnu og Ívar Atli Sigurjóns- son á gítar, munnhörpu og ýmislegt fleira. Þá leikur Magnús Leifur með sveitinni lög af væntanlegri plötu sinni, Pikaia. Aðgangur er ókeypis. Fyllt upp í bilið milli jóla og nýárs með tónleikum í Gamla Vínhúsinu Bjóða Tónlistarmennirnir sem koma fram á tónleikunum. Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is StarfsfólkHljóðfærahússins óskarviðskiptavinum sínumog landsmönnum öllumgleðilegrar jólahátíðar og farsælarákomandiári. Þökkumviðskiptiná liðnuári. leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið Þingkonurnar (Stóra sviðið) Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/1 kl. 19:30 Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/1 kl. 19:30 Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 16/1 kl. 19:30 Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Mið 29/1 kl. 19:30 Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fim 30/1 kl. 19:30 Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús. ÓVITAR (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23. sýn Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum! Pollock? (Kassinn) Fös 10/1 kl. 19:30 Lau 11/1 kl. 19:30 Sun 12/1 kl. 19:30 Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýningar komnar í sölu! Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi) Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00 Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30 Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00 Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar. Sveinsstykki (Stóra sviðið) Fös 10/1 kl. 19:30 Aukas. Aukasýning í janúar. Ekki missa af Arnari Jónssyni í þessum einstaka einleik. Lúkas (Kassinn) Lau 28/12 kl. 19:30 Lau 4/1 kl. 19:30 Sun 29/12 kl. 19:30 Sun 5/1 kl. 19:30 HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Mary Poppins –★★★★★ „Bravó“ – MT, Ftíminn Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Mary Poppins (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 13:00 Lau 4/1 kl. 13:00 Fös 17/1 kl. 19:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00 Sun 12/1 kl. 13:00 Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið í janúar. Gamla bíó í janúar.) Lau 28/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla bíó Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 29/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla bíói Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla bíó Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda Hamlet (Stóra sviðið) Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Þekktasta leikrit heims Refurinn (Litla sviðið) Lau 4/1 kl. 20:00 Mið 8/1 kl. 20:00 Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00 Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 14:30 lokas Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.