Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Rósa Braga
Sol Ísland heillaði Soledad Sanchez og nýtur hún þess að læra allt um það er snýr að íslenskri matargerð.
hvers vegna hún hafi lagt mat-
reiðsluna fyrir sig svarar hún því
til að það hafi í raun verið fyrir al-
gjöra tilviljun, eða jafnvel slysni.
„Þegar ég var fimmtán ára
unnu vinir mínir fyrir sér á hinum
ýmsu veitingastöðum í sumar-
leyfum enda voru flestir þeirra
nokkuð eldri en ég. Ég væflaðist í
kringum þau á meðan og dag einn
þegar ég sat úti í horni og beið
spurði einn á staðnum hvort ég
vildi ekki vinna mér inn aur og þar
með var ég komin í eldhúsið,“ segir
hún. Að menntaskóla loknum áttaði
hún sig á því að eldhúsið og mat-
reiðslan átti hug hennar allan og
því lærði hún til matreiðslumeist-
ara.
Eldhúsið á El Bulli
Fyrir um áratug varð Sol þess
heiðurs aðnjótandi að fá að vinna
með einvalaliði kokka á einum
frægasta veitingastað heims, El
Bulli undir handleiðslu meistara-
kokksins Ferran Adrià.
Staðurinn var opnaður árið
1983 og lokað árið 2011, þá kominn
með þrjár Michelin-stjörnur.
Á þeim árum sem staðurinn
var vinsælastur bárust yfir milljón
borðapantanir á ári en aðeins 8.000
gestir fengu borð.
„Þegar ég vann þarna vorum
við 55 matreiðslumenn í rúmlega
fullu starfi í eldhúsinu en gestirnir
voru yfirleitt ekki fleiri en fimmtíu
á dag og því rúmlega einn kokkur á
hvern gest. Þá var tveggja ára bið-
listi eftir borði á El Bulli,“ segir
Sol um þennan ævintýralega tíma.
„Þeir sem afreka það að vinna
þar í heilt ár, lifa það af, fá boð um
að vera hluti af teyminu en vandinn
er sá að launin voru ekki svo góð
og vinnan hrikalega krefjandi,“
segir Sol sem þurfti, eins og aðrir
starfsmenn að vinna allt að tuttugu
klukkustundir á dag.
„Þetta var auðvitað erfiðis-
vinna en reynslan af því að fá að
vinna með Ferran Adrià og bróður
hans er ómetanleg og mögnuð.“
Að ári loknu í eldhúsinu á El
Bulli hélt hún, reynslunni ríkari af
stað í ferðalög um heiminn og er
enn að.
Þegar hún er spurð út í hvað
henni þyki skemmtilegast að elda
segir Sol að skemmtilegast þyki
henni að útbúa forrétti. „Því þeir
koma fólki mest á óvart. Maður
getur komið bragðlaukunum veru-
lega á óvart í byrjun máltíð-
arinnar,“ segir hún. Vinnudagur
kokksins getur verið æði langur og
því ekki endilega freistandi að fara
beint heim að elda sér mat: „Ég er
skelfileg í að elda fyrir sjálfa mig.
Uppáhaldsmaturinn minn er McDo-
nald’s. Ég elska McDonald’s,“ segir
kokkurinn góði Soledad Sanchez.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
Orðaspilið Scrabble á sér býsna
skemmtilega sögu en það hefur verið
til nokkuð lengi.
Árið 1948 fékk arkitektinn Alfred
Mosher Butts einkaleyfi fyrir spilinu
en hann hafði þá verið atvinnulaus
um hríð í kjölfar kreppunnar miklu í
Bandaríkjunum.
Butts skoðaði forsíðu blaðsins The
New York Times vandlega um skeið
og sá hversu oft einstaka stafir
komu fyrir. Þannig ákvarðaði hann
hversu mörg stig hver stafur gat gef-
ið, eftir því hversu algengur hann var
á forsíðunni.
Fyrstu fjögur árin var framleiðsla
spilsins hreint og klárt basl en svo er
eins og áhugasamir hafi tekið við
sér.
Scrabble er til á íslensku og hafa
þeir hörðustu kallað það Skrafl.
Spilið selst mjög hratt upp þegar
nýtt upplag kemur í búðir og því get-
ur reynst erfitt að eignast það.
Í fjölmörgum löndum hefur
Scrabble verið notað við kennslu
enda gott og gilt tæki til að efla orða-
forða ungra sem aldinna.
Gangur spilsins er sá að hver leik-
maður dregur sjö stafi úr taupoka og
leggur á grænan stand sem spilinu
fylgja. Þannig er tryggt að aðrir leik-
menn sjái ekki stafina hjá hinum.
Einn leikmaður í einu reynir að mynda
orð úr stöfunum sem hann hefur en
orðið verður að passa við eitthvað
annað eða einhver önnnur orð á leiks-
pjaldinu. Stigin eru talin í hverri um-
ferð og skrifuð í blokk sem spilinu
fylgir og að lokum vinnur sá leik-
maður sem flest stig hefur fengið.
Aldur: 10+
Verð: Um 6.000 krónur
Kostir: Spil sem fær leikmenn til að
hugsa vandlega og eykur málvitund
fólks. Oft er gott að hafa orðabók við
höndina til að taka af allan vafa um
að orð sé til.
Ókostir: Uppselt að því er virðist á
landinu öllu eins og er.
Sölustaðir: Spilavinir og bókabúðir
(þegar það er fáanlegt).
Spil vikunnar: Scrabble
Spil sem varð til í kreppu
Óhætt er að segja að tímamót séu í
dag á sjúkrahúsinu Vogi því þrjátíu ár
eru liðin síðan fyrstu sjúklingarnir
fengu þar hjálp. Bygging sjúkrahúss-
ins markaði tímamót í meðhöndlun á
alkóhólisma hér á landi.
24.000 einstaklingar hafa fengið
meðferð á Vogi síðastliðin þrjátíu ár
og hefur þekkingin aukist verulega á
sama tímabili.
Af þessu tilefni verður glaðst í
Vonarhúsnæði SÁÁ í Efstaleiti frá
klukkan 15-17 í dag.
Dagskráin er með fjölbreyttu móti.
Páll Óskar og Monika flytja tónlist,
Hljómskálakvintettinn þeytir lúðra og
ljósmyndarinn Spessi opnar ljós-
myndasýningu með myndum úr sögu
Vogs. Til að kóróna afmælisveisluna
mun kokkurinn Þórir Bergsson töfra
fram ljúffengar veitingar.
Allir eru velkomnir á fögnuðinn.
Vogur þrítugur
Vogur Tímamót urðu í meðhöndlun
alkóhólisma þegar Vogur var opnaður.
Afmælisveisla
Seðlabanki Íslands
Gjaldeyrisútboð
Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 4. febrúar 2014. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum,
samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka
Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum
(http://sedlabanki.is/fjarfesting).
Útboð í fjárfestingarleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Lág-
marksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning
við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt
fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að
skila inn umsóknum rennur út í dagslok 15. janúar n.k.
Útboð í ríkisverðbréfaleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Lágmarksfjárhæð til þátttöku
í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn
greiðslu í ríkisverðbréfum.
Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við-
skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri.
Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir-
tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á
sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi
síðar en 4. febrúar 2014. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum.
Útboðsskilmála og yfirlit um milligönguaðila, aðalmiðlara og viðskiptabanka má finna á heimasíðu Seðlabankans
http://sedlabanki.is/utbod.
Næsta gjaldeyrisútboð verður haldið 18. mars 2014.
Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.