Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.12.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 Stöndum öll saman sem ein þjóð Sýnum kærleik og samkennd í verki. Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Hjálpið okkur að hjálpa öðrum. Margt smátt gerir eitt stórt. 546-26-6609, kt. 660903-2590 Guð blessi ykkur öll. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Gleðilega hátíð! Sparifatnaður í úrvali gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum ánægjuleg viðskipti á liðnu ári Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík Sími 568 2870 og 568 2878 | www.friendtex.is | www.praxis.is ... Þegar þú vilt þægindi Verð 366.000 kr. Opið 27. des. kl. 12-18 28. des. kl. 12-14 30. des. kl. 11-18 25% afslátturGildir til áramóta Svissnesk verðlaunahönnun Ótrúlegur hljómburður 108° hljóðdreifing Engir hátalararasnúrur 3 stærðir - 3 litir hljomsyn@hljomsyn.com Ármúla 38 | Sími 588 5010 www.hljomsyn.com www.genevalab.com Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í upphafi greip mig einhver sú kergja að ef lagt yrði á brattann færum við ekki á þessi fjöll hér í nágrenni borg- arinnar sem flestir ganga á,“ segir Trausti Pálsson. „Á nýársdag í fyrra var gengið á Fjallið eina og Sandfell hér suður við Kleifarvatn og síðan hafa fjöllin verið tekin eitt af öðru. Annars hefur þetta bara verið spilað eftir eyranu hverju sinni. Suma dagana hafa þetta bara verið léttar gönguferðir í nágrenni borgarinnar.“ Fjölgar í hópnum og mátulega langt Á sérhverjum þriðjudegi allt þetta ár hefur Trausti farið fyrir flokki vaskra göngufélaga, hópi sem kallar sig Fallega fólkið og er ferðinni á hverjum þriðjudegi kl. 18. „Mig vantaði hreyfingu og félagsskap og lagði einn af stað. Síðan hefur þetta undið upp á sig og ferðafélögum fjölgað jafnt og þétt,“ segir Trausti sem er í göngu- klúbbnum Vesen og vergangur. Fólkið í þeim hópi held- ur saman í gegnum fésbók og þar og þannig er miðlað upplýsingum um um hvert haldið skuli hverju sinni. Vergangsfólk er yfirleitt á ferðinni um helgar og þótti Trausta tilvalið að bæta þriðjdeginum við. Talsvert sé um að fólk sé í báðum þessum hópum, en sumir láta ferð- ir Fallega fólksins duga. „Á þriðjudegi höfum flest verið þrjátíu, stundum fimm til tíu og ég einn í nokkur skipti. Auðvitað er fjöldi þátt- takenda aukaatriði. Meginmálið er félagsskapurinn og að hreyfa sig eitthvað. Ferðirnar eru líka mátulega lang- ar; yfirleitt gengnir fimm til sjö kílómetrar og ferðin um það bil tveir tímar,“ segir Trausti og nefnir í þessu sam- bandi göngur um Heiðmörkina, við Elliðavatn, í Hádeg- ismóum, Grafarholti og þar í kring. Og á árinu sem nú er að brenna út hefur Trausti aðeins misst einn þriðjudag úr – og var þá löglega forfallaður vegna veikinda. Í Dreka og Landmannahelli „Í sumar var ég með fjölskyldunni í löngu ferðalagi. Var á þriðjudegi við Dreka við Öskju og gekk þá upp í Dyngjufjöllin og fór aftur í eitthvert príl réttri viku síðar og var þá kominn suður að Landmannahelli. Meginmálið er að hafa gaman að þessu,“ segir Trausti sem hóf að stunda útivist og gönguferðir fyrir um fimmtán árum. Byrjaði þá í áhlaupsferð yfir Fimmvörðuháls og hefur verið nánast óstöðvandi síðan. Og þriðjudagsferðirnar halda áfram. „Auðvitað,“ segir Trausti. Að vísu ber nýársdag nú upp á miðvikudag – og þá verður gengið á sömu fjöll á Reykjanesskaganum og fyrir ári. Þann 7. janúar verða ferðirnar svo aftur komn- ar á rétt ról þriðjudaganna – og eru öllum opnar án þátt- tökugjalds. Gengur alla þriðjudaga  Held auðvitað áfram á nýju ári, segir Trausti Pálsson Morgunblaðið/RAX Göngugarpur „Auðvitað er fjöldi þátttakenda auka- atriði. Meginmálið er félagsskapurinn,“ segir Trausti. Flestir þeirra viðskiptavina Símans sem hringdu í vini og vandamenn er- lendis á jóladag hringdu til Banda- ríkjanna og Danmerkur. Fyrirtækið bauð viðskiptavinum sínum að hringja án endurgjalds úr heimasím- um á jóladag í farsíma og heimasíma erlendis. Á eftir fyrrnefndu löndunum tveimur hringdi fólk mest í númer í Noregi, Svíþjóð og Bretlandi. Þar á eftir komu Þýskaland, Pólland, Fil- ippseyjar og Kanada. Samkvæmt upplýsingum Símans nýttu margir viðskiptavinir sér þjón- ustuna þar sem þrefalt fleiri hringdu til Bandaríkjanna og Danmerkur á jóladag en á að- fangadag. Símtöl- in til Kanada sex- földuðust og þau fjórfölduðust til Filippseyja á milli hátíðardaganna. Þá var hvert símtal um helmingi lengra á jóladag en á aðfangadag eða um tólf mínútur að jafnaði. Hringdu mest til Bandaríkjanna  Fleiri símtöl til útlanda og lengri Margir hringdu til útlanda um jólin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.