Morgunblaðið - 28.12.2013, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.12.2013, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013 Sala á jólabjór hérlendis frá 15. nóvember til 24. desember í ár var 607 lítrar samanborið við 559,5 lítra á sama tímabili í fyrra. Þetta er 8,5% aukning. Að sögn Sigrúnar Óskar Sigurð- ardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR, seldust 715,8 þúsund lítrar af áfengi í Vínbúðunum frá 17. til 24. desember. Á sama tíma í fyrra seld- ust 680 þúsund lítrar og er aukn- ingin 5,3% á milli ára. Mestu munar í sölu á bjór en sala á honum jókst um 7,5% á milli um- ræddra tímabila. 2% samdráttur varð í sölu á sterku áfengi en sala á léttu víni var svipuð og á sama tíma í fyrra. Aldrei fleiri viðskiptavinir Á tímabilinu komu 140 þúsund viðskiptavinir í vínbúðirnar miðað við 132 þúsund í fyrra. Aukningin er 6,2%. Á Þorláksmessu komu 43.456 viðskiptavinir og keyptu 230,8 þúsund lítra af áfengi. „Þetta er mesti fjöldi viðskiptavina síðasta opnunardag fyrir aðfangadag ef horft er á tímabilið 2007-2013,“ segir Sigrún Ósk. Áfengi selst að jafnaði einna mest í Vínbúðunum 30. desember. Sig- rún Ósk segir að þá komi um 44 þúsund viðskiptavinir í vínbúðirnar að jafnaði og þar af flestir milli klukkan 16 og 18. Þegar mest sé að gera fari um 125 viðskiptavinir í gegnum afgreiðslukerfi búðanna á hverri mínútu samfleytt í tvo klukkutíma. Slíkur fjöldi sé aðeins yfir afkastagetu afgreiðslukerfis Vínbúðanna og því megi búast við röðum í stærstu búðunum á þessum tíma. steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólabjór Bjórinn seldist vel fyrir jólin og framundan er mikill söludagur. 8,5% aukning í sölu á jólabjór  43.456 viðskiptavinir á Þorláksmessu Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Úrskurðarnefnd um upplýsingamál úrskurðaði á fundi sínum 13. desember síðastliðinn að afhenda ætti Víglundi Þorsteinssyni, fyrrverandi stjórnarformanni BM Vallár, fundargerðir stýrinefndar, sem í sátu fulltrúar þriggja ráðuneyta, varðandi endurreisn stóru íslensku viðskipta- bankanna. Víglundur segir að hann hafi rekið mál fyrir upplýsinganefnd- inni frá hausti 2011, eða síðan skýrsla um endurreisn viðskiptabankanna var lögð fram á Alþingi. „Af þeirri skýrslu mátti ráða að eitthvað hafði farið öðruvísi en neyðarlögin höfðu mælt fyrir um,“ segir Víglundur. Segjast ekki finna frekari gögn Áður hafa gengið tveir úrskurðir í málum Víglundar. „Nú kom síðasti úrskurðurinn, en þar hafði ég óskað eftir því að fá allar fundargerðir svokallaðrar stýrinefndar um samninga við erlenda kröfuhafa um viðskiptabankana og greinargerðir og vinnugögn þar um.“ Var Víglundi synj- að um vinnugögn nefndarinnar. „En ég fékk úrskurð um að mér skyldu afhentar allar fundargerðir nefndarinnar. Mér voru afhentar þær á ensku, en þó vantar enn upp á full skil frá fjármálaráðuneytinu og hafa þeir borið því við að þeir finni ekki frekari gögn hjá sér.“ Víglundur segir að sér sýnist sem það vanti að minnsta kosti þrjár fundargerðir og ef til vill upp á eina til við- bótar. Hann sé því að vinna áfram að því að tryggja sér full skil á fundargerðunum og hefur Víglundur meðal annars sent erindi til forsætisráðuneytisins og fjármála- ráðuneytisins þar um. „Sömuleiðis hvatti ég til þess að þessar fundargerðir yrðu þýddar á íslensku þannig að upplýsingarnar yrðu aðgengilegar fyrir allan almenning,“ segir Víglundur. Hann segir að það fari ekki á milli mála við lestur fund- argerðanna að frá því um mánaðamótin febrúar-mars 2009 og fram á sumar sama ár hafi farið fram mjög skipu- lögð vinna við að breyta öllum forsendum neyðarlaganna á vegum ríkisstjórnarinnar sem þá var og semja gegn ákvæðum neyðarlaganna við kröfuhafa erlendu bank- anna. „Þar vantar mjög mikið af gögnum, sem vert væri að Alþingi kallaði eftir og fengi með skýrum hætti allt í sínar hendur, því ég er nokkuð viss um að alþingismenn hafa aldrei fengið að sjá þessi gögn né þá samninga sem ríkisstjórnin gerði við erlendu kröfuhafana um viðskipta- bankana og nýju bankana,“ segir Víglundur sem segist ekki geta greint frá meiru að sinni. „Ekki fyrr en ég hef þá fengið full skil á öllum gögnum, sem búið er að úr- skurða að mér skuli afhent,“ segir Víglundur að lokum. Fundargerðir stýri- nefndar afhentar  Vantar enn upp á full skil, segir Víglundur Þorsteinsson Morgunblaðið/Þorkell Arnarhváll Fjármálaráðuneytið afhenti fundargerðir stýrinefndar um endurreisn viðskiptabankanna. Víglundur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.