Morgunblaðið - 28.12.2013, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
Upplýsingar um sölustaði hjá
Fullkomnar
krullur
HÁR
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
3 hitastillingar, 3 tímastillingar, kraftmikið hitakerfi.
Fáðu fullkomnar krullur sem endast lengi.
Nýir útreikningar breska ráðgjaf-
arfyrirtækisins Centre for Econo-
mics and Business Research
(CEBR) benda til þess að Kína taki
fram úr Bandaríkjunum og verði
stærsta hagkerfi heims árið 2028,
mun seinna en aðrar spár hafa
gefið til kynna.
Í tölum CEBR er tekið með í
reikninginn að hagkerfi Banda-
ríkjanna stendur betur að vígi en
margir höfðu reiknað með og eins
að ýmsar hömlur kunna að verða
á vexti í Kína eftir því sem hag-
kerfið þar í landi styrkist, svo að
hægir smám saman á hagvexti þar
í landi. CEBR býst við að lands-
framleiðsla í Kína muni nema 33,5
milljörðum dala árið 2028 borið
saman við 8.939 milljarða dala í
dag.
Einnig reiknar CEBR með að
Indland fari fram úr Japan og
verði þriðja stærsta hagkerfi
heims árið 2028 um leið og Bret-
land tekur fram úr Frakklandi og
Grikklandi og verður sterkasta
hagkerfi Evrópu árið 2030.
ai@mbl.is
AFP
Kátína Stúlka stillir sér upp á Torgi hins himneska friðar í miðborg Beijing. Í bakgrunni má sjá mynd af Mao Ze-
dong, en Kínverjar minntust þess 26. desember að liðin voru 120 ár frá fæðingu hans. Hagvöxtur hefur verið kröft-
ugur í Kína en breskir hagrannsakendur búast við að hægi á vextinum næsta hálfan annan áratuginn.
Kína fer ekki fram úr Banda-
ríkjunum næstu 15 árin
Indland á
hraðri leið
fram úr Japan
Landsbréfum hf. hefur verið veitt
viðurkenning sem fyrirmyndarfyrir-
tæki í góðum stjórnunarháttum.
Viðurkenninguna
veitir Rannsókn-
armiðstöð um
stjórnunarhætti
við Háskóla Ís-
lands. Í tilkynn-
ingu segir að við-
urkenningin
komi í kjölfar ít-
arlegrar úttektar
á stjórnarháttum
Landsbréfa sem
framkvæmd var
af lögmannsstofunni Lex ehf. Leiddi
sú úttekt í ljós að stjórnarhættir
Landsbréfa geti að mörgu leyti ver-
ið öðrum fyrirtækjum til fyr-
irmyndar.
Úttektin var unnin á vegum Sam-
taka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs
Íslands, Nasdaq OMX Iceland og
Rannsóknarmiðstöðvar um stjórn-
arhætti við HÍ. Hafa þau tekið
höndum saman um að efla eftir-
fylgni íslenskra fyrirtækja hvað
varðar góða stjórnunarhætti. Er
það m.a. gert með því að veita fyr-
irtækjum tækifæri til að undirgang-
ast formlegt mat á starfsháttum
stjórnar og stjórnenda, að því er
greint er frá í tilkynningu.
Rannsóknarmiðstöðin hefur um-
sjón með matinu og byggist matið á
hvort gögn gefi til kynna að fyrir-
tæki fylgi leiðbeiningum VÍ, SA og
Nasdaq OMX um stjórnarhætti fyr-
irtækja. Fyrirtækjum sem standast
matið er veitt viðurkenningin Fyrir-
myndarfyrirtæki í góðum stjórnar-
háttum. ai@mbl.is
Landsbréf
til fyrir-
myndar
Fá viðurkenningu
frá HÍ fyrir vandaða
stjórnunarhætti
Sigþór
Jónsson
Veglegir afslættir í verslunum auk
sterkrar sölu á barnafatnaði og
skartgripum hjálpuðu til að efla jóla-
söluna í Bandaríkjunum um 3,5%
milli ára, skv. mælingu markaðs-
greiningardeildar MasterCard.
Samkvæmt sömu mælingum stóð
sala á raftækjum og lúxusvörum í
stað og samdráttur varð í sölu á
herra- og dömufatnaði.
Samkvæmt tölum frá markaðs-
rannsóknarfyrirtækinu Purchase
jókst sala á varningi tengdum
jólahátíðinni, s.s. fatnaði, raftækjum
og lúxusvöru, um 2,3% milli ára, á
tímabilinu frá 1. nóvember til 24.
desember. Verslunarmiðstöðvasam-
tökin International Council of Shop-
ing Centers greindu frá því á að-
fangadag að í vikunni sem endaði 21.
desember hefði salan aukist um 2,7%
miðað við sama tímabil í fyrra. Sam-
tökin spá að söluaukningin í desem-
ber muni að jafnaði nema 3-4% hjá
bandarískum verslunum, m.v. sama
mánuð í fyrra.
Færri í búðunum
Fréttaveita Bloomberg segir
dræma aðsókn að verslunum hafa
knúið marga verslunarrisa til að
bjóða upp á mjög rausnarleg jóla-
tilboð. Þannig mátti sjá allt að 75%
afslátt á fatnaði hjá Old Navy
skömmu fyrir jól og verslanir á borð
við Macy’s og Kohl’s höfðu opið allan
sólarhringinn frá 20. desember.
Gestakomur í bandarískar verslanir
voru 21% lægri í vikunni sem endaði
21. desember, miðað við sama tíma-
bil fyrir ári samkvæmt mælingum
ShopperTrac. ai@mbl.is
Jólaverslun jókst um 3,5%
Verslanir vestanhafs höfðu sig allar við
AFP
Tilboð Barn tekur því rólega í jólaösinni og les í bók í leikfangadeildinni í
einni af stórverslunum Kohl’s. Afslættir hafa verið ákaflega rausnarlegir
vestanhafs þessi jólin til að laða fleiri neytendur í verslanirnar.
Nýjustu tölur frá Kína gefa til
kynna að hagvöxtur á árinu verði
7,6% sem er örlítið hærra en opin-
berar spár sem hljóðuðu upp á 7,5%
hagvöxt. Reuters segir um smá-
vægilegan samdrátt að ræða frá
síðasta ári þegar hagvöxturinn nam
7,7%.
Talið er líklegt að kínversk
stjórnvöld muni aftur spá 7,5% hag-
vexti á árinu framundan. Opinberar
hagtölur fyrir síðasta fjórðung árs-
ins verða birtar í janúar. ai@mbl.is
Hagvöxtur
í Kína ögn
yfir spám
AFP
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift