Morgunblaðið - 28.12.2013, Page 40
„Hér er komið hið veglegasta
verk og afar fróðlegt“
(mbl.is)
„merkasta rit ársins“
(jonas.is)
Bókinni fylgir hljómdiskur
með fjölbreyttu efni.
Þetta er ný saga þessa tímabils,
vandaðri og skilmerkilegri en áður
hefur komið fram. Nauðsynleg
lesning um mikinn umbrotatíma í
sögu Evrópu og Íslands.
Heimsþekktur
rithöfundur
og mikilvirkur
fræðimaður beitir
hárbeittu stílvopni
sínu til að leiða
fram nauðsyn þess
að taka hið forna
kvæði Bjólfskviðu
til nýrrar skoðunar.
Er kvikmyndin
listgrein eða afþreying?
Í hverju felast
listrænir eiginleikar
kvikmyndarinnar?
Hér er glímt við
spurningar af þessum
toga af fágætri
skarpskyggni.
Grikkland alla tíð hefur að geyma
íslenskar þýðingar á grískum
textum frá tímum Hómers til okkar
daga. Hér leggja margir ástsælustu
þýðendur þjóðarinnar hönd á plóg.
Bókinni fylgir hljómdiskur með
upplestri Kristjáns Árnasonar
bókmenntafræðings á Ilíonskviðu.
Stíll og bragur fjallar um þau
margslungnu lögmál sem stýra formi
íslenskra bókmennta, bundins máls
og óbundins, allt frá dróttkvæðum og
eddukvæðum fram til dægurlagatexta
nútímans. Mælskufræði, skáldskaparfræði
og stílfræði. Kristján Árnason, mál-
fræðingur og prófessor í íslensku, er
höfundur þessa mikla og gagnlega verks.
Ný öndvegisrit
Lærdómsrit
Bókmenntafélagsins
eru nú að tölu.86