Morgunblaðið - 28.12.2013, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
WOLFOFWALLSTREET KL.4:30-8-11:30
WOLFOFWALLSTREETVIP KL.1-8-11:30 (4:30(LAU))
HOBBIT:DESOLATIONOFSMAUG3DKL.4:30-8-11:20
HOBBIT:DESOLATIONOFSMAUG2DKL.2-6-10
ANCHORMAN2 KL.5:40-8-10:30
FROZENENSTAL2D KL.2-8
FROSINN ÍSLTAL2D KL.1-2-3:20
FROSINN ÍSLTAL3D KL.1-3:20-5:40
HOMEFRONT KL.10:20 KRINGLUNNI
WOLFOFWALLSTREET KL. 2 -5:40 -6:50 -9:10 -10:20
ANCHORMAN 2 KL. 5:50 - 8:20
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 2 - 4:20
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 1 - 3:20
DELIVERYMAN KL. 5:40
WOLFOFWALLSTREET KL. 8 -11:20
HOBBIT:DESOLATIONOFSMAUG3D KL. 4:20 - 8
ANCHORMAN 2 KL. 5:30 - 11:30
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 3
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 2
WOLF OFWALLSTREET KL.4:30-7-10:30
HOBBIT:DESOLATIONOFSMAUG HFR3D KL.12:20-3:40-7-10:20
ANCHORMAN 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30
RISAEÐLURNAR ÍSLTAL KL. 3D:12:20 2D:12:30 - 2:30
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 2:20 - 4:40
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 12:30 - 3
HOMEFRONT KL. 8
DELIVERYMAN KL. 10:15
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU
KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT
AKUREYRI
WOLF OFWALLSTREET KL. 8 - 11:30
ANCHORMAN 2 KL. 8
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 1 - 3:20
FROSINN ÍSLTAL3D KL. 1 - 3:20 - 5:40
FROZEN ENSTAL2D KL. 5:40
HOMEFRONT KL. 10:30
WILL FERRELL, STEVE CARRELL, PAUL RUDD
ÁSAMT ÚRVALSLIÐI GRÍNLEIKARA Í
JÓLAGRÍNMYNDINNI Í ÁR! USA TODAY LOS ANGELES TIMES
JÓLAMYNDIN Í ÁR
2 tilnefningar
til Golden Globe
verðlauna
Besta Mynd ársins
Besti leikari í aðalhlutverki
Leonardo DiCaprio
T.V. - BÍÓVEFURINN/SÉÐ OG HEYRT
ROLLING STONE
EMPIRE
THE GUARDIAN
ÆVINTÝRIÐ HELDUR ÁFRAM
GLEÐILEG JÓL
12
L
7
10
Ævintýrið heldur áfram
Will Ferrel, Steve Carell og Paul Rudd ásamt
úrvalsliði grínleikara í jólagrínmyndinni í ár
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE HOBBIT 2 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 6 - 7:30 - 10 - 11
ANCHORMAN 2 Sýnd kl. 8 - 10:30
RISAEÐLURNAR 3D Sýnd kl. 1:45
FROSINN 2D Sýnd kl. 1:45 - 3:45 - 6
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd í 3D 48
ramma
Það er ekkert mál að mæraplötu Skálmaldar og Sin-fóníuhljómsveitar Íslands.Platan er frábær, algjör-
lega stórkostleg eiginlega, en eftir
að hafa horft á mynddiskinn af at-
hygli er eitt og annað sem ofanrit-
aður er ekki nógu ánægður með. Þar
er ýmsu ábótavant.
Ég var svo
heppinn að fara á
þessa tónleika.
Það var ekki leið-
inleg upplifun get
ég sagt ykkur.
Ég fór á fimmtu-
deginum og það
var rosaleg stemning og stuð. Þegar
ég heyrði að tónleikarnir á föstudeg-
inum hefðu verið teknir upp fyrir
DVD-disk hoppaði ég hæð mína.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins fór
nefnilega á þá tónleika og skírði þá
„Málmmessu áratugarins“, takk fyr-
ir. Enda voru tónleikarnir frábærir
og það er svo sem búið að tala nóg
um þá. Ég fékk tvisvar gæsahúð nið-
ur í kálfa við að hlusta. Það er hins
vegar DVD-diskurinn sem angrar
mann.
Sko.
Það er augljóst að Sena gerði allt
sem í hennar valdi stóð til að koma
þessum tvöfalda diski út fyrir jólin.
Trúlega eignuðust Skálmeldingar
fjölmarga nýja aðdáendur fyrir
þetta framtak sitt en þeir áhorf-
endur fá frekar lítið fyrir aurinn. Fá
auðvitað einhverja bestu tónleika Ís-
landssögunnar á hljómdiski og nasa-
þef af tónleikunum á DVD. Ekkert
mikið meira. Bæklingurinn sem
fylgir þessum tvöfalda diski er frek-
ar fátæklegur, það er aðeins einn
texti og engar myndir. Frekar
óspennandi miðað við tilefnið.
DVD-diskurinn er líka fátækleg-
ur. Klippingarnar eru flestar vond-
ar, skipt úr víðu skoti í vítt skot og
svo mætti lengi telja. Svo fær maður
marga hnakka þegar lögin klárast
því þá standa menn upp. Oft þegar
Þráinn Árni var á sínum ljóshraða
upp og niður gítarhálsinn má sjá
myndatökumann koma hlaupandi að
honum og reka linsuna ofan í háls-
málið á honum. Allar myndavélarnar
á tónleikunum voru annaðhvort á
öxlinni á myndatökumönnunum eða
fastar á þrífæti. Það vantaði krana-
vélina, eitthvað sem hreyfðist og
gerði tónleikana lifandi.
Vissulega er gaman að þessi
DVD-diskur skuli hafa komið út og
það svona skömmu eftir að tekið var
úr sambandi í Hörpu. Það hins vegar
sést of mikið að þetta var unnið á
ljóshraða. Þrátt fyrir það er þetta
trúlega einn besti tónleikadiskur Ís-
landssögunnar og hann verður spil-
aður endalaust næstu árin. Þetta er
það gott. En sjónrænu áhrifin hefðu
mátt vera í líkingu við það sem eyr-
un fá að upplifa.
Veisla fyrir eyru, ekki augu
Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Hljómdiskur bbbbb
Mynddiskur bbbmn
Tónleikar Skálmaldar, Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, Karlakórs Reykja-
víkur, Hymnodiu og Skólakórs Kárs-
nesskóla í Eldborg á mynd- og
hljómdiski. Sena gefur út. 2013.
BENEDIKT BÓAS
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eggert
Skálmað Frá æfingu Skálmaldar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og kóra í
Eldborg, 29. nóvember sl. Þrennir tónleikar voru haldnir fyrir fullum sal.
Myndlistarmaðurinn Sæmundur
Þór Helgason opnar í kvöld, laug-
ardag klukkan 20, sýningu í
Kunstschlager Galleríi á Rauðar-
árstíg 1.
Sæmundur Þór útskrifaðist frá
Gerrit Rietveld Academie í Amst-
erdam árið 2012 og leggur nú stund
á meistaranám við Goldsmiths-
háskólann í Lundúnum.
Sýninguna kallar listamaðurinn
„Inform“ en það þýðir, samkvæmt
orðabók, að upplýsa, tilkynna, láta
vita eða segja frá. Verkin á sýning-
unni eru virk í þeim anda og skrá-
setja hvert annað og miðla þannig
tengslum sín á milli. Á sýningunni
er einnig upplýst um aðdraganda
sýningarinnar, þar sem listamað-
urinn sést að störfum í salnum.
Samkvæmt tilkynningu segir að
Sæmundur líti á þessa sýningu sem
inngangs- og útgangspunkt fyrir
mun lengri atburðarás sem afmark-
ast af sýningarstaðnum og stund-
inni. Um leið og sýningin verður
opnuð kemur út sjöunda tölublað
ritsins Grotta Zine en í því gefur
einnig að líta framlag Sæmundar
Þórs. Bauð hann öðrum listamönn-
um, þeim Ada Avetist, Bryndísi
Hrönn Ragnarsdóttur og Geirþrúði
Finnbogadóttur Hjörvar í samræð-
ur sem mótuðust af tíu yfirlýs-
ingum.
Sæmundur Þór sýnir í
Kunstschlager Galleríi
„Inform“ Stilla úr myndbandi sem
sýnir listamanninn að störfum.
Bassaleikarinn Guðmundur Óskar
Guðmundsson, sem er hvað kunn-
astur fyrir lipran bassaleik með
Hjaltalín, gengst nú um helgina fyr-
ir tvennum jólatónleikum á Rósen-
berg en það er orðinn árviss við-
burður. Seinni tónleikarnir eru í
kvöld, laugardag, og koma margir
mætir listamenn fram. Söngvarar
eru þau Sigurður Guðmundsson,
Sigríður Thorlacius, Sigtryggur
Baldursson, Snorri Helgason, Mr.
Silla, auk þess sem leynigestur mun
stíga á svip. Hljómsveitina skipa
síðan þau Guðmundur Óskar sjálf-
ur, Daníel Friðrik Böðvarsson,
Magnús Trygvason Eliassen, Hjört-
ur Ingvi Jóhannsson og Bjarni Frí-
mann Bjarnason. Þá kemur blás-
arasveit einnig fram með sveitinni.
Tónlistarveislunni í Rósenberg
lýkur á sunnudagskvöld þegar
Hjaltalín heldur þar tónleika – vita-
skuld með Guðmund Óskar á bassa.
Jólatónleikar Guðmundar
Bassaleikarinn Guðmundur Óskar
gengst fyrir tónleikunum.