Morgunblaðið - 28.12.2013, Síða 52
Lágmark að geta hnerrað
Morgunblaðið/RAX
Ævintýraheimur Einar Rúnar Sigurðsson við Fossahelli. Munni hellisins er mjög þröngur og skríða þarf inn.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Íshellar eru magnað fyrirbrigði í
náttúrunni. Sannkallaður ævintýra-
heimur þegar best lætur. Það þekkja
fáir Íslendingar líklega betur en Ein-
ar Rúnar Sigurðsson, fjallaleiðsögu-
maður hjá Öræfaferðum, sem um
árabil hefur skipulagt skoðunarferðir
í slíka hella.
Á myndinni hér til hliðar stendur
Einar við munnann að Fossahelli sem
hann uppgötvaði í Vatnajökli í haust.
Íshellar koma og fara og Einar gerir
síður ráð fyrir að Fossahellir verði
aðgengilegur að ári. Þannig er annar
hellir á svipuðum slóðum, sem Einar
heimsótti reglulega síðasta vetur, nú
horfinn.
Mikið er um íshella í jöklinum og
um þessar mundir veit Einar um eina
tuttugu sem eru aðgengilegir, mis-
jafnlega tilkomumiklir auðvitað. „Það
eru engir hellar síðan í fyrra en sem
betur fer koma yfirleitt aðrir í stað-
inn. Ég fer vítt og breitt til að leita að
hellum á haustin.“
Gefur hellunum nöfn
Ekki er þó sjálfgefið að hægt verði
að skoða íshella í Vatnajökli að ári
enda aðgengi og öryggið inni í hellun-
um mjög mismunandi. „Það er lág-
mark að maður geti hnerrað þarna
inni,“ segir Einar hlæjandi.
Einar gefur hellunum gjarnan nöfn
og af öðrum sem njóta hylli á þessum
vetri má nefna Undirvatnshelli,
Kristallshelli, Ljósgangahelli og Kaffi
latte-helli. Beðinn að útskýra nafn
þess seinasta segir Einar: „Það blasir
við. Áin sem rennur út úr honum er
eins og kaffi latte á litinn.“
Íshellavertíðin hefst í nóvember og
stendur út mars. Þá vinna starfs-
menn Öræfaferða sex daga vikunnar.
Ekki er skynsamlegt að vitja íshella á
öðrum tímum vegna hrunhættu og
varar Einar fólk beinlínis við því. Slík
áhætta geti og hafi kostað mannslíf.
„Það er stórhættulegt að fara inn í ís-
helli að sumarlagi og helst ættu menn
ekki að gera það fyrr en í nóvember.
Ég brýni fyrir fólki að leita ekki bara
til leiðsögumanna heldur heimaleið-
sögumanna, það er að segja fólks sem
vant er að fara í þessa íshella. Það get-
ur verið dagamunur á aðgengi og
suma daga hreinlega ekki hægt að
komast í suma hella. Það veltur á veðri
og vindum. Þetta er allt annað en að
ganga á jökul. Þú verður hálfpartinn
að búa í íshellum til að geta boðið við-
skiptavinum þangað með þér.“
MMargt býr í ísnum »Tímamót
Einar Rúnar Sigurðsson, fjallaleiðsögumaður hjá Öræfaferðum, segir færri en
vilja komast að í skoðunarferðir í íshella í Vatnajökli Mikill ævintýraheimur
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hópnauðgað á aðfangadagskvöld
2. Feðgar létust við köfun
3. Flýja Facebook vegna mömmu
4. 30 milljarða gjaldþrot Stapa
Gagnrýnandi breska blaðsins The
Observer eignar Kjartani Sveinssyni
tónskáldi eina helstu myndlistarupp-
lifun ársins sem er að líða, hið trega-
fulla tónverk sem blásarar fluttu á
báti Ragnars Kjartanssonar, S.S.
Hangover, á Feneyjatvíæringnum.
Morgunblaðið/Kristinn
Verk Kjartans ein
helsta upplifunin
Kvartett söng-
konunnar Stínu
Ágúst kemur fram
annað kvöld á
djasskvöldi Kex
hostels við Skúla-
götu 28 í Reykja-
vík. Auk Stínu
skipa kvartettinn
Árni Heiðar Karls-
son á píanó, Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa og Einar Scheving á
trommur. Kvartettinn mun flytja
væmna standarda úr amerísku söng-
bókinni í bland við hressandi dægur-
lög, eins og því er lýst í tilkynningu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Kvartett Stínu
djassar á Kex hosteli
Hljómsveitirnar Moses Hightower,
Ylja og Snorri Helgason halda
hátíðartónleika í kvöld kl. 21 í Gamla
bíói. Hljómsveitirnar verða í hátíðar-
búningi og lofa einstakri upplifun, að
því er segir á miða-
söluvefnum Miði.is.
Því sé líklegt að
eitt eða tvö jóla-
lög verði leikin
í bland við
lög hljóm-
sveitanna.
Moses Hightower,
Ylja og Snorri
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 og éljagangur fyrir norðan og austan, léttskýjað sunn-
an heiða. Austlægari seint í kvöld á SV-verðu landinu og snjókoma. Frost 0 til 5 stig.
Á sunnudag Vaxandi austanátt og dálítil snjókoma S- og V-lands, 10-20 m/s síðdegis,
hvassast syðst. Mun hægari vindur og bjart veður á N- og A-landi. Frost 2 til 18 stig.
Á mánudag Austan 13-20 m/s, dregur heldur úr vindi síðdegis. Slydda eða rigning S-
lands, snjókoma á A-verðu landinu en dálítil él í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig.
Keppni í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu er nú hálfnuð. Mikil
spenna er á toppnum og aðeins mun-
ar þremur stigum á fjórum efstu lið-
unum. Ekki er langt í nokkur lið sem
ekki hafa sagt sitt síðasta í keppninni
um enska meistaratitilinn. Um ára-
mótin verður félagsskiptaglugginn
opnaður og ljóst þykir að mörg félög
ætla að krækja sér í liðsstyrk. »4
Félagsskiptaglugginn
opnaður um áramót
„Manni líður auðvitað bara
yndislega og gleðin er mikil
á heimilinu,“ segir Margrét
Lára Viðarsdóttir, marka-
drottningin úr Vest-
mannaeyjum, í viðtali við
Morgunblaðið en hún til-
kynnti það á öðrum degi
jóla að hún ber barn undir
belti. Margrét þarf því að
taka sér frí frá bolt-
anum en stefnir að
endurkomu. »1
Margrét Lára ekki
hætt í boltanum
Hver verður íþróttamaður ársins
2013? Svarið við því fæst í kvöld en
þá verður lýst kjöri á íþróttamanni
ársins. Þetta verður í 58. sinn sem
Samtök íþróttafréttamanna standa
fyrir kjörinu en í fyrra varð hand-
boltamað-
urinn Aron
Pálmarsson
fyrir valinu.
»2-3
Kjöri á íþróttamanni
ársins lýst í kvöld
Öræfaferðir kallast Local Guide of
Vatnajökull á ensku og fagnar fyr-
irtækið tuttugu ára starfsafmæli í
vor. Þann tíma hefur Einar ekki
unnið við annað. Nú starfa bæði
sonur hans og tengdadóttir með
honum. Ekki vantar verkefnin. „Við
erum yfirbókuð, ég lendi stundum
í því að hafna tveimur til þremur
fyrirspurnum á dag.“
Hafnar mörgum fyrirspurnum
FAGNAR TUTTUGU ÁRA STARFSAFMÆLI Í VOR