Morgunblaðið - 17.01.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2014
Góð brauð - betri heilsa
Handverksbakarí í 19 ár
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Það er skortur á heildstæðri yfirsýn og það vant-
ar jafnframt stefnumótun til framtíðar um hvern-
ig þjónustu á að veita og hvernig það verður best
gert,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, um málefni aldraðra.
„Það er mín skoðun að það þurfi að gera heild-
aráætlun til langs tíma um
uppbyggingu hjúkrunarrýma á
landinu öllu og þá ætti heild-
arsýnin að nást. Í slíkri áætlun
yrði þá skilgreint hvaða þjón-
ustu á að veita, hvar þörfin er
og síðan þarf að gera í kjölfarið
uppbyggingaráætlun.“
Nokkuð hefur verið rætt um
að útrýma dvalarrýmum til að
fjölga hjúkrunarrýmum en
Unnur Brá segir það ekki góða
leið þar sem fjarlægðirnar eru miklar. „Það er tal-
að um að lausnin á móti dvalarrýmunum sé heima-
hjúkrun en á víðfeðmu svæði er tíma starfsmanns-
ins betur varið inni hjá fólki heldur en í bíl að
keyra á milli. Heimahjúkrun virkar ekki jafn vel
alls staðar.“
Á að nýta ónýtt rými
Ljóst er að öldruðum fjölgar hratt, árgangarnir
stækka og meðalaldurinn hækkar. Í tölum Hag-
stofu Íslands kemur fram að árið 2012 hafi heild-
arfjöldi Íslendinga verið 319.575, þar af voru aldr-
aðir 67 ára og eldri 34.812 talsins og aldraðir 80
ára og eldri 11.335. Eftir sex ár, árið 2020, er áætl-
að að heildarfjöldi Íslendinga verði 345.066 þar af
er gert ráð fyrir að aldraðir 67 ára og eldri verði
45.363 talsins og 12.880 aldraðir 80 ára og eldri.
Unnur Brá segir að það þurfi að taka á málinu
og gera áætlun svo ekki fari illa. „Ég sé fyrir mér
að í gegnum Alþingi fari áætlun um uppbyggingu
í heilbrigðismálum og það er þá bara gert með
svipuðum formerkjum og við erum að tala um
samgönguáætlun; horft á landið í heild, hver á
þjónustan að vera, hvaða verkefni á að fara í og í
hvaða röð. Þannig að við áttum okkur á hvert
verkefnið er og getum þá byrjað,“ segir Unnur
Brá. „Það fljótlegasta sem við gerum er að nýta
þau hjúkrunarrými og þá aðstöðu sem fyrir er.
Við erum ekki að fullnýta hana. Í fjárlagavinnunni
núna voru settar 200 milljónir í fjárlagalið sem er
tímabundið verkefni, til eins árs, sem er ætlað að
fjölga hjúkrunarrýmum á landsbyggðinni. Mein-
ingin er sú að taka ónýtt rými, sem ekki er fjár-
heimild fyrir, og fá heimild til að setja fólk í þau.
Þessar 200 milljónir eiga að brúa bilið á meðan
unnið er að því að fá yfirsýn yfir málið og gera
áætlun um hvar á að byggja upp til framtíðar.“
Ekki er búið að ákveða hvert þessar 200 millj-
ónir fara en sú vinna er í vinnslu í velferðarráðu-
neytinu að sögn Unnar Brár. „Annað sem þetta
mun hafa í för með sér er að ef við fjölgum hjúkr-
unarrýmum mun það létta á spítölunum. Þetta er
eitt stærsta málið fyrir spítalana, að koma þeim
sem þurfa ekki að vera þar yfir í ódýrara úrræði
eins og hjúkrunarrýmin eru. Það er mjög nauð-
synlegt fyrir alla að hjúkrunarrýmum á landinu
verði fjölgað.“
Allt úr sjóðnum fer í aldraða
Í kjölfarið á fréttaflutningi Morgunblaðsins í
gær um að aðeins hluta þess fjár sem kemur í
Framkvæmdasjóð aldraðra sé varið í öldrunarmál
vill velferðarráðuneytið koma því á framfæri að
öllu fé Framkvæmdasjóðs aldraðra sé varið til
öldrunarmála í samræmi við 9. gr. laga um mál-
efni aldraðra. Hluti fjárins fer í rekstur stofn-
anaþjónustu skv. sérstakri lagaheimild. Hluti fer í
leigugreiðslur til hjúkrunarheimila sveitarfélaga
en leigugreiðslurnar eru ígildi stofnframlags rík-
isins vegna uppbyggingar nýrra hjúkrunarheimila
sem byggð eru samkvæmt leiguleið með samningi
við sveitarfélög. Viðhald fasteigna öldrunarstofn-
ana er greitt úr Framkvæmdasjóði aldraðra með
svokölluðu húsnæðisgjaldi. Stofnkostnaður og
endurbætur er sá hluti Framkvæmdasjóðsins sem
er úthlutað árlega að undangengnu umsóknar-
ferli.
Í fjárlögum 2014 er gert ráð fyrir að 1.764 millj-
arð króna komi í sjóðinn sem skiptast svona; í
rekstur stofnanaþjónustu fyrir aldraða fara 625
milljónir, leigugreiðslur til hjúkrunarheimila
sveitarfélaga nema 453 milljónum, viðhald fast-
eigna öldrunarstofnana er 270 milljónir og stofn-
kostnaður og endurbætur nema 416 milljónum.
Þarf heildaráætlun til langs
tíma í málefnum aldraðra
200 milljónir settar í að fjölga hjúkrunarrýmum á landsbyggðinni á árinu
Morgunblaðið/Ómar
Á göngu Öldruðum mun fjölga mikið og því þarf að gera áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma.
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Flutningur aldraðra af Landspít-
alanum yfir á Vífilsstaðaspítala
gengur eftir áætlun að sögn
Gyðu Baldursdóttur, aðstoðar-
framkvæmdastjóra lyflækninga-
sviðs Landspítalans. Búið er að
fylla 28 rými af 42. Ákveðið var í
haust að opna hjúkrunardeild á
Vífilsstöðum í sex mánuði til að
létta álagi af Landspítalanum.
Þeir einstaklingar sem eru fluttir
þangað hafa lokið sjúkdóms-
meðferð og bíða eftir dvöl á
hjúkrunarheimili.
Fyrstu vistmenn á Vífils-
stöðum voru fluttir þangað af
Landakoti í lok nóvember. „Sjúk-
lingunum fjölgar smátt og smátt.
Til að byrja með voru 18 sjúkling-
ar fluttir beint af Landakoti svo
byrjuðum við strax í janúar að
bæta við og það eru komnir tíu í
viðbót af spítalanum. Núna eru
28 sjúklingar á Vífilsstöðum en
áætlað er að flutningum verði
lokið um miðjan febrúar og þá
verða þeir komnir upp í 42,“ seg-
ir Gyða.
Breyta þurfti húsnæðinu að-
eins fyrir starfsemina. „Auðvitað
er húsnæðið barn síns tíma að
mörgu leyti en það vissu allir
hvað þeir stigu inn í. Þetta er fall-
egt hús á góðum stað og fólki líð-
ur vel að vinna í húsnæðinu og
sjúklingar og aðstandendur eru
ánægðir með aðstæðurnar.“
Gyða segir að ágætlega hafi
gengið að manna stöður starfs-
manna á Vífilsstöðum. Ekki sé
allt starfsfólk byrjað en því fjölgi
í takt við fjölgun sjúklinga.
Komnir 28 af
42 sjúklingum
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
40 hjúkrunarrými
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að
á Egilsstöðum væri verið að byggja
30 ný hjúkrunarrými og með þeim
myndi rýmum á staðnum fjölga um
þrjú. Það rétta er að nýju rýmin eru
40 talsins. Fjöldi heimilaðra hjúkr-
unarrýma á staðnum er 23 og er því
um 17 rýma fjölgun að ræða þegar
öll rýmin verða komin í notkun.
LEIÐRÉTT
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra hefur samþykkt tillög-
ur þverpólitískrar nefndar um skipt-
ingu 500 milljóna fjárveitingar til
eflingar löggæslunni, en í þeim felst
m.a. að lögreglumönnum verður
fjölgað um 44 á þessu ári.
Að auki verður fjölgað sérstaklega
um átta lögreglumenn til að rann-
saka skipulagða glæpi og kynferðis-
brot. Miðað er við að lögregluemb-
ættin geti strax auglýst lausar
stöður og að ráðningar geti hafist frá
og með 1. mars.
Áhersla á landsbyggðina
Helstu áherslurnar í eflingu lög-
gæslunnar eru, auk fjölgunar lög-
reglumannanna, að auka öryggi al-
mennings. Á þessu ári fer aukningin
helst til landsbyggðarinnar og þeirra
staða þar sem helst skortir lág-
marksmannafla. Búnaður, þjálfun og
endurmenntun lögreglumanna verð-
ur bætt og eftirlit lögreglu á vegum
verður aukið.
Fjölgar um tíu á Norðurlandi
Samkvæmt tillögunni mun lög-
reglumönnum fjölga um fimm á
Vesturlandi, tvo á Vestfjörðum, tíu á
Norðurlandi, sex á Austurlandi, níu á
Suðurlandi og tvo á Suðurnesjum. Þá
mun lögreglumönnum fjölga um átta
á höfuðborgarsvæðinu og tveir verða
ráðnir til embættis ríkislögreglu-
stjóra vegna þjálfunar lögreglu-
manna. Þess utan munu átta stöðu-
gildi rannsóknarlögreglumanna
bætast við á höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum af viðbótarframlagi
vegna rannsókna á skipulagðri
glæpastarfsemi og rannsókna á kyn-
ferðisbrotum. vidar@mbl.is
Lögreglumönn-
um fjölgi um 50
Morgunblaðið/Júlíus
Fjölgun Áætlanir eru um að fjölga
lögreglumönnum um fimmtíu.
500 milljónir til eflingar löggæslu