Morgunblaðið - 17.01.2014, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2014
Degi eftir að
rúmlega árslöngu
verkbanni hljóð-
færaleikara sin-
fóníuhljómsveitar
Minneapolis lauk
náðu hljóðfæra-
leikarar sveit-
arinnar í Detroit
samningum við
stjórnendur, átta
mánuðum áður en samningar áttu að
renna út. Fyrir nokkrum árum fór
hljómsveitin í erfitt sex mánaða
verkfall en að þessu sinni fá hljóð-
færaleikararnir nokkra launahækk-
un. Nýju samningarnir eru til
þriggja ára.
Hljómsveitin er nú á sínu 127.
starfsári og listrænn stjórnandi
hennar er hinn kunni Leonard
Slatkin.
Efnahagslífið í Detroit hefur verið
í molum um langt skeið, eftir að bíla-
verksmiðjunum þar var lokað. Nú er
hart deilt um listaverkasafn borg-
arinnar, þar sem mörg merk verk er
að finna, m.a. eftir Van Gogh og
Matisse, en yfirvöld ráðgera að selja
það allt eða að hluta til að standa
undir lífeyrisskuldbindingum.
Samið við
spilara í
Detroit
Listasafn Detroit
Yfirvöld ræða að
selja verk listasafns
Á sýningunni „Ég hef aldrei séð fí-
gúratíft rafmagn“ sem verður opnuð í
Ásmundarsafni á morgun, laugardag,
klukkan 16 mætast ný verk níu sam-
tímalistamanna abstraktverkum Ás-
mundar Sveinssonar (1893-1982).
Listamennirnir eru þau Áslaug Í.
K. Friðjónsdóttir, Baldur Geir
Bragason, Björk Viggósdóttir,
Hrafnhildur Halldórsdóttir, Ingunn
Fjóla Ingþórsdóttir, Ragnar Már
Nikulásson, Sólveig Einarsdóttir, Þór
Sigurþórsson og Þuríður Rós Sig-
urþórsdóttir.
Listamennirnir eiga það sameig-
inlegt að vinna þrívíð verk eða ab-
strakt-rýmisverk og mæta þau verk-
um Ásmundar frá sjöunda
áratugnum.
„Þessi nýju verk kallast á marg-
víslegan hátt á við víraverkin sem Ás-
mundur vann á þessum tíma,“ segir
Klara Þórhallsdóttir sem er sýning-
arstjóri ásamt Kristín Dagmar Jó-
hannesdóttir. „Allir listamennirnir
nema einn gera ný verk, þeir hafa
verið að heimsækja safnið og vinna
verkin fyrir sýninguna. Þeir eru allir
frjálsir í efnistökum og nota í bland
fundinn efnivið.“
Verkin kallast á við ab-
straktverk Ásmundar
Morgunblaðið/Rósa
Frjálsir Unnið var að uppsetningu sýningarinnar í Ásmundarsafni í gær.
Samtímalistamenn í Ásmundarsafni
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Alþjóðleg listaveisla hefst í Garði um
helgina og verður þar mikið um
dýrðir. Listamenn, bæði erlendir og
íslenskir, taka
þátt í listahátíð-
inni Ferskir vind-
ar sem haldin er
nú í þriðja sinn.
Hátíðin hefur
vakið talsverða
athygli erlendis
en þess má geta
að fólk frá út-
varpsstöð frá
Suður-Frakk-
landi er statt hér á landi til þess að
fjalla um hana auk þess sem Arte
Cultural Actions valdi hátíðina sem
eitt af því áhugaverðasta sem er að
gerast í Evrópu. Á opnunarhátíðinni
verður m.a. boðið upp á leiðsögn um
sýningarnar.
„Á opnuninni verða myndlist-
arsýningar, tónleikar, gjörningar,
leikrit og svo margar óvæntar uppá-
komur sem eðli málsins samkvæmt
eru ekki auglýstar fyrirfram,“ segir
Mireya Samper en hún hefur veg og
vanda af þessari listahátíð. „Þá
verða tónleikar úti í vita og hljóð-
skúlptúr verður í kjölfarið kynntur
til sögunnar. Eins má nefna að á
staðnum verður kolagerðarlistamað-
ur sem mun kenna listamönnum og
öðrum hvernig á að búa til kol á
gamla mátann.“
Vitar undirlagðir list
Blásið er lífi í Garðskagavitann en
bæði gamli vitinn og nýi verða vett-
vangur mikillar listsköpunar. „Báðir
vitarnir verða undirlagðir listsýn-
ingum og það eru til að mynda lista-
verk á hverri einustu hæð í nýja
Garðskagavitanum.“ Athygli vekur
að listamenn hátíðarinnar koma víða
að. „Hér er til dæmis listamaður frá
Japan sem kallar sig Oz en hann er
einn af fimm sem geta kallað sig
meistara í svokallaðri EMA-
skreytilist sem tengist Shinto-
trúarbrögðum í Japan. Síðan verða
fleiri uppákomur eftir því sem líður á
hátíðina enda er þetta lifandi verk-
efni og stöðugt bætist við dag-
skrána.“ Spurð um eftirlætislista-
mann sinn á hátíðinni líkir hún því
við að þurfa að gera upp á milli
barna sinna og biðst undan þeirri
bón. „Það sem skiptir máli er að hér
er mjög mikil breidd í listafólki, bæði
hvað varðar aldur og reynslu. Sumir
eru mjög þekktir en aðrir eru að feta
sín fyrstu skref í listaheiminum.“
Listahátíðin Ferskir vindar stend-
ur yfir dagana 18. til 26. janúar í
Garði. Frekari upplýsingar um há-
tíðina má finna á heimasíðunni
Fresh-winds.com.
Listamenn flæða um Garð
og vitar lagðir undir list
Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar hefst á morgun
Tilfinningar Japanski listamaðurinn Oz er einn fimm meistara í EMA-tækni.
Viti Í Garðskagavita má sjá þetta textaverk eftir Hlyn Hallsson.
Mireyja Samper
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Lau 25/1 kl. 19:30 aukas. Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn.
Sun 19/1 kl. 19:30 aukas. Fim 30/1 kl. 19:30 65.sýn Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn.
Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn
Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Sun 2/2 kl. 13:00 28.sýn Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn
Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fös 17/1 kl. 19:30 9.sýn Lau 1/2 kl. 19:30 11.sýn
Fös 24/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 12.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Pollock? (Kassinn)
Lau 18/1 kl. 19:30 Fös 31/1 kl. 19:30 Lau 1/2 kl. 19:30
Skemmtilegt leikrit með framúrskarandi leikurum. Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 18/1 kl. 13:30 Sun 26/1 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00
Lau 18/1 kl. 15:00 Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 17/1 kl. 20:00 4.sýn Lau 18/1 kl. 22:30 Aukas. Fös 24/1 kl. 22:30 Aukas.
Fös 17/1 kl. 22:30 Aukas. Fim 23/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 25/1 kl. 20:00 8.sýn
Lau 18/1 kl. 20:00 5.sýn Fös 24/1 kl. 20:00 7.sýn Lau 25/1 kl. 22:30 Aukas.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Óraunveruleikir (Kassinn)
Fös 17/1 kl. 20:00 Lau 25/1 kl. 20:00 Sun 26/1 kl. 20:00
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00 Mið 5/2 kl. 19:00 aukas
Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas
Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00 Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Fös 24/1 kl. 19:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó í janúar, Hof í febrúar)
Fös 17/1 kl. 20:00 Lau 25/1 kl. 20:00 Sun 2/2 kl. 20:00 í Hofi
Lau 18/1 kl. 20:00 Sun 26/1 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 20:00 Lau 1/2 kl. 20:00 í Hofi
Sýnt í Gamla bíói í Janúar. Tvær sýningar í Hofi á Akureyri í Febrúar.
Hamlet (Stóra sviðið)
Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Fös 14/2 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Lau 15/2 kl. 20:00
Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00
Lau 25/1 kl. 20:00 aukas Sun 9/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Mið 5/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Lau 22/2 kl. 20:00 13.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Mary Poppins – síðustu sýningar
Arnljótur Sigurðsson tónlistar-
maður heldur útgáfutónleika í hinu
nýja menningarhúsi Mengi, Óðins-
götu 2, í kvöld, föstudagskvöld.
Ný plata Arnljóts nefnist Línur
og var tekin upp í Stúdíó Verkó í
Reykjavík.
Arnljótur lýsir tónlistinni á Lín-
um sem geómetrískri raftónlist sem
samanstendur af tæplega 25 mín-
útna löngu tónverki í 12 þáttum.
Grafíski hönnuðurinn Ragnar
Fjalar Lárusson hannaði umslagið í
samstarfi við Arnljót, en Ragnar
Fjalar hefur meðal annars hannað
umslög og myndrænan hugarheim
hljómsveitarinnar Ojba Rasta þar
sem Arnljótur leikur á bassagítar.
Þetta er þriðja útgáfa Arnljóts,
en fyrri útgáfur hans eru hljóm-
platan Listauki (2008) og tónlistar-
myndbandasafnið Veðurfréttir
(2011). Á tónleikunum flytur Arn-
ljótur nýju plötuna í heild, auk þess
að flytja nýja óútgefna tónlist. Þar
koma við sögu flautur og fleira.
Útgáfutónleikar Arnljóts Sigurðssonar í
menningarhúsinu Mengi í kvöld
Morgunblaðið/Ómar
Listamaðurinn Arnljótur er fjölhæfur.