Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 29

Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 29
Það er ekki ólíklegt, að Elísabetu Englandsdrottningu verði stundum hugsað til formóður sinnar Viktoríu drottningar um þessar mundir. Sennilega langar hana líka til að vitna til hins fræga svars Viktoríu, þegar einhver dirfðist að segja dálít- ið dónalega sögu í viðurvist hennar hátignar: Þetta skemmtir oss ekki. Nei, — Elísabetu drottningu er vægast sagt ekki skemmt. Hún hefur ekki sézt jafn þungbrýn og bitur á svip eins og við brúðkaup systur sinnar, fyrr en nú við veitingu sokka- bandsorðunnar. Sú athöfn fór fram þegar Profumohneykslið hafði náð hámarki sínu. Og hver er söguhetjan í þessu heimsfræga hneykslismáli? Það er ung stúlka. Hver er Christine Keeler? Hvernig varð hún sú persóna, sem hún er í dag? Og hvernig gat þessi fremur lítilfjörlega stúlku- kind komið af stað svo miklu hneyksli, að slíks eru varla dæmi nú á tímum — helzt mætti líkja því við hneykslið, þegar hin framkvæmda- sama frú Simpson svipti enskan kon- ung krúnunni og gerði hann að her- coga af Windsor. Christine fæddist fyrir 21 ári, í enska smábænum Wraysbury. í æsku bjó hún með móður sinni í ónýtum járnbrautarvagni. Faðirinn var í fangelsi. Það er skiljanlegt, að Christine fýsti fljótlega að komast burt frá slíku heimili. Hún hélt til London, þar sem hún lærði fljótt að nota sér möguleika stórborgarinnar. Sagt er, að hún hafi ekki verið meira en tólf ára gömul, þegar hún var orðin alveg ómótstæðileg. Christine er rauðhærð, ekki sérlega vel gefin, og brátt þurfti hún engar áhyggjur að hafa af því, hvernig hún ætti að komast af. Lögaldur í Englandi miðast við fimmtán ár. Christine fór vel með tímann. Hún var ekki nema fimmtán ára, þegar hana var að finna í skuggalegasta hluta Soho-hverf- isins. Þar hélt hún inn á menntabraut, sma undir leiðsögn spánsks landshornaflakkara, sem sá, að stúlk- an gæti átt framtíð á vínbörum. litlum fjölleikahúsum og ódýrum skemmti- stöðum, Næsta skref Christine var náin kynni hennar af bandarískri herstöð. Sautján ára gömul eignaðist hún barn með óþekktum Ameríkana. Bariiið dó stuttu eftir fæðingu. Síðan lifði Christine nokkur stormasöm ár í undirheimum Lundúnaborgar, í heimi ástríðna og vopnaviðskipta. En það er trúlegt, að ástríður Christ- ine hafi fremur beinzt að tekjum „verndara" sinna, en þeim sjálfum. Hér með gæti skýrslunni um stúlk- una frá járnbrautarvagninum hafa verið lokið. Framhaldið hefði verið raunaleg frásaga um hnignun áranna og gröf í fátækrakirkjugarðinum. En hér varð annað upp á teningnum: tekjur, (sem ensku blöðin greiddu Christine fyrir uppljóstranir sínar), kvikmyndasamningur, heilsíðufregn- ir í blöðum út um allan heim, — í stytztu máli: Christine er ein hinna útvöldu. Og móðir hennar hefur lýst yfir því, að hún sé hreykin af frægð- arferli dóttur sinnar. Allt þetta hófst fyrir tveimur ár- um. Þá kom eins konar Higgins próf- essor inn í líf Christine. Þessi Higg- ins hennar heitir Stephan Ward og er fjöritíu og þriggja ára gamall. Ward er þekktur yfirstéttarlæknir, beinasérfræðingur. Meðal sjúklinga hans teljast Winston Churchill, Elisa- beth Taylor og ríkasti maður heims, Paul Getty. En Ward lætur sér ekki nægja að lækna sjúkl- honan sewn enyinn staðist - FRUlN 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frúin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.