Stígandi - 01.07.1943, Síða 34

Stígandi - 01.07.1943, Síða 34
24 UM MÁLVÖNDUN STÍGANDI ingum orða, en með því á ég við það, að sama orðið sé oft og einatt ekki notað í sömu merkingu um land allt. Skal ég taka dæmi máli mínu til stuðnings og skýringar. Nokkru eftir að ég kom hingað til Akureyrar vestan af Isa- firði til þess að stunda nám hér í Menntaskólanum, rataði ég í þá raun að leggjast sjúkur. Skömmu eftir að ég var staðinn upp úr legunni, aumur útlits og vesællegur, veik sér að mér Eyfirð- ingur einn og tók að fjargviðrast um það, hve bjálfalegur ég væri. Ég brást reiður við, sem vonlegt var, svaraði skætingi ein- um, því að mér þótti þetta harla lítil kurteisi. Ég var uppalinn við það, að orðið merkti „kjánalegur“, en hér nyrðra er orðið not- að í merkingunni „veiklulegur útlits“. Slíkur merkingarmunur orða er ekki fátíður milli einstakra landshluta og jafnvel sýslna. Þessi landafræði orða og merkinga er skemmtilegt viðfangs- efni, sem lítið hefir verið sinnt, en þyrfti að rannsaka, því að hætta er á, að munur þessi fari að forgörðum með bættum sam- göngum, aukinni skólasókn og útvarpsmælgi. Yrði því að gera bráðabug að rannsókn þessa máls. Loks ber að geta, að málið er nokkuð mismunandi eftir stétt- um, en sá munur er þó hverfandi lítill. Niðurstaða þessara bollalegginga verður því sú, að íslenzk tunga hafi að tiltölu lítið breytzt, erlend áhrif sé ekki ýkja- mikil og munur héraðamála ekki meiri en svo, að hann skapi f jölbreytni án þess að valda örðugleikum. En nú verður einhverjum ef til vill á að spyrja: Er tungan ekki í hættu, og verðum við ekki að gera ráðstafanir við þeirri hættu? Því er fljótsvarað. Tungan er í hættu, hefir alltaf verið í hættu og verður það vafalaust alla tíð. Mér þykir vænt um það, að ég hefi orðið þess meira var nú en áður, að menn bæri kvíðboga fyrir framtíð tungunnar. Það er eins og þessi ást hafi skyndilega blossað upp við tilkomu brezka og ameríska setu- liðsins. Ég hefi hitt fjölmarga menn, sem hafa tjáð mér ást sína á íslenzkri tungu og verið upp til handa og fóta um ýmis ráð, er stuðla mætti að varðveizlu hennar. En því miður hefir á þetta borið svartan skugga. Ég hefi því miður ekki getað varizt þeirri hugsun að spyrja sjálfan mig þess, hvernig á því geti staðið, að menn, sem varla hafa getað komið út úr sér óbjagaðri setningu og verið gersamlega skeytingarlausir um meðferð tungunnar,

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.