Stígandi - 01.07.1943, Síða 41
STÍGANDI
FJOLL OG FIRNINDI
31
anum — á öllum aldri — fara saman fjöll og fénaður. Hvergi
verður svo fæti stigið á gróin fjöll og heiðar né afréttir hins
byggða bóls, að eigi séu þar rásandi hjarðir á beit, eða þá ein-
rænar fjalla-fálur á efstu grösum.
En inni undir jöklum eru efstu öræfin auð og tóm mestan
hluta árs, síðan hreindýrunum var eytt, sums staðar að fullu,
illu heilli! En þar, sem þau eru enn við lýði, eru þau hin mesta
öræfaprýði, sem augu vor fá litið, og gætu orðið landsmönnum
til ómetanlegs gagns, væri vel á haldið og réttilega.---
Nú eru villt hreindýr hvergi til hér á landi nema lítil hjörð á
Vestur-öræfum. En það eru heiðalöndin fyrir botni Fljótsdals-
héraðs og Jökuldals, vestan Snæfells og sunnan og niður að
Jökulsá á Dal, inn undir brúnir Eyjabakkajökuls og Brúarjök-
uls og út að daladrögum Hrafnkelsdals. Hafði hjörð þessari
farið hríðfækkandi ár frá ári, unz dýrin voru alfriðuð haustið
1939 og skipaður eftirlitsmaður þeirra vorið eftir. Hefir þeim
Photo: Edvard Sigurgcirsson.