Stígandi - 01.10.1943, Page 5
STIGANDl
Október—desember 1943 -I. ár. 2. hefti
SVERRIR ÁSKELSSON:
SIGLUFJÖRÐUR
Siglufjörður! Siglufjörður!
Rísa há mót heiði bláu
hrikafjöll þín yfir sæ.
Hvassar brúnir, brattir tindar,
björg og skriður, gil og rindar,
— vættir lands í virki gráu —
vaka yfir þessum bæ.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Svellur heitt í faðmi þínum
órótt blóð hins unga manns.
Þú átt flest af framavonum,
fögrum dætrum, hraustum sonum,
æfintýrum, ást og vínum,
— öllu því, sem freistar hans.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Hér er fólk á öllum aldri,
ýmsum stöðum landsins frá.
Gróðalöngun suma seiðir,
suma basl og fátækt neyðir.
Eins og knúnir einum galdri,
allir vilja hingað ná.