Stígandi - 01.10.1943, Page 6
68
SIGLUFJÖRÐUR
STÍGANDI
Siglufjörður! Sigluíjörður!
Hlýtt og kyrrlátt kvöld. í bænum
kvikar lífið heitt og ungt.
Síldin veður fram á firði,
— fleiri þúsund króna virði. —
Ótal skip á skyggndum sænum
skríða' að landi hlaðin þungt.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Skipin harðar hendur losa
hvert af öðru. Svo í röð
tóm á ný til hafs þau halda,
— hefja leik við bárufalda. —
Svo í Ijóma sólskins-brosa
söltun hefst á hverri stöð.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Sólin rís og sólin hnígur.
Nú er unnið nótt og dag.
Hér er slægt og hér er kverkað,
hausskorið og matésverkað,
saltað, kryddað. Sífellt stígur
svikul von um bættan hag.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Sumri tekur nú að halla.
Burtu síldarfólkið flýr.
Tindar líni fanna falda,
fölnar land, en þyngist alda.
Hamravættum hárra fjalla
hátíð Vetur kóngur býr.
Siglufjörður! Siglufjörður!
Þú ert ímynd ungra vona,
okkar þjóð sem tæknin gaf.
Hræsnarinn má hrista kollinn,
hugsa það sem vill um sollinn.
Þú ert lífæð landsins sona.
Lif þú heill við yzta haf!