Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 35

Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 35
STÍGANDI VONBRIGÐI 97 annar fékk að vernda hana. — Er til reynsla, sem er sárari? Er til nokkuð beiskara en þessi þjakandi neyð, sem er þó svo grimmi- lega blandin unaði? Ég bef átt marga andvökunótt, og dapur- legri, bitrari en allt annað var ávallt þessi hugsun: Þetta er hin mikla þjáning! Nú reyni ég hana! — Hvað er það nú eiginlega? Er það nauðsynlegt, að ég segi yður einnig frá gæfu minni? Því að ég hef líka reynt gæfuna, líka gæfan hefur brugðizt von- um mínum. — Það er ekki nauðsynlegt, því að allt eru það óljós dæmi, sem ekki munu gera yður ljóst, að það er lífið í heild sinni, lífið í sinni miðlungskenndu, ófróðlegu og deyfðarlegu rás, sem hefur brugðizt vonum mínum, brugðizt Jjeim, brugðizt þeim. Hvað er maðurinn, þessi rómaði hálfguð? ritar Werther hinn ungi einu sinni. Þrýtur hann ekki einmitt þá afl, er hann þarf þess mest með? Og þegar hann svífur til hæða í gleðinni eða dýfir sér niður í þjáninguna, er hann ekki einmitt þá stöðvaður, einmit þá kvaddur aftur til sljórrar, kaldrar meðvitundar, er hann þráir að hverfa út í auðlegðir óendanleikans? Ég minnist oft dagsins, er ég leit hafið í fyrsta sinn. Hafið er stórt, hafið er breitt, augu mín mændu burt frá ströndinni í von um lausn úr álögum, en þarna út í fjarskanum var sjóndeildar- hringurinn. Hvers vegna hef ég sjóndeildarhring? Ég hafði vænzt mér óendanleikans af lífinu. Ef til vill er liann þrengri, sjóndeildarhringurinn minn en annarra manna. Ég hef sagt, að mig skorti skilning á staðreynd- um, — hef ég kannske of góðan skilning á Jreim? Þverr máttur minn of skjótt? Er mér of fljótt öllum lokið? Þekki ég aðeins lægsta stig hamingju og þjáningar, aðeins upphafið? Ég trúi því ekki, og ég trúi mönnunum ekki, ég trúi fæstum þeirra, er taka undir hin stóru orð skáldanna, augliti til auglitis við lífið, — það er ragmennska, lygi! Hafið þér kannske tekið eft- ir Joví, að til eru menn, sem eru svo hégómlegir og svo áfjáðir í virðingu og dulda öfund annarra, að þeir þykjast aðeins hafa upplifað liin stóru orð hamingjunnar, en ekki þjáninganna? Það er dimmt, og þér hlustið naumast lengur á mig, þess vegna ætla ég enn einu sinni að játa það fyrir sjálfum mér í dag, að einnig ég, ég sjálfur, hefi einhvern tíma reynt að ljúga með þess- um mönnum til Jress að látast vera hamingjusamur í augum sjálfs mín og annarra. En það eru mörg ár síðan þessi hégómagirnd varð að engu, og ég er orðinn einmana, óhamingjusamur og dá- lítið undarlegur, því neita ég ekki. 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.