Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 39
STÍGANDI
FERÐASÖGUBROT
101
Foto. Edv. Sigurgeirsson.
Reynisdrangar við Vik i Mýrdal.
Framundan blasir við Hafursey, liá og myndarleg, og í fjarska
sést blika á Öræfajökul.
Laust eftir miðnætti náðum við að Kálfafelli í Fljótshverfi, og
gistum við þar.
Hér verða með nokkrum liætti þáttaskipti í ferðalaginu. Hing-
að hefir bifreiðin og okkar ágæti bifreiðarstjóri skilað okkur,
þó að misjafn hafi vegurinn verið.
F.n nú verður ekki ekið lengra í vagni. Nú taka skaftfellsku hest-
arnir okkur á bakið, og skaftfellskir fylgdarmenn vísa okkur veg-
inn yfir jökla, vötn og sanda byggðarlágsins.
Akvegir lengjast og bifreiðum fjölgar, en seint munu þær
leggja leið sína um skaftfellsku sveitirnar austan Fljótsltverfis.
Hér mun íslenzki liesturinn enn um stund halda ríki sínu, og
reynast enn sem fyrr hlutverki sínu vaxinn. Er j^að ekki einmitt
jDetta, sem fullkomnar ferðalag um Austur-Skaftafellssýslu?
Það mundi mikið skorta á ferðagleðina um þessar slóðir, ef
hesturinn væri ekki með, Þó að landið væri liið sama.
Litlu, íslenzku hestarnir okkar eiga svo vel lieima í þessari
hrikalegu náttúru-umgerð. Þeir auka á þá tilfinningu, sem mest
gerir vart við sig, þegar farið er um jaessar slóðir: hve við erum