Stígandi - 01.10.1943, Side 40
102
FERÐASOGUBROT
STIGANDI
Foto. Edv. Sigurgeirsson.
Lómagnúpur.
smáir, máttvana og öryggislausir í þessu hrikalega umhverfí
eyðisanda, jökulvatna og snækrýndra háfjalla.
Og nú flytja þeir okkur austur Skeiðarársand. Hinn þjóð-
kunni ferðagarpur, Hannes á Núpsstað, er í fylgd með okkur.
Fórum við nú austur leirurnar og tókum stefnu fyrir hamra-
gnúp, sem er geysimikið fjall, með gríðarháu og snarbröttu hengi-
flugi á þrjá vegu. Skagar hann langt frarn á flatneskjuna. —
Og mikilúðugur mun hamragnúpurinn hafa verið í augum
Brennu-Flosa, er hann eftir Njálsbrennu sá hann í draumi sínum
opnast og Járngrím ganga út úr honum og nefna nöfn margra
vina og fylgismanna Flosa, er seinna voru allir vegnir.
Núpsvötn voru góð yfirferðar, enda kvað Hannes þau sjaldan
eða aldrei hafa verið svo vatnslítil sem í sumar. Um það bil á
miðjum sandinum kom Stefán bróðir Odds í Skaftafelli á móti
okkur, og flutti hann okkur austur yfir sandinn, en Hannes hélt
til baka. Hópur ferðamanna kom með Stefáni að austan, og var
Stefán Þorvaldsson, hinn víðkunni ferðamaður og póstur, fylgd-
armaður. Hann er nú hátt á áttræðis aldri, og kvaðst nú vera
hættur að fylgja öðrum, en í þess stað yrði að fylgja sér. En þó