Stígandi - 01.10.1943, Qupperneq 42
104
FERÐASÖGUBROT
STÍGANDI
Foto. Edv. Sigurgeirsson.
Öreefajökull, séður af Skeiðarársandi.
voru á með dóti okkar í. Var það í grófarskorningi nokkrum
blautum. Þaut merin langt út í mýri, sleit af sér allar gjarðir og
þeytti hafurtaskinu í allar áttir. Leit þetta allískyggilega út um
tíma, en fór þó betur en á horfðist, þar eð ekkert skemmdist.
Einn dag dvöldum við um kyrrt í Skaftafelli. En það var allt
of stutt viðdvöl, því að margt er þar að sjá og skoða.
Skal þá fyrst minnst á útsýnið frá Skaftafelli, sem mun eitt hið
fegursta, er getur að líta á landi hér. Hafrafell blasir við umlukt
af Skaftárjökli og Svínafellsjökli. Efst í því er Hrútsfell, hrikaleg
gnípa, en neðar eru drangar tveir, sem Iieita Fremmrimenn og
Efrimenn.
Einnig rná líta Kristínartinda og Skarðstinda; allt eru þetta
stórfengleg fjöll, en skipa þó óæðra öndvegi í þessum fjallasal,
því að sjálfur skipar Öræfajökull með Hvannadalshnjúk á herð-
unum Iiásætið, þar sem liann ber við bláloft yfir jökulfannir.
Ekki höfðum við tíma til að ganga á Hvannadalshnjúk, enda
rak á liann þokuslæðing öðru hverju, og svo er oftast nær. En við
gengum á Kristínartinda, og er þaðan víðsýnt.
Saga ein er tengd við Kristínartinda. Jökulhlaup herjaði Öræf-
in, og er sagt, að allir Öræfingar hafi farizt í hlaupinu, nema kona
ein er Kristín hét, sem kleif á tindana, er nú bera nafn hennar.