Stígandi - 01.10.1943, Page 43
STÍGANDI
FERÐASÖGUBROT
105
Foto. F.dv. Sigurgcitsson.
Á Kristínarlindum.
Er á daginn leið, hreinsaði Öræfajökull sig öðru hverju, og
höfðum við af Kristínartindum bezta útsýni til hans, og var það
notað vel til að taka myndir.
Á leiðinni niður gengum við á eystri brún Morsárdals, og sást
þá greinlega, hvernig skriðjökullinn steypist fram af hömrunum
í botni dalsins.
Bæjargilið í Skaftafelli er hið fegursta og fullt af listaverkum
frá náttúrunnar höndum. Það teygir sig niður að aurum Skeið-
arár. Neðst í því er dálítið lón umgirt af skógarhríslum og undur-
fagurt. Þarna í hvamminum er stærsta hrísla í Öræfum. Ofar í
gildinu eru einnig smáhvammar. Þar eru einnig fossar, Hunda-
foss og Svartifoss. Svartifoss og umhverfi lians er að mörgu leyti
furðuverk. Gengt er undir fossinn, því að bergbrúnin skagar
fram og steypir af sér. Umgerð fossins er mynduð úr reglulega
löguðu stuðlabergi, dökku að lit.
Um kvöldið var sérstaklega fagurt sólarlag bak við Jökulfell,
og var Öræfajökull tandurlireinn og bjartur undir nóttina.
Öræfasveitin er einangraðasta sveitin á landinu. Enginn kostur
hefir jaað verið talinn, heldur hið gagnstæða. En fátt er svo með
öllu illt, að ekki fylgi nokkuð gott. Öræfingum hefir einangrun-